Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Qupperneq 22
leiðir í ljós marktæk tengsl á milli aukinna
kvíða- og depurðareinkenna og fjölda vitjana
til geðheilbrigðisstarfsmanna (sálfræðinga,
geðlækna og félagsráðgjafa). Þetta á
sérstaklega við um stúlkur. Þó kvíðaeinkenni
hafi aukist marktækt hjá báðum kynjum
á þessu tímabili jukust depurðareinkenni
einungis hjá stúlkum. Samhliða auknum
depurðareinkennum stúlkna fjölgaði í hópi
þeirra sem fóru reglubundið (a.m.k. 6 sinn-
um á ári) til geðheilbrigðisstarfsmanna9.
Upplýsingar úr samskiptaskrá heilsugæslu-
stöðva, sem Landlæknisembættið hefur
umsjón með, rennir stoðum undir þetta
(mynd 4). Í samskiptaskránni er að finna
upplýsingar um tíðni og tilefni samskipta við
heilbrigðisstarfsfólk á heilsugæslustöðvum.
Athygli vekur aukinn fjöldi samskipta ungs
fólks 20 ára og yngri við heilsugæslu-
stöðvar vegna lyndis- og kvíðaraskana10
árin 2011-2015. Sérstaklega á þetta við
um kvíðaraskanir en skráð samskipti vegna
þeirra fjórfölduðust á tímabilinu. Þetta eru
athyglisverðar niðurstöður í ljósi þess að þær
speglast vel í sjálfsmati unglinga á andlegri
líðan. Svo virðist sem þetta tvennt haldist
í hendur, versnandi líðan ungmenna og
skráningar fagfólks á heilsugæslustöðvum
um tíðari vitjanir ungs fólks vegna andlegrar
heilsu.
Tölur frá Sjúkratryggingum Íslands um
komur til sjálfstætt starfandi geðlækna
benda einnig til aukinnar eftirspurnar
eftir geðheilbrigðisþjónustu. Á mynd 5
má annars vegar sjá komur til geðlækna
(bláu súlurnar) og hins vegar komur til
barna- og unglingageðlækna (á rauðu
línunni). Líkt og sjá má fjölgaði komum til
geðlækna á tímabilinu 2000-2009, þar
til þeim fór að fækka. Komur til barna-
og unglingageðlækna, voru hins vegar
fátíðari framan af en taka svo stökk upp
á við í kringum aldamótin 2000 þegar
þeim fer að fækka aftur tímabundið. Frá
árinu 2008 fjölgar komum til barna- og
unglingageðlækna verulega og virðist ekkert
lát vera þar á11. Vissulega þarf að túlka
þessar tölur með varkárni - t.a.m. hefur fjöldi
starfandi lækna áhrif á komutölur, því færri
sem eru starfandi því færri verða komurnar
- en með tilliti til mannfjöldaþróunar
síðustu áratuga (minni fjölgunar ungs fólks
og fjölgunar eldra fólks) eru komutölur
til barna- og unglingageðlækna afar
umhugsunarverðar.
Þunglyndiseinkenni fullorðinna
Nokkrar kannanir á einkennum þunglyndis
og kvíða meðal fullorðinna hafa verið
framkvæmdar á Íslandi. Kannanirnar eru
þó talsvert strjálar og afmarkaðar og því
er varhugavert að draga af þeim ályktanir
um algengi. Í niðurstöðum evrópsku
heilsufarsrannsóknarinnar sem Hagstofan
framkvæmdi árið 2015 var Ísland í fjórða sæti
yfir fjölda fólks með þunglyndiseinkenni12.
Einkenni þunglyndis voru breytileg eftir
kyni og aldri, eins og sjá má á mynd 6.
Heilt á litið mældust 14% einstaklinga á
aldrinum 15-24 ára með væg eða mikil
þunglyndiseinkenni borið saman við 8%
65 ára og eldri. Í báðum aldurshópum eru
einkennin algengari meðal kvenna, 18% í
yngri aldurshópnum og 11% í þeim eldri.
Í annarri, nýlegri rannsókn á líðan
2.700 háskólanema á Íslandi (2017)
mældust 34,4% þeirra yfir viðmiðunar-
mörkum þunglyndis og 19,8% yfir við-
miðunarmörkum kvíða13. Ólíkt niðurstöð-
um Hagstofunnar mældist ekki marktækur
munur meðal háskólanema á algengi
þunglyndis og kvíða eftir kyni en óvarlegt
er að draga af því ályktanir. Háskólanemar
eru sértækur hópur, sem jafnvel glímir við
tímabundið álag, og eru aðstæður þeirra
ekki endilega lýsandi fyrir þjóðina alla.
8000
6000
4000
2000
0
Fjöldi skráðra samskipta á heilsugæslustöðvum vegna tiltekinna
geðrænna sjúkdóma hjá einstaklingum 20 ára og yngri
Uppruni gagna: Samskiptaskrá heilsugæslustöðva
Mynd 4Heimild: Tölfræðibrunnur Landlæknisembættisins, 2017
2011 2012 2013 2014 2015
Lyndisraskanir Kvíðaraskanir
Komur til geðlækna
(þ.á.m. barna- og unglingageðlækna)
árin 1999-2017
Komur til geðlækna Komur til barna- og unglingageðlækna
Mynd 5Heimild: Sjúkratryggingar Íslands
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017
50,000
40,000
30,000
20,000
10,000
0
6000
5000
4000
3000
2000
1000
0
Að
rir
g
eð
læ
kn
ar
Barna- og unglingageðlæ
knar
22 virk.is