Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 12

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 12
Náttúrufræðingurinn 12 Fjöllitnun er mjög algeng á norðurhjara54 og almennt þykja tví- litna tegundir þar vera of fáar til að skýra þann mikla fjölda víxlfjöllitna- tegunda (e. allopolyploid) sem þar er að finna. Sumir telja að tvílitna forfeðurnir hafa dáið út á ísaldar- tímanum en fjöllitna tegundirn- ar hafi verið nógu vistfræðilega sveigjanlegar til að geta dreifst um norðurskautssvæðið. Eins kann falinn fjöldi tegunda að skýra hluta vandamálsins en bæði D. fladniz- ensis og D. nivalis, sem þykja vel skil- greindar sem flokkunarfræðilegar tegundir, virðast hvor um sig saman- standa af fjölda huliðstegunda (e. cryptic species) um allan norður- hjarann.30,55,56 Rannsóknir benda reyndar til að D. nivalis, D. fladni- zensis og D. subcapitata séu aðallega sjálfsfrjóvgaðar30 og að blöndun milli tegunda sé sjaldgæfur við- burður, þó svo að oft hafi verið getið ófrjórra blendinga D. fladni- zensis x nivalis.6,28,33,53 Hins söm en slíkt er sjaldgæft meðal plantna norðurskautssvæðisins.57 Draba norvegica Gunn., Draba glabella Pursh og Draba cinerea Adams Telja verður D. norvegica íslenska tegund eins og hún er skilgreind í dag og samræmist það fyrri niður- stöðum.9–12,18,21 Tegundin er mjög breytileg útlits en talið er að útlits- breytileika megi rekja til margskipts uppruna hennar. Sameindaerfða- fræðilegar rannsóknir á skerðisetum (e. restriction sites) hafa bent til að D. norvegica hafi myndast við tegunda- blöndun í að minnsta kosti þrem einangruðum tilvikum, en líklegt er talið að hún hafi myndast allt að 13 sinnum á Norðurlöndum og mun oftar á heimsvísu.38 Hluta breytileikans má einnig skýra út frá mismunandi vaxtarskilyrðum en þau geta m.a. haft áhrif á fjölda stöngulblaða, sem er meðal þeirra einkenna sem eru töluvert notuð til aðgreiningar.24 Draba glabella er tegund sem hefur haft fremur óljósa skilgreiningu í tím- ans rás. Hún hefur ýmist verið sögð samnefni D. daurica29 eða D. daurica samnefni hennar.12,23,24 Latneska heitið Draba hirta er einnig þekkt samnefni fyrrnefndra tegundaheita en það hefur reynst til vandræða frá upphafi. Elisabeth Ekman fjallaði um stöðu D. hirta snemma á 20. öld- inni og flestir hættu að nota nafnið í kjölfarið. Rússar hafa þó haldið skilgreiningu sinni á tegundinni og notkun nafnsins áfram.42,58 Upprunalega sýnið sem Linnaeus notaði til að lýsa D. hirta L. sam- anstendur af tveimur eintökum sem talið er að tilheyri sitt hvorri teg- undinni og þykir alls ekki fullnægj- andi.58,59 Til viðbótar segir Ekman í umfjöllun sinni um D. daurica að hún hafi ekki rekist á eintök af D. glabella en að hún geri ráð fyrir að þar sé um að ræða hárlaust form af D. daurica.59 Draba glabella Pursh var fyrst lýst árið 1814 frá Ameríku og D. daurica DC árið 1821 frá Asíu, en þegar borin eru saman eintök þess- ara tegunda, hvort frá sinni heims- álfunni, kemur í ljós að um er að ræða eintök af sömu tegund og þar sem D. glabella var lýst fyrr en D. daurica telst rétt-ara að nota eldra heitið, D. glabella Pursh.58 Tegund þessi hefur verið nefnd túnvor- blóm á íslensku og hefur gengið undir fyrrnefndum latneskum heit- um auk þess að hafa einnig verið skráð sem D. rupestris R. Br.16 og D. rupestris (R. Br.) Lindbl.,15 betur þekkt sem samnefni D. norvegica.21 Í dag eru því D. daurica og D. hirta talin sam-nefni D. glabella23,31,34,58 og ljóst af okkar athugunum og annarra að D. glabella sé nokkuð víða hér á landi og eigi með réttu að bera heitið D. glabella, þótt það hafi aðeins verið notað einu sinni áður.9,11–13,18,21 Draba cinerea, sem má rugla við D. norvegica og D. glabella, var af sumum talin fundin hér á landi en engin eintök af henni sögð finn- ast, hvorki í söfnum í Reykjavík né Kaupmannahöfn.13 Löve-hjónin kváðu hana fundna hérlendis og gerðu litningatalningar á íslenskum eintökum sem þau greindu sem D. cinerea. Eintökin reyndust vera sexlitna (2n = 48)8, sem samræmist erlendum niðurstöðum.6,8,26,38,41,43,45 Í okkar athugun fannst aðeins eitt eintak í ICEL-safni N.Í. (safnnúmer: VR-47268) sem sterkar líkur benda til að tilheyri þessari tegund. Eintakið fellur mjög vel að lýsingum og teikningum af D. cinerea en þar sem aðeins er um eitt eintak er að ræða teljum við ekki rétt að draga álykt- anir út frá því; nánari athugana er þörf til að sjá hvort tegund þessi fyrirfinnist í raun á Íslandi. Draba arctogena (E. Ekman) E. Ekman Okkur virðist ljóst að Draba arc- togena (E. Ekman) E. Ekman sé allvíða til fjalla hér á landi en hennar hefur ekki verið getið héðan fyrr. Eintök af henni var að finna meðal ógreindra vorblóma og einnig innan um D. norvegica og má því segja að greining D. arctogena leysi þar með eitthvað af þeim útlitsbreytileika sem hefur verið að finna hjá D. norvegica. Við köllum þessa nýju tegund heiðavorblóm á íslensku en það nafn hefur áður verið notað yfir D. fladnizensis, sem fannst ekki að þessu sinni. Tegundinni var fyrst lýst sem afbrigði, Draba groenlandica var. arctogena, árið 1929 af Elisabeth Ekman60 en síðar taldi hún hana sjálfstæða tegund.40,61 Flestir höf- undar, þar á meðal Ekman sjálf, hafa einungis notað endinguna E. Ekman, en þar sem hún lýsti tegundinni fyrst sem afbrigði en síðar sem fullgildri tegund er réttara að nota höfundar- heitið (E. Ekman) E. Ekman og því höldum við hér. Draba incana L. Afmörkun Draba incana L. er skýr og hefur lítið breyst síðan henni var fyrst lýst af Linnaeus árið 1753.4 Tegundin er hins vegar afskaplega fjölbreytt í útliti og sökum þess hefur oft verið lýst afbrigðum og undirtegundum af henni6,13,16,18,62–64 sem í sumum tilvikum má líklega rekja til ólíkra vaxtarskilyrða. Eintök sem eru keilulaga vegna fjölda stöngulblaða og blómstra þótt þau
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.