Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 46

Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 46
Náttúrufræðingurinn 46 loftið allt af rauðu ryki, og til sólarinnar var að sjá um hæstan dag sem rautt kol í eldi.4 Sveinn var talinn vel lærður, einkum í lögspeki og tungumálum. Hann setur blóðlitinn í samband við jarðhræringar og eldgos, sem vissulega er ekki fráleit skýring. Athygli vekur sú umsögn tveggja annála 1767, að menn hafi haldið blóðlitinn koma úr ‚blápungum‘. Þetta heiti er talið eiga við Beroe cucumis sem tilheyrir kambhveljum (Ctenophora), flokki holdýra, og er nokkuð títt í sjó kringum landið (3. mynd). Það er aflangt-krukkulaga, allt að 15 cm, fjólubláleitt og næstum gegnsætt, með átta bifháraröðum sem lýsa í myrkri.5 Í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar (1772/1975) er getið um blóðsjó á tveimur stöðum og sagt að „fyrirbrigði þetta sé kunnugt í öðrum löndum, en sjaldgæft á Íslandi“. Þeir taka upp heimild annálanna frá 1712 um firðina við Ísafjarðardjúp, og rita: Sjórinn var að morgni þessa dags blóðrauður í fjörðum þessum, en nóttina á undan hafði sjórinn verið sem eldur til- sýndar, svo að hér hefir verið um einhvers konar fosfórlýsingu að ræða. Ekki verður um það sagt hvort einhvers konar sjávar- skordýr eða sjávarplöntur, t.d. Jungermannia-tegundir, hafi valdið þessu.6 Þarna er líklega átt við maurildi, sem fyrr getur. (Gulur fosfór lýsir í myrkri. Sjávarskordýr merkir lík- lega smákrabba í sjó. Jungermannia er oftast notað um lifurmosa!). Þeir taka einnig upp heimild annála af blóðsjó á Austfjörðum 1638 og dettur í hug sú skýring að um sé að ræða blóð úr hvölum sem hafi verið að berjast: Árið 1638, án þess víst sé um árstíma, urðu fiskimenn varir við blóð í sjónum undan Aust- fjörðum. Rak það inn að landi í löngum rákum eða röstum. Þessa er hér einungis getið til samanburðar við það sem fyrr var skráð (grein 756c). Annars getur það vel verið, þegar hval- fiskar berjast í hafinu, en einkum þó þegar háhyrningar ráðast þúsundum saman á hina stór- vöxnu tannlausu hvali og rífa þá í sundur, að sjórinn verði blóð- litaður á mílulöngum svæðum. Þarna gæti verið að finna enn aðra orsök til hins rauða litar í sjónum.7 Í Ferðabók Ólafs Olaviusar (1780) getur hann um rauðan sjó á Austfjörðum 1776: Þegar ég árið 1776 fór út eftir Mjóafirði á Austurlandi, veitti ég því athygli um hádegisbilið, að rauðum bjarma sló á sjóinn, rétt eins og hann flyti í blóði. Svo var sjórinn dökkur að árar- nar sáust varla, þegar þeim var dýft í hann, en sjór sá sem tekinn var upp í austurstrogið, var að engu leyti óvanalegur.8 Ólafur hélt í fyrstu að dumbungs- veðri og skuggum fjalla væri um að kenna, en varð að gefa þá skýringu upp á bátinn þar sem sama fyrir- bæris varð vart á fleiri stöðum í Mjóafirði, Norðfirði og Reyðarfirði. Niðurstaða hans varð sú að litur- inn stafaði af „furðulegri mergð smásjávarskordýra [krabbadýra], sem eru undir vatnsborðinu og sjást því sjaldan, líkt og ósalt vatn litast rautt af Monoculus pulex.“ [vatnsflóm. / Vísað er í heimildir neðanmáls í bókinni.] Næst er heimild um blóðsjó á Austfjörðum haustið 1793 í Ferðabók Sveins Pálssonar, en þar segir í dagbók Sveins í mars 1794: „Með aukapósti frá Austurlandi hinn 20. febrúarmánaðar, bárust þau tíðindi úr Múlasýslu, að haustið áður hefði fjörður einn sýnzt rauður sem blóð.“ Til skýringar vísar Sveinn í Ferðabækur Eggerts og Bjarna og Ólafs Olaviusar.9 Hannes Finnsson biskup minnist á sama fyrirbæri í Kvöldvökum sínum 1794, XVI. kafla. Segist hann hafa verið að ræða við heimilisfólk sitt um ýmis undur: „… meðal annars um sjóinn, sem altalað var í fyrra, að orðið hefði að blóði á Austfjörðum.“ Hann setur á langa umræðu um þess háttar fyrirbæri; nefnir fjölmörg dæmi um rauðlitun vatna, fljóta og sjávar úr víðri veröld, svo og um Rauðár, Rauðavötn, Rauðahöf og fleiri slík örnefni. Ennfremur segir hann kaupfar hafa „fyrir norðan Melrakkasléttu hitt stóra bletti og fláka, sem hafa verið rauðir sem blóð, og ei ólíkleg tilgáta að hafi verið af rauðum þara.“ [Um 1800 var orðið þari notað um ýmsa þörunga.] Þessi kafli í Kvöldvökum er fróðlegur og dæmigerður fyrir upplýsingar- stefnuna sem þá var að ryðja sér til rúms. Er ljóst að Hannes hefur haft úr nokkru að moða um þetta efni. Rauðahafið við Egyptaland er að vísu ekki rautt en hefur þó rauðleit- an blæ af blágrænþörungi sem þrífst þar í miklu magni.10 Heimildir frá 19. öld Frá 19. öld hefur mér ekki tekist að finna samtímaheimildir um blóð- sjó. Þorvaldur Thoroddsen segir í Lýsingu Íslands: „Blóðsjór hefir 3. mynd. Blápungur (Beroe cucumis). Ljósm.: Pálmi Dungal.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.