Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 26
Náttúrufræðingurinn
26
Mordýr
Mordýr (Collembola) er hópur smádýra sem aðallega lifa í jarðvegi. Þau líkjast skordýrum, teljast til þeirra,
hafa sex fætur eins og þau og tvo skynjara á framendanum. En mordýrin eru vænglaus og ýmis sérkenni
þeirra tengja þau meira við krabbadýr en skordýr. Flestar tegundir mordýra eru með stökkgaffal á
afturendanum og geta því stokkið margfalda lengd sína. Flestar tegundir lifa á rotnandi plöntuleifum, en
geta einnig lagst á lifandi plönturætur, þörunga og sveppi.5 Meira en 150 tegundir mordýra hafa fundist
á Íslandi.6 Hefur mordýrum í stórum dráttum verið skipt í fimm ættir sem nefnast blámor (Hypogastruridae),
pottamor (Onychiuridae), stökkmor (Isotomidae), kengmor (Entomobryidae) og kúlumor (Sminthuridae).
Tegundin Megaphorura arctica tilheyrir pottamori en Halisotoma poseidonis tilheyrir stökkmori.
á lífrænum ögnum sem hún síar
úr sjónum með mjög sérhæfðum
munnfærum. H. poseidonis hefur
ennþá ekki fundist annars staðar á
Íslandi og auk Knarrarness hefur
hún aðeins fundist á Bretlandi,
Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
Mordýr af tegundinni M. arctica eru heiðgul og fögur á að líta og geta orðið 4
mm löng (5. mynd A). Sumarið
2006 fannst þetta mordýr í miklum
fjölda milli hnullunga og steina á
norðurströnd Knarrarness við Eyja-
fjörð og er þetta stærsta mordýra-
tegund sem vitað er til að þrífist á
Íslandi. Þarna í fjörunni virtist mor-
dýrið lifa á rotnandi þara og þangi
(6. mynd). Tegundin dafnar víða
á heimskautasvæðum og finnst
stundum þúsundum saman undir
steinum og grashnausum í fugla-
björgum þar sem það nærist lík-
lega á þörungum. Á Íslandi voru
einungis tveir gamlir fundarstaðir
þekktir frá fornu fari, Grímsey
(WM Davies)7 og Ingólfshöfði
(Erling Ólafsson).
Þessi mordýrategund er ekki ein-
skorðuð við heimskautasvæði og
hefur fundist víða á vesturströnd
Noregs og einnig á suðvestur-
strönd Bretlands. Það er athyglis-
vert að í Noregi hefur tegundin
einnig fundist hátt upp til fjalla, í
yfir 2000 m hæð. Þar virðist hún
nærast á mosum sem vaxa á steinum.
Nýlegar rannsóknir á Spitsbergen
(Svalbarða) sýna að þessi tegund
eykur frostþol sitt á veturna með
því að losa sig við allt að 90% af
líkamsvatninu. Dýrin eiginlega
„þorna“ en taka upp vatn að nýju
þegar hitastigið fer yfir frostmark.8
Ekki er vitað hvort stranddýrin á
Íslandi hafi þennan eiginleika.
Á Knarrarnesi fannst einnig
sama sumar önnur óvenjuleg mor-
dýrategund, H. poseidonis. Þessi
tegund er ljósgrá og um 2 mm
löng (5. mynd B). Hún er bundin
við sjávarstrendur og virðist lifa
6. mynd. Norski mordýrasérfræðingurinn
Arne Fjellberg leitar að mordýrategund-
inni Megaphorura arctica á Knarrarnesi
2. október 2007. Ljósm.: Sidsel Christoffersen.
5. mynd. Nærmynd af mordýrategundun-
um tveimur frá Knarrarnesi. A. Potta-
morið Megaphorura arctica, sem er um
4 mm á lengd. B. Stökkmorið Halisotoma
poseidonis, sem er um 2 mm á lengd.
Ljósm.: Arne Fjellberg.
Daginn eftir, sunnudaginn 15.
desember, hafði veðrinu slotað og
þá fann bóndinn í Miðvík sjórekinn
bát með einu líki á Knarrarnesi.
Þekktu menn þar Steingrím frá
Látrum og var bátur sendur út að
Látrum daginn eftir til að segja
þessi sorglegu tíðindi, en hann gat
ekki lent.4 Heimamenn á Látrum
sáu bátinn og urðu að geta sér til
um erindið, en það var ekki fyrr
en Axel braust inn til Grenivíkur
sem tíðindin bárust heim að
Látrum. Þegar í ljós kom að tveir
menn hefðu verið í bátnum hófst
árangurslaus leit að Halli. Ærin sem
þeir voru að sækja fannst nærri
Miðvík, hornbrotin, og komst hún
ein lífs af úr þessari ferð. Lík Halls
fannst rétt fyrir páska á hjalla fyrir
ofan Knarrarnes. Hafði hann því
komist lífs af úr sjávarháskanum
en króknað í leit að afdrepi. Það
var í samræmi við þessi hörmu-
legu endalok að þegar Steingrímur
var jarðaður í Grenivíkurkirkju á
Þorláksmessu var veður svo vont
að einungis einn aðstandenda hans
gat fylgt honum til grafar. Það er af
bát þeirra feðga að segja að hann
var seldur til Hjalteyrar og var þar
fram undir 1990, er hann var seldur
til Grímseyjar. Þar var hann til 1997,
er hann var fluttur á Safnahúsið
á Húsavík þar sem hann er varð-
veittur (4. mynd). Báturinn var 1,62
brúttólestir, opinn og súðbyrtur úr
furu og eik, smíðaður af Steingrími
1933–1934 og sigldi undir nafninu
Steingrímur EA 644. – Þessi sorglegi
atburður mun ætíð tengdur
Knarrarnesi.