Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Side 7
VIRK
fagaðila og bæta upplýsingagjöf bæði til
einstaklinga í þjónustu og samstarfsaðila
um allt land. Ný vefsíða var tekin í notkun
á árinu þar sem lögð er áhersla á mikla og
góða upplýsingagjöf til bæði einstaklinga
í þjónustu og samstarfsaðila VIRK um allt
land. Þar er m.a. að finna mjög gott yfirlit yfir
virkniúrræði um allt land en virkniúrræði eru
fjölbreytt gjaldfrjáls úrræði sem einstaklingar
geta nýtt sér eftir þörfum og aðstæðum.
Þetta yfirlit er einstakt og gagnast bæði
einstaklingum með skerta starfsgetu, fag-
aðilum og samfélaginu í heild sinni. Á nýjum
vef VIRK er einnig að finna efni sem sett
er upp á gagnvirkan hátt og spannar allt
ferli atvinnuleitar. Þessi síða heitir „Aftur
í vinnu“ og nýtist bæði einstaklingum í
starfsendurhæfingu sem og öllum sem eru í
atvinnuleit. Líney Árnadóttir gerir betur grein
fyrir þessari þjónustu á vefsíðu VIRK hér
aftar í ársritinu.
Gæði og fagmennska
Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla
á að þjónusta VIRK sé fagleg og standist
tiltekin gæðaviðmið. Öll starfsemi VIRK
er vottuð samkvæmt ISO 9001 staðlinum
og gæðaúttektir hafa nú um margra ára
skeið verið framkvæmdar af ytri aðilum og
niðurstaða þeirra hefur verið með ágætum.
Sífelld vinna á sér stað við að straumlínulaga
ferla hjá VIRK og ávallt er stefnt að því að
gera þjónustuna bæði hagkvæmari og
betri. VIRK er einnig með jafnlaunavottun
ÍST 85:2012 og stefnt er að því að fá vottun
á sviði upplýsingaöryggis ISO 27001 í
lok þessa árs. Til viðbótar við þetta hefur
VIRK nú um nokkurra ára skeið fengið
viðurkenningar sem Framúrskarandi fyrir-
tæki hjá Creditinfo, Opinbert fyrirmyndar-
fyrirtæki hjá Viðskiptablaðinu og Keldunni
og Fyrirmyndarfyrirtæki ársins hjá VR.
Þjónusta VIRK á tímum
Covid-19
Árið 2020 var erilsamt í starfsemi VIRK
því auk mikils fjölda nýrra einstaklinga
í þjónustu þurftu bæði þjónustuþegar,
ráðgjafar og starfsmenn VIRK að takast á við
ýmsar áskoranir sem fylgdu Covid–19. Lögð
var áhersla á að halda uppi góðri þjónustu
þrátt fyrir samkomutakmarkanir og aðrar
hindranir og bæði ráðgjafar, starfsmenn og
þjónustuaðilar sem starfa fyrir VIRK eiga
mikinn heiður skilinn fyrir útsjónarsemi og
snör viðbrögð. Á mjög skömmum tíma var
talsverðum hluta þjónustunnar komið yfir
í fjarþjónustu með aðstoð tækninnar og
í kjölfarið urðu til mörg ný rafræn úrræði
og þjónustuleiðir. Einstaklingar í þjónustu
kunnu vel að meta snögg viðbrögð VIRK
við breyttum aðstæðum eins og eftirfarandi
tilvitnun í þjónustuþega ber með sér:
„Sérstakt hrós fyrir skjót viðbrögð við fyrstu
Covid bylgjunni, fyrirvaralaust sáu fagaðilar
VIRK sér fært um að snara námskeiðum
og fundum yfir í fjarskipti sem er algerlega
aðdáunarvert og virkaði hnökralaust að
mínu mati. Ég er endalaust þakklát fyrir alla
þá góðu þjónustu sem ég fékk frá VIRK.“
Hér aftar í ársritinu er að finna upplýsingar
um ýmsar niðurstöður úr þjónustukönnun
VIRK á árinu 2020 ásamt nokkrum tilvitn-
unum í ummæli einstaklinga sem svöruðu
könnuninni.
