Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 27

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 27
27 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Fitjasef Fitjasef (Juncus gerardii) er sjaldgæfasta tegund sefættkvíslarinnar sem fundist hefur á Íslandi. Það fannst fyrst svo óyggjandi væri árið 1976 við Leiruvog í Mosfellssveit. Þar vex það á einum stórum og nokkrum litlum blettum í allþéttum breiðum. Arnþór Garðarsson, sem fyrstur fann sefið á þessum stað, lýsir fundarstaðnum nákvæmlega í grein sem hann birti í Náttúrufræðingnum árið eftir.9 Óstaðfestar heimildir eru til um fitjasef á Íslandi frá 18. öld, en engin eintök eru til í söfnum frá þeim tíma. Síðan hefur ekkert heyrst af fitjasefi á Íslandi fyrr en árið 2002, en þá fannst það á Knarrarnesi við Eyjafjörð og er nánar sagt frá þeim fundi hér að neðan. 7. mynd. Fitjasef á Knarrarnesi. Ljósm.: Hörður Kristinsson. 8. mynd. Ax af fitjasefi á Knarrarnesi. Ljósm.: Hörður Kristinsson. Þ að mun hafa verið síðla vetrar, nánar tiltekið 29. mars 2002, þegar einn höfunda þessarar greinar (H. Kr.) var á heimleið til Akureyrar úr skíðaferð austur á Fljótsheiði við annan mann, að ákveðið var að stansa við Knarrar- nes og ganga niður að sjónum og njóta góða veðursins. Þarna frammi á nesinu við uppsátrið vöktu tor- kennileg strá sem stóðu upp úr snjónum athygli (7. mynd). Strax var ljóst að þetta gátu ekki verið nein þau grös sem venjulega ber fyrir augu á Íslandi og við nánari athugun beindist grunurinn að fitja- sefi, sem síðan var staðfest betur eftir heimkomuna á sýnishornum þeim sem safnað var.9,10 Fundarstaðurinn var skoðaður betur í júní sumarið eftir og aftur í september 2003.11 Sefið vex þarna í þurru graslendi um 2 m ofan við efstu flóðmörk sjávar, á bletti sem er um 8 m á lengd og 7 m á breidd. Mesta þekju á þessum bletti höfðu auk fitjasefsins túnvingull, skrið- língresi, túnfífill og vallarsveifgras. Vaxtarstaðurinn er sunnan á nesinu, rétt til hliðar við uppsátrið þar sem bátar eru dregnir á land (1. mynd). Staðsetningin vekur strax upp þá spurningu hvort plantan muni hafa borist hingað frá útlöndum með varningi sem hér hafi verið skipað á land. Og jafnframt vaknar strax önnur spurning: Af hverju hér á Knarrarnesi en ekki á Gásum, þar sem aðalinnflutningshöfnin var? Í framhaldi af þessu var allt svæðið umhverfis höfnina skoðað ítarlega, sem og tóftirnar á Gásum, en hvergi fundust nein merki um fitjasef þar. Í Lýsingu Þingeyjarsýslu eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli er greint frá skipakomum að Knarrarnesi til forna og er þar vísað til Reykdæla- sögu.12 Í Reykdælasögu er staður- inn að vísu nefndur Knarrareyri við Eyjafjörð, og bendir frásögn hennar til að sá lendingarstaður hafi þótt vænlegri en Gásir fyrir varning sem átti að fara austur í Fnjóskadal eða Ljósavatnsskarð. Eins og áður segir vex fitjasefið í einni samfelldri breiðu og hvergi sést eitt einasta strá af því þar fyrir utan. Svo virðist því sem sefið hafi aðeins borist á einn stað og síðan skriðið út frá honum í allar áttir, án þess að sá sér út. Nú blómgast þetta sef mjög seint á sumrinu og því er líklega á mörkunum að það nái að þroska fræ nema þá í mjög hagstæðum sumrum (8. mynd). Því mætti ætla að mæling á skrið- hraða sefsins út til hliðanna gæti gefið vísbendingu um aldur þess á staðnum. Með það í huga voru merki sett við jaðra fitjasefsbletts- ins á Knarrarnesi haustið 2003 til að mæla skrið fitjasefsbreiðunnar út til hliðanna. Fyrstu vísbending- ar gefa til kynna að hún muni hafa þurft minnst 100–200 ár til að ná því flatarmáli sem hún hefur í dag. Hún gæti þó hæglega verið allmiklu eldri, enda hefur tíðarfar oft verið gróðri óhagstætt. Gæti sefið því hafa borist um eða fyrir 1800.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.