Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Side 23
VIRK
Geðraskanir – hin nýja örorka?
Á síðustu þremur áratugum hefur vægi
geðraskana sem fyrsta ástæða örorku aukist
svo að umfangi að því hefur stundum verið
haldið fram að geðraskanir séu „hin nýja
örorka14.“ Heilt á litið hafa geðraskanir vegið
hlutfallslega þyngst sem fyrsta orsök örorku
frá árinu 2000 (mynd 7) þegar vægi þeirra
var 35% borið saman við um 37-38% árin
2017/18.
Þróunin er sérstaklega athyglisverð þegar
litið er til aldurs og kyns. Í samræmi
við fyrrgreint talnaefni um ungt fólk og
geðheilbrigði má sjá að geðraskanir vega
þyngra sem fyrsta orsök örorku hjá ungu fólki
en eldra fólki (mynd 8) og virðist munurinn
ágerast eftir því sem fram dregur. Árið 2000
var vægi geðraskana 51% hjá fólki undir
þrítugu en 25% í aldurshópnum 50 ára og
eldri. Árið 2017 hefur vægið aukist lítillega í
elsta aldurshópnum (um þrjú prósentustig)
en allverulega í þeim yngsta (um 16%
prósentustig).
Það sem vekur athygli, hins vegar, er
að örorka vegna geðraskana í öllum
aldurshópum er algengari meðal karla
en kvenna (mynd 9)15. Með hliðsjón af
fyrrgreindu talnaefni um andlega heilsu,
depurðareinkenni og eftirspurn ungra
kvenna eftir geðheilbrigðisþjónustu, skýtur
þetta skökku við. Í könnunum eru konur,
þá sérstaklega ungar konur, líklegri en
karlar til að meta andlega heilsu sína
bága. Af hverju endurspeglast það ekki í
örorkutölum? Ástæðu þessa er sennilega
að finna í ólíkum uppruna gagnanna.
Annars vegar er um að ræða kannanir
á mati fólks á eigin heilsu og hins vegar
sjúkdómsgreiningar á færniskerðingu
vegna geðrænna vandamála. Hér þarf
að hafa í huga að undirflokkar geð- og
atferlisraskana eru margir og sjúkdómarnir
misþungir. Ýmsar íslenskar rannsóknir
hafa leitt í ljós að langvinnar fíkniraskanir,
sem falla undir geð- og atferlisraskanir í
ICD-10 sjúkdómaflokkakerfinu, séu talsvert
algengari meðal karla en kvenna og kann
það að skýra hið aukna vægi geðraskana
meðal ungra karla16.
Notkun þunglyndislyfja (ATC
flokkur N06A).
Sívaxandi notkun geðdeyfðarlyfja er mörg-
um áhyggjuefni og hefur verið tíðrædd
í fjölmiðlum síðustu 20 árin eða svo.
Bæði hefur ávísuðum dagskömmtum til
einstaklinga fjölgað sem og notendum
lyfjanna17. Landlæknisembættið hefur marg-
sinnis varað við þessari þróun, m.a. í frétta-
bréfum og tilkynningum árin 2004, 2008,
2015, 2016 og 201918. Vegna eðlilegra
breytinga og viðhalds á lyfjagagnagrunni
yfir tíðina er strembið að meta umfang
ávísaðra lyfja lengra aftur í tímann en til
ársins 2004 þegar embætti landlæknis tók
við grunninum.
Í samantektinni hér á eftir er gerð tilraun
til að rekja þróun þunglyndislyfjanotkunar
hérlendis lengra aftur í tímann með því
að styðjast við áður útgefið efni (m.a.
rannsóknaskýrslur fræðimanna, skýrslur
ráðuneyta19 og eldri útgáfur Landlæknis-
embættisins). Til að hámarka saman-
burðarhæfni milli ólíkra útgáfa er einungis
fjallað um notkun þunglyndislyfja (N06A) í
skilgreindum dagskömmtum á 1.000 íbúa.
Ef litið er til notkunar þunglyndislyfja hefur
aukningin margfaldast að umfangi frá
árinu 1978 (mynd 10). Þá voru seldir 11
skilgreindir dagskammtar á hverja 1000
20
15
10
5
0
Mynd 6Heimild: Heilsufarsrannsókn Hagstofunnar
Karlar Konur Allir
15-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára >=65 ára
Hlutfall karla og kvenna með væg eða mikil þunglyndiseinkenni
árið 2015, skipt eftir aldri
Mynd 7Heimild: Tryggingastofnun ríkisins
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Geðraskanir
Sjúkdómar í taugakerfi og skynfærum
Áverkar
Stoðkerfissjúkdómar
Sjúkdómar í blóðrásarkerfi
Aðrar ástæður
45%
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Geðraskanir sem fyrsta ástæða örorku
(innbyrðis hlutdeild sjúkdóma)
10%
18%
14%
8%
11%
9%
6%
9%
8%
5%
9%
7%
6%
8%
7%
5%
11%
8%
23virk.is