Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 20
UMRÆÐAN UM AUKIÐ
ALGENGI GEÐRASKANA
Í ÍSLENSKU SAMFÉLAGI
HEFUR SJALDAN VERIÐ
MEIRI EN NÚ.
F
jölmiðlum er tíðrætt um viðfangs-
efnið og hafa mörg félaga- og
góðgerðasamtök, heilbrigðisstofnanir
og fagfélög heilbrigðisstétta, bent á
að geðheilbrigðisvandi íslensku þjóðarinnar
sé umfangsmikill og að hann fari vaxandi.
Nýlegt og eftirminnilegt átak Geðhjálpar
(kennt við töluna 39 og vísar til fjölda
sjálfsvíga árið 2019) er vitnisburður um þá
vitundarvakningu sem átt hefur sér stað
hérlendis. Í átakinu er skorað á stjórnvöld
og samfélag að setja „geðheilsu í forgang“
og skrifuðu tugir þúsunda Íslendinga undir
áskorun þess efnis1. Svipað má segja um
stöðuna á heimsvísu en samkvæmt tölum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) er
áætlað að umfang geðraskana í heiminum
hafi aukist um 13% síðasta áratuginn og er
þunglyndi talið vera ein helsta ástæða örorku
– eða skertrar starfsgetu – í heiminum í dag 2 .
Í nýlegri heilbrigðisstefnu hérlendis fyrir árið
2030 er stigið nýtt skref til úrbóta og lagðar til
auknar aðgerðir til að efla geðrækt, m.a. með
starfrækslu geðheilsuteyma um land allt og
markvissri fjölgun starfandi sálfræðinga á
heilsugæslustöðvum3. En þrátt fyrir aukna
áherslu WHO, Landlæknisembættis, heil-
brigðisráðuneytis og félagasamtaka á mikil-
vægi geðheilsu benda mælingar til þess að
vandinn fari ekki minnkandi. Hvað veldur?
Í þessari grein er leitast við að draga upp
mynd af geðheilbrigðisvandanum út frá
ýmsum hliðum. Gagnauppspretturnar eru
margvíslegar og af þeim sökum er yfir-
litið nokkuð ítarlegt. Athygli vekur að þó
niðurstöðurnar beri flestar að sama brunni,
þ.e. þunglyndis- og kvíðaeinkenni virðast
sífellt algengari (og/eða umfangsmeiri) þá er
einnig að sjá ýmsar brotalamir og misræmi í
yfirliti gagna og rannsókna.
Hvernig eru geðraskanir
skilgreindar?
Í raun má segja að hugtakið „geðraskanir“
(e. mental disorders) sé nokkurs konar
regnhlífarhugtak, notað yfir ýmis konar sjúk-
dóma og atferli sem valda truflun í andlegu
lífi og/eða hegðunarmynstri einstaklinga4. Þó
hugtakið sé þægilegt í notkun er það nokkuð
villandi fyrir leikmenn. Á margan hátt má
segja að orðið gefi til kynna að geðraskanir
séu samleitur flokkur sjúkdóma og atferlis
ANDLEGRI HEILSU
ÍSLENDINGA HRAKAR
HVAÐ VELDUR?
SVANDÍS NÍNA JÓNSDÓTTIR verkefnastjóri hjá VIRK
20 virk.is