Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 32
Fjölbreytnin og árangurinn sem einkennir
starfsemi VIRK gerir ráðgjafastarfið skemmtilegt.
Ég álít styrkleikamerki hjá fólki að leita til VIRK.
Losa sig við fordóma og finna úrræði sem það
svo getur tekið með sér út í lífið.“
Hvernig veittir þú þínu fólki aðstoð meðan
erfitt var að hittast?
„VIRK brást fljótt við þegar smitið var sem
verst og ekki var hægt að hitta fólk. Skjótlega
var farið að nota fjarfundabúnað. Notaður
hefur verið búnaðurinn Kara Connect sem
viðurkenndur er af landlæknisembættinu.
Hann er talinn öruggur þegar tala þarf um
viðkvæm málefni. Um þessar mundir er svo
verið að taka í notkun nýjan fjarfundabúnað
innan kerfis VIRK. Einstaka þjónustuþegi
hefur frekar viljað fá símaviðtöl og fengið
þau. Þetta hefur gengið ótrúlega vel þótt
hvorki fjarfundir né símaviðtöl komi í
staðinn fyrir að hitta aðra manneskju. Við
höfum leitt fólk í gegnum þetta, hjálpað því
að nota búnaðinn. Sumir hafa verið mjög
hikandi, kunnað lítið á tölvur. En í heild
hefur þetta sem sagt gengið vel. Flestir nýta
sér fjarfundabúnaðinn þótt einstaka haldi
sig áfram við símaviðtölin.“
Hafið þið getað útskrifað fólk á
Kóvidtímanum?
„Já, einkum þá sem voru langt komnir í
þjónustu VIRK. Hins vegar hefur mörgum
seinkað í þjónustunni og endurhæfingin
tekið lengri tíma en ella hefði verið.
Þetta skiptir auðvitað máli fjárhagslega.
VIRK hefur verið í samskiptum við
Tryggingastofnun varðandi það að fram-
lengja endurhæfingarlífeyri þegar ekki var
hægt að útskrifa fólk vegna faraldursins.
Fyrr en varði var komið á laggirnar úrræðum
sem mótuðust af þessu ástandi. Svo sem
að hreyfa sig heima í svokallaðri fjarþjálfun
þegar ekki var hægt að sækja líkamsrækt
vegna lokunar slíkra stöðva og þar fram eftir
götunum. Þjónustuaðilar okkar voru fljótir
að bregðast við með nýjum hugmyndum og
úrræðum í fjarnámskeiðum. Margir hafa til
dæmis nýtt sér fjarviðtöl sálfræðinga.“
Ert þú sem ráðgjafi í sambandi við
þjónustuaðila, til dæmis sálfræðinga?
„Þjónustuþegar skrifa undir samþykki
sem veitir mér leyfi til þess en yfirleitt
ræði ég slíkt við þann sem í hlut á. Þyki
mér sérstök ástæða til hef ég samband
við þjónustuaðila. Það er mikilvægt að
allir sem að máli einstaklings koma stefni
í sömu átt. Ráðgjafinn heldur utan um
hin margvíslegu úrræði sem viðkomandi
þjónustuþegi nýtir til endurhæfingar. Til að
samhæfing náist þarf oft talsverð samskipti
hinna ýmsu þjónustuaðila við ráðgjafa og
auðvitað einstaklinginn sem um ræðir.
Þjónustuaðilar eru líka duglegir að hafa
samband við ráðgjafa ef ástæða þykir til,
sem er mjög gott.“
Úrræðum fjölgað og fleiri
komin til sögunnar
Hafa úrræði breyst mikið á þínum
starfstíma hjá VIRK?
„Þeim hefur fjölgað mikið, bæði komnir til
fleiri aðilar og ný úrræði. Sálfræðiviðtöl eru
mikið notuð, svo og sjálfstyrkingarnámskeið,
stefnumótunarnámskeið og markþjálfun.
Þá eru í boði verkjanámskeið og úrræði
tengd hreyfingu, ýmist með sjúkraþjálfara
eða íþróttafræðingi. Nefna ber allskonar
námskeið til að bregðast við streitu, til
dæmis núvitundarnámskeið. Einnig fara
sumir á lengri námskeið eða byrja í námi.
Sumir þjónustuþegar fara í starfsendur-
hæfingarstöðvar þar sem margt er í boði
sem viðkomandi hefði ella þurft að sækja
tíma í á hinum ýmsu stöðum. Svo getur
fólk fengið sérstaka aðstoð við endurkomu
til vinnu hjá atvinnulífstengli VIRK þegar
það er tilbúið til að reyna fyrir sér á vinnu-
markaðinum.“
Hefur þér þótt ráðgjafastarfið erfitt
andlega?
„Nei, þótt ráðgjafastarfið feli í sér að vinna
með fólki sem á í erfiðleikum þá hef ég
ánægju af mínu starfi. Maður lærir í námi
og af reynslu að hafa ákveðin mörk en samt
þannig að maður sýni þjónustuþegum
fulla samhyggð. Maður tekur einfaldlega
vinnuna ekki með sér heim. Ella myndi
maður ekki endast í svona vinnu. Við
ráðgjafarnir getum líka talað saman í
fullum trúnaði og einnig getum við fengið
handleiðslu hjá fagfólki eða fengið aðstoð
með mál einstaklinga hjá sérfræðingum
VIRK.
Ég legg mig fram við að fá þá sem til mín
leita til að finna sjálfir þá leið sem þeir vilja
fara í sinni endurhæfingu. Þá er kúnstin
að spyrja réttu spurninganna. En ekkert er
þó algilt í þeim efnum, maður þarf alltaf að
„lesa“ hvern og einn einstakling. Yfirleitt
er ég nokkuð fljót að átta mig á hvernig
viðkomandi persóna er. Það ræð ég af því
trausti sem mér hefur verið sýnt. Stundum
finnur maður að fólk er kvíðið og vill ekki
ræða ýmsa lífsreynslu eða atvik sem þarf
einmitt að ræða. Það er gert ef viðkomandi
treystir sér til. Almennt þarf maður að vera
varkár en samt að ræða þá hluti sem máli
skipta.“
Allt hefur sinn tíma
Hvað með innkomu fólks á
vinnumarkað á ný?
„VIRK miðar við að þeir sem hafa ráðningar-
samband snúi til sinna starfa aftur. Það
er fyrsta val og gefst oft vel. Ef hins vegar
kemur í ljós að það er sjálf vinnan sem er
kvíðavaldurinn þá er kannski ekki heppilegt
að stunda hana áfram. Sé málið þannig
vaxið að einstaklingur ráði ekki við starf
sitt vegna til dæmis stoðkerfisvanda þá
þarf að finna annan vettvang. Við slíkar
aðstæður þarf fólk að fá rými til að syrgja
heilsuna sína. Allt hefur sinn tíma. Upp til
hópa er það fólk sem kemur í þjónustu til
VIRK duglegt – stundum hefur það jafnvel
verið of duglegt. Þá þarf einstaklingurinn að
finna ráð til að sinna sjálfum sér og úrræði
sem hann getur nýtt sér til að laga það sem
aflaga hefur farið.
Vissulega hafa orðið miklar breytingar á
þeim rúma áratug sem VIRK hefur starfað.
Umfangið hefur vaxið. Fjölbreytnin og ár-
angurinn sem einkennir starfsemi VIRK
gerir ráðgjafastarfið skemmtilegt. Ég álít
styrkleikamerki hjá fólki að leita til VIRK.
Losa sig við fordóma og finna úrræði sem
það svo getur tekið með sér út í lífið.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
32 virk.is