Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 21
VIRK
en ekki jafn víðfeðmur og raun ber vitni.
Bæði fagmenn og leikmenn nota hugtakið
á víxl, burtséð frá því hvort verið sé að
fjalla um þunglyndis- og kvíðaraskanir eða
geðsjúkdóma á borð við geðhvarfasýki eða
geðklofa. Á Íslandi eru sjúkdómar og tengt
atferli skráð samkvæmt fyrirmælum 10.
útgáfu alþjóðlegu tölfræðiflokkunar sjúkdóma
og skyldra heilbrigðisvandamála (kölluð ICD-
10 í daglegu tali), gefin út af WHO. Fimmti
kafli flokkunarkerfisins fjallar um geð- og
atferlisraskanir í hvorki meira né minna en
11 aðalköflum, sem síðan kvíslast í enn fleiri
undirkafla5. Aðalkaflarnir endurspegla vel
hversu breytilegar geðraskanir eru, allt frá
heilabilun til fíkniraskana, frá þroskaheftingu
til þunglyndis- og kvíðaraskana, frá geð-
hvarfasýki til geðklofa6. Vegna þessa breyti-
leika þarf að vanda til verka í umræðunni um
geðraskanir og greina á milli hvaða veikindi
eða raskanir verið er að fjalla um þá stundina.
Andleg heilsa Íslendinga
Hér á landi er geðheilsa og algengi geð-
raskana einkum mæld í sjálfsmatskönn-
unum á andlegri heilsu, með skimunum á
kvíða- og depurðareinkennum, í þunglyndis-
lyfjanotkun, í sjálfsvígstölum, í fjölda vitjana
og símtala til heilsugæslustöðva og í algengi
örorku á grundvelli geðraskana. Undan-
farin ár (og jafnvel áratugi) sjást skýrar
vísbendingar í þessum gögnum um hnignun
í andlegri líðan þjóðarinnar.
Í könnunum Landlæknisembættisins Heilsa
& líðan Íslendinga árin 2007, 2012, 2017
og 2019-2020 er að sjá marktæka aukningu
á hlutfalli fullorðinna einstaklinga sem meta
andlega heilsu sína sæmilega eða lélega, frá
17% árið 2007 í 24% árið 2019 og 28% árið
2020 (mynd 1). Konur eru líklegri en karlar
til að meta andlega heilsu sína sæmilega
eða lélega öll árin. Jafnvel þó við tækjum
2020 mælingunum með ákveðnum fyrirvara
vegna Covid-19 farsóttar er hin stígandi leitni
í gögnunum nokkuð ljós frá árinu 2007.
Svipað er að segja um andlega heilsu ung-
menna. Umfangsmiklar þýðiskannanir Ran-
sókna og greiningar meðal nemenda í 8.-10.
bekkjum grunnskóla sýna að líkt og meðal
fullorðinna, hefur mat ungmenna á andlegri
heilsu sinni hnignað. Árið 2012 mátu um
3% nemenda í unglingadeildum grunnskóla
andlega heilsu sína slæma eða mjög slæma
borið saman við 13% þeirra árið 2020
(mynd 2).
Í könnunum Rannsókna og greiningar er
einnig skimað fyrir helstu depurðar- og
kvíðaeinkennum. Líkt og sjá má á mynd
3 er algengara nú að ungmenni haki við
helstu einkenni depurðar en áður. Um 19%
nemenda voru stundum eða oft niðurdregnir
eða daprir árið 2012, um 24% árin 2016 og
2018 og 29% árið 2020. Einnig er algengara
að nemendur finni til aukins áhugaleysis
(lítillar eða engrar ánægju)7. Árið 2012
sögðu 16% þeirra að það ætti stundum
eða oft við um þá að vera „ekki spenntir
fyrir að gera nokkurn hlut“ borið saman
við talsvert hærra hlutfall árið 2020 (24%).
Hér gilda þó sömu fyrirvarar og áður, farsótt
og sóttvarnaraðgerðir 2020 gætu hafa ýkt
depurðareinkenni á árinu 2020.
Skimleit á einkennum þunglyndis og
kvíða meðal nemenda í unglingadeildum
í grunnskólum í Breiðholti sýnir svipaðar
niðurstöður. Á tímabilinu 2009-2015 varð
talsverð aukning á hlutfalli nemenda sem
mældist yfir viðmiðunarmörkum, þá sér-
staklega meðal stúlkna. Hlutfall stúlkna
sem var yfir viðmiðunarmörkum í einkenn-
um þunglyndis meira en tvöfaldaðist á
tímabilinu og hlutfall þeirra sem var yfir
viðmiðunarmörkum í einkennum kvíða fjór-
faldaðist (ekki sýnt á mynd)8.
Tíðari samskipti við
heilsugæslustöðvar vegna
andlegs vanda ungmenna
Samfara hnignun á andlegri líðan má búast
við aukinni eftirspurn eftir geðheilbrigðis-
þjónustu. Yfirgripsmikil rannsókn Ingu Dóru
Sigfúsdóttur o.fl. (2008) á andlegri líðan
ungmenna í 9. og 10. bekkjum grunnskóla á
tíu ára tímabili (1997, 2000, 2003 og 2006)
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
15%
10%
5%
0%
30%
20%
10%
0%
Karlar
Niðurdregnir eða daprir
Konur
Andleg heilsa: slæm / mjög slæm
Alls (konur og karla)
Ekki spenntir fyrir að gera nokkurn hlut
Hlutfall fullorðinna sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða lélega
árin 2007, 2012, 2017, 2019 og 2020
Hlutfall nemenda í 8-10. bekkjum grunnskóla sem meta heilsu sína
slæma eða mjög slæma
Hlutfall nemenda í 8-10. bekkjum grunnskóla sem segjast stundum eða oft
hafa upplifað tiltekin einkenni síðastliðna viku fyrir könnun
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Heimild: Landlæknisembættið (Heilsa og líðan)
Heimild: Rannsóknir og greining
Heimild: Rannsóknir og greining
2007 2012 2017 2019 2020
2012 2014 2016 2018 2020
2012 2014 2016 2018 2020
17% 17% 18%
21%
24%
28%
18%
16%
19%20%
23%22%
25%
27%
30%
3%
5%
10% 11%
13%
19% 20%
24% 24%
29%
16%
18% 19%
21%
24%
21virk.is