Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 18
Náttúrufræðingurinn
18
Erfitt er að túlka niðurstöður um
fjölda þar sem fáir einstaklingar
veiddust á söfnunartímabilinu
(1. tafla). Hins vegar vakti það
athygli að flestir varmasmiðirnir
voru á stjái í september þegar
byrjað var að hausta. Þegar horft
er á fjölda einstaklinga virðist
hreyfanleiki bjallnanna hafa verið
ögn meiri í júní en í júlí og ágúst
en mestur í september því flestar
bjöllur veiddust þá. Hugsanlega
voru varmasmiðir þá í mökunar-
hugleiðingum fyrir veturinn, en það
er möguleiki sem aðrir hafa velt
fyrir sér en engin einhlít niðurstaða
fékkst.4 Sé svo gætu kvendýrin
hugsanlega geymt sæðið fram til
varpsins næsta vor þegar betri
skilyrði eru fyrir ungviðið.
Landnám varmasmiðs gæti
verið jákvætt fyrir grænmetis- og
garðræktendur á Íslandi, þar sem
hann leggur sér til munns snigla
og stundum einnig aðra skaðvalda
sem leggjast á nytjaplöntur, en
óþekkt eru áhrif hans á önnur
smádýr.
Summary
The ground beetle Carabus
nemoralis – the biggest beetle in
Iceland
The number and habitat selection of the
ground beetle Carabus nemoralis (Müller
1764) was studied in Hveragerði, Iceland
in the summer of 2005. The beetle is a
recent settler in Iceland, ít’s most north-
herly location. The beetle belongs to the
Carabidae family and is 2.0–2.5 cm long.
It is known to be a generalist with the
ability to exploit a wide range of re-
sources and become both widespread
and common under favourable condi-
tions.2 It is often found in gardens, for-
ests, pasture and many lowland areas.
In the study, samples were collected at 7
different habitats. The adult beetles and
larvae were both found in only one
habitat: the garden. The larvae were also
found in a geothermal area. The fact that
only a few animals were caught during
the sampling period seems to imply that
the population of C. nemoralis in Hvera-
gerði is small. It is argued that the set-
tling of this beetle in Iceland could be
positive for horticulture farmers and
garden owners because it is a predator
on snails, worms and insects. It is not
unlikely that the beetle was imported
into the country with pot plants or other
goods.
Þakkir
Náttúrufræðistofnun Íslands og dr. Erling Ólafsson skordýrafræðingur
fá kærar þakkir fyrir upplýsingar um varmasmiðinn og Kjartan
Benetiktsson fyrir yfirlestur. Nýsköpunarsjóði námsmanna og Rannsókna-
og fræðasetri Háskóla Íslands í Hveragerði er þakkaður fjárhagslegur
stuðningur.
Heim ild ir
Brouat, C., Chevallier, H., Meusnier, S., Noblecourt, T. & Rasplus, Y. 2004. 1.
Specialization and habitat: spatial and environmental effects on
abundance and genetic diversity of forest generalist and specialist
Carabus species. Molecular Ecology 13. 1815–1826.
Krebs, C.J. 1999. Ecology, 5. útg. Benjamin Cummings. San Francisco. 2.
695 bls.
Resh, V.H. & Cardé, R.T. 2003. Encyclopedia of Insects. Academic 3.
press, USA. 1266 bls.
Weber, F. & Heimbach, Udo. 2001. Behavioural, reproductive and 4.
developmental seasonality in Carabus auronitens and Carabus
nemoralis (Col., Carabidae) – A demographic comparison between
two co-existing spring breeding populations and tests for intra- and
interspecific competition and for synchronizing weather events.
Mitteilungen aus der Biologischen Bundesanstalt für Land- und
Forstwirtschaft. Heft 382. Berlin-Dahlem. 194 bls.
Delkeskamp, K. 1930. Biologische Studien über Carabus nemoralis 5.
Müll. Ztschr. Morph. Ökol. Tiere 19. 1–58.
Sturani, M. 1962. Osservazioni e ricerche biologiche sul genere 6.
Carabus Linnaeus (sensulato) (Coleoptera Carabidae). Estratto dalle
Memoire della Società Entomologica Italiana XLI. 85–202.
Lawrence, J.F. & Britton, E.B. 1991. Coleoptera (Beetles). Í: The 7.
Insects of Australia – A Textbook for Students and Research Workers,
(ritstj. CSIRO, Commonwealth Scientific and Industrial Research
Organisation). Volume II. Melbourne University Press; Carlton;
Australia. Bls. 543–683.
Chinery, M. 1993. Insects – Of Britain & Northern Europe, 3.útg. 8.
HarperCollins Publishers, Britain. 320 bls.
Anderson, R., McFerran, D. & Cameron, A. 2000 The Ground Beetles 9.
of Northern Ireland (Coleoptera –Carabidae) Ulster Museum, Belfast.
256 bls.
Cárdenas, A.M. & Buddle, C.M. 2007. Distribution and potential 10.
range expansion of seven introduced ground beetle species
(Coleoptera: Carabidae) in Quebec, Canada. The Coleopterist’s
Bulletin 61 (1). 135–142.
Um höfundana
Lísa Anne Libungan (f. 1977) lauk BS-prófi í líffræði frá
Háskóla Íslands 2006. Hún stundar nú meistaranám í
sjávarlíffræði við sama skóla þar sem hún rannsakar
áhrif hitastigs á vöxt þorskseiða auk fleiri þátta.
Gísli Már Gíslason (f. 1950) lauk BS-prófi í líffræði frá
Háskóla Íslands 1973 og eins árs framhaldsnámi í vist-
fræði sama ár. Hann lauk Ph.D gráðu frá Háskóla-num
í Newcastle upon Tyne, Englandi 1978. Hann er próf-
essor í vatnalíffræði við Háskóla Íslands.
Tryggvi Þórðarson (f. 1952) lauk Cand. mag. prófi í
raunvísindum með áherslu á líffræði frá Háskólanum í
Osló 1978 og Cand.real prófi í vatnavistfræði frá sama
skóla 1983. Hann er framkvæmdastjóri Rannsókna- og
fræðaseturs Háskóla Íslands í Hveragerði.
Póst- og netföng höfunda/Authors’ addresses
Lísa Anne Libungan
Líffræðistofnun Háskóla Íslands
Öskju, Sturlugötu 7
IS-101 Reykjavík
lal@hi.is
Gísli Már Gíslason
Líffræðistofnun Háskóla Íslands
Öskju, Sturlugötu 7
IS-101 Reykjavík
gmg@hi.is
Tryggvi Þórðarson
Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands í Hveragerði
Pósthólf 122
IS-810 Hveragerði
tryggvi@nedrias.is