Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 5

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 5
5 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Vorblóm (Draba L.) tilheyra kross- blómaætt (Brassicaceae) en til hennar teljast um 4.130 tegundir í alls 419 ætt- kvíslum.1 Draba er stærsta ættkvísl ættarinnar, með um 360 tegundir sem flestar eru fjöllitna fjalla- og heimskautategundir.2 Í flóru heim- skautalanda norðurhjarans einni og sér eru um 45 tegundir vorblóma.3 Ættkvísl vorblóma er vel skil- greind og auðþekkt, og í raun hefur litlu verið haggað síðan Linnaeus lýsti henni fyrst árið 1753.4 Afmörkun vorblómategunda er hins vegar oft og tíðum erfið og tegundamörk oft byggð á minni háttar mun á hær- ingu plantna.5 Breytileiki í litninga- fjölda hefur verið rannsakaður í tímans rás, en strax á þriðja áratug 20. aldar var búið að finna mun á litnunarstigi margra tegunda.6 Nú er þekkt að fjöllitnun er mjög algeng meðal vorblómategunda.2 Hér á landi hefur verið unnið tiltölulega lítið með vorblóm, en höfundar hafa þó gert litninga- talningar á grávorblómi (D. incana L.) (óbirt handrit)7 auk þess sem hjónin Áskell og Doris Löve rann- sökuðu litningatölur íslenskra ein- taka af ættkvíslinni.8 Ýmsar bækur og heimildir hafa einnig verið gefnar út um íslenska flóru og fjalla þær að sjálfsögðu allar um vorblóma- ættkvíslina líkt og aðra hópa flór- unnar.9–18 Að auki hafa nágrannar okkar í Skandinavíu gefið út sam- norrænar flórur, en þar er aðeins stuðst við áður útgefnar heimildir um vorblóm á Íslandi.19,20 Til þessa hefur ekki verið full- komin eining um hvaða tegundir vorblóma séu á Íslandi né heldur hvaða nöfn beri að nota á þessar tegundir. Einu tegundirnar sem ein- ing hefur verið um, og ætíð hafa haldið sama nafni, eru Draba incana (grávorblóm) og D. nivalis Liljebl. (héluvorblóm).8–18,21,22 Svipað má segja um Draba alpina L. (fjallavor- blóm), en sú tegund hefur nýlega verið klofin í tvennt og fellur ís- lenska fjallavorblómið undir D. oxyc- arpa Sommerf.9 Þessar þrjár tegundir, ásamt hagavorblómi (túnvorblómi), hafa í öllum tilvikum verið taldar til íslensku flórunnar. Hagavorblómið hefur þó gengið undir ýmsum nöfn- um (Draba hirta, D. rupestris og D. norvegica Gunn.) og ýmsar heim- ildir tilgreina mikinn breytileika inn- an þeirrar tegundar. Það var svo fyrst 1945 sem byrjað var að nefna til sögunnar Draba daurica DC., D. cinerea Adams, D. lactea Adams og D. fladnizensis Wulf.13,18 Síðari höfundar hafa sumir tilgreint einhverjar þess- ara tegunda auk hinna fjögurra, en aðrir sleppt þeim eða fellt þær und- ir hagavorblóm.8–18,21 Auk þessara tegunda voru Draba aizoides L. og D. muralis L. skráðar hérlendis á 19. öld en þær voru teknar form- lega af listanum árið 1942.16 Nýjustu upp-lýsingar um tegundir vorblóma hér á landi eru í 11. bindi Atlas Florae Europaeae sem gefið var út 1996.9 Den Nya Nordiska Floran kom reyndar út síðar (árið 2003), en þar er stuðst við úreltar heimildir um vorblóm á Íslandi.20 Í þessari grein er ætlun okkar að reifa stöðu íslenskra vorblóma eins og hún er í dag og gera sem gleggsta grein fyrir þeim átta teg- undum sem við teljum að séu hér á landi. Við það verk höfum við bæði skoðað tegundirnar á vettvangi og safnað sýnum; notað gagnagrunn Náttúrufræðistofn-unar Íslands (N.Í.); farið í gegnum öll safneintök ættkvíslanna Draba (vorblóm) og Erophila (vorperla) í plöntusafni N.Í., bæði á Akureyri (AMNH) og í Reykjavík (ICEL), alls um 1.200 eintök sem safnað var á árunum 1885–2007; og stuðst við nýjar sem gamlar heimildir við greiningarnar og samantektina í heild. Við út- litslýsingar er að mestu stuðst við Norsk flora frá árinu 200523, Íslensku plöntuhandbókina frá 198610 og okk- ar eigin athuganir. 2. mynd. Útbreiðslukort vorblóma á Íslandi, gerð út frá eintökum í háplöntusafni N.Í. – Distribution map for species of Draba in Iceland using specimens from the herbaria of the Icelandic Institute of Natural History (AMNH & ICEL). a) Fjallavorblóm (Draba oxycarpa), b) héluvorblóm (D. nivalis), c) snoðvorblóm (D. lactea), d) hagavorblóm (D. norvegica), e) heiðavorblóm (D. arctogena), f) túnvorblóm (D. glabella), g) grávorblóm (D. incana), h) vorperla (D. verna).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.