Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 62

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 62
Náttúrufræðingurinn 62 Aðrar fiskitegundir Á undanförnum 10 árum hefur verið nær óslitið hlýindaskeið í hafinu umhverfis Ísland og samfara því hefur meðalhiti á sniðum sem vöktuð hafa verið um árabil hækkað u.þ.b. 1° C.7 Á sama tíma hafa orðið svipaðar breytingar og hér hefur verið lýst hvað varðar stóru sænál hjá fjölmörgum öðrum fisktegundum á Íslandsmiðum.7–11 Þannig hafa fundist við landið á þriðja tug suðrænna fisktegunda sem ekki voru áður þekktar innan 200 mílna lögsögunnar.11 Nokkrar sjaldgæfar flækingstegundir hafa einnig fundist oftar en áður á undan- förnum árum (t.d. augnasíld, horn- fiskur, steinsuga).11 Þá hafa margar algengar fisktegundir sem voru taldar á norðurmörkum útbreiðslu- svæðis síns fyrir sunnan land fundist víðar við landið (t.d. lýsa, spær- lingur, litla brosma, fjólumóri).11 Síðast en ekki síst hafa sumir af stærri nytjastofnum á Íslandsmið- um stækkað mjög og aukið veru- lega við útbreiðslusvæði sitt (t.d. síld, ýsa, kolmunni, skötuselur).7–10 Líklegasta skýring á þessum miklu breytingum í útbreiðslu og að einhverju leyti stofnstærð hefur verið talin sú hlýnun sem orðið hefur í sjónum við landið á undan- förnum 10 árum.7,11 Niðurlag Aðflutningur suðrænna fisktegunda með sérstakar vistfræðilegar þarfir og samkeppniseiginleika inn á ný hafsvæði sem og víðtækar breyt- ingar í útbreiðslu og stærð stofna sem fyrir eru geta haft svæðis- bundin áhrif á fæðutengsl og orku- flæði í vistkerfinu. Á þessu stigi er ógerningur að segja fyrir um áhrif þess háttar breytinga á langtíma- afkomu einstakra dýrastofna og þróun vistkerfis sjávar við Ísland. Á tímum breytinga eru víðtækar og reglubundnar rannsóknir á umhverfinu og helstu lífveruhóp- um vistkerfisins nauðsynlegar til þess að öðlast frekari skilning á þessum breytingum og afleiðing- um þeirra. Summary Recent increase in snake pipe- fish (Entelurus aequoreus) in Icelandic waters Snake pipefish has until recently been considered to be relatively rare in Icelandic waters and confined to the southwest coast of Iceland. In 2001 snake pipe fish was recorded for the first time in a long while in Icelandic waters as one specimen was found off the west coast. Further records off the south and west coast were registered in 2002, 2003 and 2004, and in the autumn of 2004 snake pipe fish was also re- corded at two locations off the north coast. These last records demonstrate that snake pipe fish can now be consid- ered to be distributed all around Iceland. A similar increase in abundance and distribution has also recently been ob- served for snake pipefish in several other areas of the northeastern North Atlantic Ocean. Þakkir Íslenskum sjómönnum er þakkað fyrir að halda til haga sjaldséðum fiskum og koma í hendur starfsmanna Hafrannsóknastofnunarinnar. Án áhuga og aðstoðar þeirra væri þekking á fiskafánunni við Ísland mun takmarkaðri en raun ber vitni. Þá viljum við þakka Mark Henry og prófessor Mike Harris fyrir leyfi til að birta myndir þeirra. Heim ild ir Dawson, C.E. 1986. Syngnathidae. Fishes of the north-eastern Atlantic and 1. the Mediterranean (ritstj. Whitehead, P.J.P., Bauchot, M.-L., Hureau, J.-C., Nielsen, J. & Tortonese, E.). UNESCO, París, 2. bindi. 628–629. Gunnar Jónsson & Jónbjörn Pálsson 2006. Íslenskir fiskar. Vaka-2. Helgafell, Reykjavík. 336. bls. Kirby, R.R., Johns, D.G. & Lindley, J.A. 2006. Fathers in hot water: 3. rising sea temperatures and a Northeastern Atlantic pipefish boom. Biology Letters 2. 597–600. Harris, M.P., Beare, D., Toresen, R., Nøttestad, L., Kloppmann, M., 4. Dörner, H., Peach, K., Rushton, D.R.A., Foster-Smith, J. & Wanless, S. 2007. A major increase in snake pipefish (Entelurus aequoreus) in northern European seas since 2003: potential implications for seabird breeding success. Marine Biology 151. 973–983. Rusyaev, S.M., Dolgov, A.V. & Karamushko, O.V. 2007. Captures of Snake 5. Pipefish Entelurus aequoreus in the Barents and Greenland Seas. Journal of Ichthyology 47. 544–546. Fleischer, D., Schaber, M. & Piepenburg, D. 2007. Atlantic snake pipefish 6. (Entelurus aequoreus) extends its northward distribution range to Svalbard (Arctic Ocean). Polar Biology 30. 1359–1362. Héðinn Valdimarsson, Höskuldur Björnsson & Kristinn Guðmundsson 7. 2005. Breytingar á ástandi sjávar á Íslandsmiðum og áhrif þeirra á lífríkið. Hafrannsóknastofnunin Fjölrit 116. 23–28. Ólafur S. Ástþórsson, Ástþór Gíslason & Steingrímur Jónsson 2007. 8. Climate variability and the Icelandic marine ecosystem. Deep-Sea Research II 54. 2456–2477. Ásta Guðmundsdóttir & Þorsteinn Sigurðsson 2004. Veiðar og útbreiðsla 9. íslensku sumargotssíldarinnar að haust- og vetrarlagi árin 1978–2003. Hafrannsóknastofnunin Fjölrit 104. 42 bls. Jón Sólmundsson, Einar Jónsson & Höskuldur Björnsson 2007. Aukin 10. útbreiðsla skötusels við Ísland. Náttúrufræðingurinn 75. 13–20. Ólafur S. Ástþórsson & Jónbjörn Pálsson 2006. New fish records and 11. records of rare southern fish species in Icelandic waters in the warm period 1996–2005. International Council for the Exploration of the Sea, CM 2006/C20. 22 bls. Um höfundana Ólafur S. Ástþórsson (f. 1952) lauk B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1975 og Ph.D.-prófi í sjávar- líffræði frá University of Aberdeen, Skotlandi árið 1980. Ólafur hefur starfað á Hafrannsóknastofnun- inni síðan 1981 sem sérfræðingur við dýrasvifsrann- sóknir, sviðstjóri á sjó- og vistfræðisviði og aðstoðar- forstjóri. Jónbjörn Pálsson (f. 1949) lauk B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1973 og M.Sc.-prófum frá University of Southern Mississippi, Mississippi, Bandaríkjunum árið 1979 og University of Guelph, Ontario, Kanada árið 1982. Jónbjörn hefur starfað á Hafrannsóknastofnuninni síðan 1983, lengst af sem sérfræðingur við flatfiskarannsóknir. Póst- og netföng höfunda/Authors’ addresses Ólafur S. Ástþórsson osa@hafro.is Jónbjörn Pálsson jonbjorn@hafro.is Hafrannsóknastofnunin Skúlagötu 4 Pósthólf 1390 IS-121 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.