Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 11

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 11
 VIRK í endurhæfingu og á endurhæfingarlífeyri með það í huga að allra leiða sé leitað til að auka vinnugetu ungra einstaklinga áður en örorkumat er framkvæmt. Til að TR geti gert slíkar ráðstafanir þurfa að vera til endurhæfingaraðilar eins og VIRK sem geta boðið upp á slíka þjónustu. Lægra nýgengi örorku undanfarin tvö ár má þannig skýra með bæði ákvarðanatöku og aukinni þjónustu og samspili ólíkra stofnana hvað þetta varðar og þar skiptir þjónusta VIRK miklu máli. Um helmingur þeirra sem er á örorkulífeyri hjá TR fær einnig greiddan örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum. Mynd 2 sýnir upplýsingar um þróun örorkulífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum settar fram sem hlutfall af hverjum aldurshópi. Eins og sjá má þá eru þessir ferlar frekar stöðugir yfir langan tíma og benda ekki til almennrar hækkunar á tímabilinu þótt oft hafi verið rætt um þessa þróun á öðrum nótum. Ef þessir ferlar eru settir í samhengi við þær örorkulíkur sem lífeyrissjóðir hafa notað í sínum útreikningum þá eru rauntölur heldur lægri en líkurnar 4. Ef mynd 1 er skoðuð þá sést að á undanförn- um áratug hefur nýgengi örorku frekar lækkað ef eitthvað er og mynd 2 gefur ekki til kynna hlutfallslega fjölgun örorkulfeyrisþega lífeyrissjóða frá 2007 – 2018 þó eðlilega séu einhverjar sveiflur á milli ára. Reyndar þarf að taka inn í myndina að samsetning einstaklinga á vinnumarkaði hefur líka breyst þar sem fleiri erlendir ríkisborgarar eru við störf hér á landi í dag en fyrir áratug síðan. Við getum hins vegar velt því fyrir okkur hvort við höfum ekki, þrátt fyrir mikil efnahagsleg áföll, gallað framfærslukerfi og þann faraldur skertrar starfsgetu sem lýst var hér að framan, náð þó nokkrum árangri í að viðhalda vinnugetu og virkni einstaklinga. Án efa hefðum við getað gert margt betur en það er samt sem áður full ástæða til að benda á það sem vel hefur verið gert og almennt hafa fagaðilar, fyrirtæki og stofnanir í íslensku velferðarkerfi lagt sig fram um að gera sitt allra besta við oft erfiðar aðstæður. VIRK hefur frá upphafi lagt áherslu á að mæla árangur starfseminnar. Allar þær mælingar sem unnt hefur verið að framkvæma bæði innan VIRK og af utanaðkomandi aðilum sýna að árangurinn er mikill og þær sýna glöggt hversu miklu máli skiptir fyrir samfélagið að fjárfesta í fólki og aðstoða fólk í vanda. Niðurstaðan er sú sama hvort heldur sem mælikvarðarnir eru fjárhagslegir eða mat einstaklinga á líðan sinni og lífsgæðum (sjá nánar nokkrar helstu niðurstöður þessara mælinga hér á næstu síðum ársritsins). Það verður hins vegar aldrei hægt að meta árangur VIRK á heildstæðan hátt með því að skoða hvað hefði gerst ef VIRK hefði ekki verið til staðar. Sú sviðsmynd er ekki til. Það er hins vegar hægt að fullyrða með þeim rökum og mælingum sem að framan greinir að VIRK hefur haft mikil og jákvæð áhrif á þátttöku, lífsgæði og líðan þúsunda einstaklinga á undanförnum árum. Það má einnig leiða að því líkum að staðan hér á landi hvað varðar fjölda á örorku væri mun verri í dag ef VIRK hefði ekki verið til staðar undanfarinn áratug. Starfsemi VIRK hefur þannig, ásamt ýmsum öðrum þáttum, mildað verulega áhrif efnahagslegra áfalla á starfsgetu einstaklinga ásamt því að draga úr áhrifum þess faraldurs minnkaðrar starfsgetu sem farinn var af stað hér á landi og í öðrum vestrænum ríkjum talsvert áður en VIRK var stofnað. Heimildir 1. Alize J. Ferrari, Amanda J. Baxter, Adele Jane Somerville o.fl. Global variation in the prevalence and incidence of major depressive disorder: A systematic review of the epidemiological literature. Psycho- logical Medicine 2013; 43: 471-483. 2. Talnabrunnur Landlæknisembættisins, ágúst 2017. 3. Fatma Al-Maskari. Lifestyle Diseases: An Economic Burden on the Health Services. UN Chronicle. Sameinuðu þjóðirnar. 4. Talnakönnun. Örorka á Íslandi - þróun frá 2007 og samanburður eftir aldri og kyni. Skýrsla fyrir VIRK – Starfsendur- hæfingarsjóð, febrúar 2021. Heimild: Hagstofa Íslands, Talnakönnun. Ár Örorkulífeyrir lífeyrissjóða Hlutfall af hverjum aldurshópi tímabilið 2007-2018 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 18-19 ára 30-39 ára 60-64 ára20-29 ára 50-59 ára40-49 ára 65-66 ára 25% 20% 15% 10% 5% 0% Mynd 2 11virk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.