Forvarnir fyrir alla
Starfsendurhæfingarþjónusta er gríðarlega
mikilvæg og skilar miklum ávinningi bæði til
einstaklinga og samfélagsins í heild sinni. Það
er hins vegar ekki síður mikilvægt að leggja
áherslu á að koma í veg fyrir að einstaklingar
þurfi á starfsendurhæfingarþjónustu að
halda og þar skipta forvarnir miklu máli
ásamt því að tryggja að innviðir, stuðnings-
kerfi og menning samfélagsins hvetji og
styðji einstaklinga til þátttöku og virkni.
Forvarnir eru hlutverk okkar allra. Við
berum þar ábyrgð bæði sem einstaklingar
og samfélag. Hluti af starfsemi VIRK felst
því í forvörnum og á undanförnum árum
hefur VIRK lagt meiri áherslu á þennan þátt
starfseminnar. Í starfsendurhæfingarferlinu
verður til mikil þekking og reynsla sem
mikilvægt er að koma áfram með það að
markmiði að draga úr þörf fyrir starfs-
endurhæfingu til framtíðar. Í því samhengi
heldur VIRK m.a. úti vefsíðunni www.
Undanfarin ár
hefur verið gert
átak í því hjá VIRK að
aðstoða sérstaklega þá
einstaklinga sem ekki
hafa fulla vinnugetu í lok
starfsendurhæfingar og
þurfa því meiri þjónustu
og aukna aðstoð út á
vinnumarkaðinn.“
velvirk.is þar sem er að finna mikið efni sem
gagnast bæði einstaklingum og stjórnendum
í atvinnulífinu. Efnið á vefsíðunni byggir
einnig á nýjustu rannsóknum og viðmiðum
í stjórnunar- og vellíðunarfræðum. Í gegnum
www.velvirk.is hefur VIRK miðlað fræðslu,
ráðleggingum, hugmyndum, tækjum og
tólum sem hafa það að markmiði að aðstoða
bæði einstaklinga og fyrirtæki við að standa
vörð um heilsu og vinnugetu starfsmanna.
Sérstök fræðslusíða vegna Covid-19 var
byggð upp á þessum vef þar sem m.a.
er fjallað um hreyfingu, útivist, nám,
heimavinnu og ráð til stjórnenda á þessum
sérstöku tímum.
Hluti forvarnarverkefnis VIRK felst einnig í að
aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að byggja
upp heilsueflandi umhverfi á vinnustöðum
og á vormánuðum 2019 var ákveðið að
VIRK færi í formlegt samstarf með Embætti
landlæknis og Vinnueftirlitinu við þróun
viðmiða fyrir „Heilsueflandi vinnustað“ en
markmiðið er að stuðla að betri heilsu og
vellíðan á vinnustöðum. Um 13 stofnanir
og fyrirtæki taka þátt í þróun viðmiðanna og
stefnt er að því að þau geti orðið aðgengileg
fyrir alla vinnustaði seinni hluta ársins 2021.
Aukin atvinnutenging í starfs-
endurhæfingu
Mikil þróun hefur átt sér stað hjá VIRK í að
auka atvinnutengingu í starfsendurhæfingu.
Þetta er í takt við nýjustu rannsóknir og
reynslu í þróun starfsendurhæfingar. Ráð-
gjafar VIRK hafa frá upphafi verið í góðu
samstarfi við atvinnulífið en undanfarin ár
hefur verið gert átak í því hjá VIRK að aðstoða
sérstaklega þá einstaklinga sem ekki hafa
fulla vinnugetu í lok starfsendurhæfingar og
þurfa því meiri þjónustu og aukna aðstoð út
á vinnumarkaðinn.
Sérstakir atvinnulífstenglar hafa verið
ráðnir til starfa sem hafa m.a. það hlutverk
að byggja upp góð tengsl við fyrirtæki og
stofnanir á vinnumarkaði og finna störf við
hæfi fyrir einstaklinga sem eru að ljúka
starfsendurhæfingarferlinu hjá VIRK. Á
árinu 2020 fengu 432 einstaklingar aðstoð
atvinnulífstengla VIRK í lok þjónustu. 189
fóru í starf og 20 í nám og um áramótin voru
135 af þessum einstaklingum enn í þjónustu
VIRK. Þetta er gríðarlega góður árangur,
sérstaklega í ljósi ástandsins á vinnumarkaði
á árinu 2020. Hér hafa atvinnurekendur
lagt sig fram um að aðlaga störf við hæfi fyrir
einstaklinga með skerta starfsgetu og unnt
er að fullyrða að flestir þessara einstaklinga
7virk.is