Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 5
VIRK
DAVÍÐ ÞORLÁKSSON formaður stjórnar VIRK 2020-2021
Sanngjarnt árangursmat
Árangur VIRK nægir ekki einn og sér til að
auka atvinnuþátttöku og virkni í samfélaginu.
Í aðdraganda þess að ASÍ og SA stofnuðu
VIRK 19. maí 2008 lýstu stjórnvöld yfir vilja
til margvíslegra aðgerða til að sporna gegn
miklu og ótímabæru brottfalli starfsfólks af
vinnumarkaði.
Aukin starfsendurhæfing með stofnun
VIRK átti að vera væri einn þáttur í mikilli
kerfisbreytingu í starfsendurhæfingar- og
örorkumálum sem þyrfti að eiga sér stað til
að sporna gegn vaxandi örorkutíðni. Sú kerfis-
breyting hefur hins vegar ekki átt sér stað.
Nú stendur yfir heildarúttekt á vegum
félagsmálaráðuneytisins á þjónustu VIRK.
Úttektin byggir á bráðabirgðaákvæði II í
lögum nr. 60/2012 þar sem segir m.a.
að óháð nefnd sérfræðinga skuli falið að
leggja mat á það hvort þjónusta starfs-
endurhæfingarsjóða hafi haft mælanleg
áhrif á örorkubyrði lífeyrissjóða og almanna-
trygginga og nýgengi örorku á starfstíma
starfsendurhæfingarsjóða.
Stofnaðilar VIRK, aðilar vinnumarkaðarins,
hafa því ávallt litið svo á að ekki væri hægt að
setja árangur VIRK í samhengi við örorkubyrði
lífeyrissjóða og almannatrygginga nema
verkefninu væri haldið áfram eins og
fyrirhugað var á sínum tíma og stigin væru
fleiri skref til breytinga í þessu umhverfi.
Ekki sé sanngjarnt eða raunhæft að meta
árangur af starfsemi VIRK út frá stærðum
sem eiga sér fjölmarga og sterka áhrifavalda
aðra en þá sem snúa að starfsendurhæfingu
og skipulagningu hennar. Það sé hins vegar
alltaf sjálfsagt að meta árangur og starf
VIRK með sanngjörnum og viðurkenndum
aðferðum á hverjum tíma og VIRK er
sífellt að leita leiða til að þróa og bæta
það árangursmat í samstarfi við fagaðila
innanlands og erlendis.
Það er því niðurstaða stjórnar VIRK að ekki
sé raunhæft eða rétt að meta árangur VIRK
í dag í samhengi við örorkubyrði lífeyrissjóða
og TR eins og gert er ráð fyrir í ofangreindu
bráðabirgðaákvæði II í lögum nr. 60/2012.
Úttektin verði að taka mið af því að einungis
sá hluti þeirra kerfisbreytinga sem snýr að
starfsemi VIRK hafa verið framkvæmdur en
lagabreytingar látið á sér standa. Forsendur
úttektarinnar eru því ófullkomnar og eðlilegra
væri að fram færi heildstæð úttekt á þörf fyrir
umbætur á kerfinu sem heild.
Kerfisbreytinga er þörf
Aðilar vinnumarkaðarins voru í góðri trú um
að hrint yrði í framkvæmd aðgerðum og
breytingum í kjölfar stofnunar VIRK 2008 og
sátt myndi nást um breytingar á bótakerfinu.
Það gerðist ekki.
Augljóst er að markmið um lækkun nýgengis
örorku nást ekki með starfsendurhæfingu
einni og að ríkisvaldið þarf að stuðla að
þeim kerfisbreytingum sem að var stefnt.
Árangur af starfsemi VIRK er óumdeildur
en útilokað er að mæla áhrif af starfsemi
VIRK einni saman á örorkubyrði og nýgengi
örorku þar sem fjölmargir aðrir áhrifaþættir
koma við sögu. Eðlilegt er að úttekt á
nýgengi örorku taki til allra þeirra þátta og
aðila sem áhrif hafa, einkum örorkukafla
laga um almannatryggingar, reglugerðar um
örorkumat, laga um lífeyrissjóði og starfsemi
Tryggingastofnunar ríkisins.
Stofnaðilar VIRK kalla eftir að ráðist verði í
þær kerfisbreytingar sem stjórnvöld hafa
margsinnis lýst yfir að þau stefni að síðastliðin
15 ár í sátt og samráði við stofnendur VIRK
og ÖBÍ.
þjónustuþegum fannst VIRK hafa aðlag-
að þjónustu að þörfum þeirra á tímum
Covid-19. Það voru 87% þjónustuþega
sem svöruðu sem töldu að VIRK hefði
tekist vel að aðlaga þjónustuna.
Ráðgjafar, starfsmenn og þjónustuaðilar
eiga hrós skilið fyrir snör viðbrögð og
þrautseigju sem skilaði sér í sem minnstu
rofi á starfsendurhæfingu á erfiðum
tímum. Stjórn og framkvæmdastjórn
VIRK þurftu einnig að aðlaga sig nýjum
aðstæðum og bregðast við nýjum
áskorunum í starfsemi og rekstri VIRK
og kann ég þeim hinar bestur þakkir fyrir
farsælt og árangursríkt samstarf.
Árangur og ávinningur
Um áramótin höfðu alls 19.358 hafið
starfsendurhæfingu hjá VIRK frá því
að fyrsti einstaklingurinn hóf starfs-
endurhæfingu haustið 2009. Yfir 80
prósent þeirra sem til VIRK hafa leitað
hafa ekki haft starfsgetu vegna andlegra
sjúkdóma eða stoðkerfisvandamála. Um
77% þeirra tæplega 12.000 einstaklinga
sem lokið hafa þjónustu, útskrifast frá
VIRK, teljast virkir á vinnumarkaði við
útskrift, eru með vinnugetu og fara annað
hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit
eða lánshæft nám.
VIRK er því að ná árangri. Árangri sem felur
í sér tugmilljarða árlegum ávinningi fyrir
samfélagið eins og sýnt hefur verið fram
á í árlegum skýrslum Talnakönnunar sem
metið hefur ávinninginn af starfsemi VIRK
undanfarin átta ár. Ábati samfélagsins af
starfsendurhæfingu á vegum VIRK skilar
sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og
ríkisins í formi minni útgjalda og aukinna
skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur
hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur og
ekki síst aukin lífsgæði þeirra sem felast í
því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.
5virk.is