Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 11
11 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags ar um eintökin sem þau notuðu eru verulega takmarkaðar.8 Draba nivalis Liljebl., Draba lactea Adams og Draba fladnizensis Wulf. Draba lactea Adams var af sumum talin fundin hér á landi en engin safneintök voru skráð13,18 til ársins 1996.9 Samkvmt okkar athugunum virðast nokkuð greinilega vera eintök í plöntusafni N.Í. sem falla undir lýsingar á D. lactea; athuganir okkar á villtum plöntum og afkom- endum þeirra renndu einnig stoðum undir þá ályktun. Tegundin er breyti- leg og nokkrum formum hennar hefur verið lýst, en munur milli þeirra er aðallega byggður á hær- ingu plantnanna. Lengi glímdu menn við þá spurningu hvernig og hvort réttmætt væri að greina á milli D. lactea og D. fladnizensis. Um tíma voru þessar tegundir færðar undir D. wahlenbergii Hartm. f. heterotricha Lindbl. annars vegar og f. homotricha Lindbl. hins vegar, en var síðan aftur skipt upp í D. lactea og D. fladnizensis. Nafnið D. fladnizensis var meira að segja á tímabili talið samnefni fyrir D. lactea. Ástæður þessa hringlanda má rekja til ófullkominna lýsinga á nafneintökum (e. type-specimens) D. lactea og D. fladnizensis. Þeim var síðan endurlýst árið 193233 og ljóst er nú að þrátt fyrir líkt útlit er um tvær aðskildar tegundir að ræða, hin fyrri sexlitna og síðari tvílitna.30,53 Þar að auki er kjörlendi þeirra ólíkt; D. fladnizensis vex gjarna í sprungum og grjóti á tiltölulega snjóléttum svæðum en D. lactea kýs fremur rakar mosabreiður á malarjarðvegi snjóþyngri bletta.28 Löve-hjónin töldu litninga úr íslenskum eintökum frá Norðurlandi sem þau greindu sem D. fladnizensis og fengu út 2n = 16. Þau kváðust ekki hafa fundið D. lactea á Íslandi í það skipti og leiðréttu um leið fyrri greiningu sína á íslenskum eintök- um í háplöntusafninu í Stokk-hólmi sem þau höfðu áður talið vera D. lactea f. glabra E. Ekman, en töldu nú vera D. fladnizensis. Þau töldu samt allt eins líklegt að D. lactea ætti eftir að finnast á Íslandi.8,18 Eftir þessi skrif þeirra var D. fladnizensis talin hluti af íslenskri flóru í þremur rit- um til viðbótar, síðast árið 2003.11,12,20 Hins vegar gátum við ekki staðfest tilvist þessarar tegundar á Íslandi að þessu sinni, en fróðlegt væri að komast að því hvernig liggur í tvílitna talningu fyrr-nefndra eintaka. Mögulega hefur okkur yfirsést teg- undin eða Löve hefur í raun talið úr eintökum af D. nivalis, sem er sú tvílitna tegund sem örugglega er fundin hér á landi. Sú tegund er þó vel skilgreind og nokkuð auðþekkt, enda eina íslenska vorblómateg- undin sem er hélugrá af örsmáum stjörnuhárum. Árið 1966 kom fram tilgáta um að D. lactea hafi myndast við tegunda- blöndun (e. interspecific hybridization) og erfðamengi hennar sé samsett úr tveim tvílitna genamengjum frá D. fladnizensis og einu frá D. nivalis.26 Síðar bentu rannsóknir til að D. lactea hafi myndast við tegundablöndun þriggja aðskilinna tegunda og ætti sér margskiptan uppruna.26,38,53 Rannsóknir á þessum þremur teg- undum á Svalbarða, auk tvílitna D. subcapitata, sýndu að þær eru allar náskyldar30,38 þótt á hinn bóginn hafi einnig verið hægt að greina þær í sundur á mjög skýran hátt, bæði með erfðafræðilegum aðferðum og eftir útlitseinkennum. Ennfremur hafa fremur nýlegar rannsóknir á erfðamörkum53,54 þessara tegunda sýnt að D. fladnizensis og D. sub- capitata á Svalbarða eru jafn líkar eða ólíkar D. lactea, og að D. nivalis sé ólíkust henni af þessum þremur teg- undum. D. subcapitata hafði fyrir þessar niðurstöður ekki verið orðuð við uppruna D. lactea. Þótt rannsókn þessi á eintökum frá Svalbarða hafi ekki getað sýnt fram á að D. nivalis, D. fladnizensis og/eða D. subcapitata séu forverar D. lactea þá útilokaði hún ekki að svo gæti verið. Þetta sýndi þó að tegunda- myndunin átti sér tæplega stað á Svalbarða heldur annars staðar við norðurskautið og að líklega bárust þessar tegundir til Svalbarða eftir ísöld.53 Nýjustu rannsóknir,55 sem byggjast á greiningu kjarnagena auk erfðamarka, staðfesta raunar þessa tilgátu að hluta til. Myndun D. lactea hefur líkast til átt sér stað á Beringssvæðinu á ísaldartímanum en forfaðir hennar hefur ekki ver- ið nein fyrrnefndra tegunda heldur hin tvílitna D. palanderiana. Í gegnum fjöllitnun er talið að D. palanderiana hafi gefið af sér ferlitna D. lactea, og sexlitna D. lactea hafi myndast við tegundablöndun D. palenderiana og ferlitna D. lactea. 8. mynd. Vorperla (Draba verna). Ljósm./Photo: Hörður Kristinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.