Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 36
Hvað er að gerast í öðrum löndum?
England
Englendingar hafa unnið eftir IPS í nokkur ár innan heilbrigðiskerfisins og þá aðallega
til að auka atvinnuþátttöku hjá einstaklingum sem eru að fást við geðræn veikindi.
Nú er í gangi langtímarannsókn þar sem IPS aðferðafræðin er nýtt samhliða meðferð
við fíknisjúkdómum8. Niðurstaðna er að vænta í lok árs 2021 og skoðað verður hvort
breytingar hafi orðið varðandi starfsmenntun, tekjur, afbrot, heilsu o.fl. Þegar hafa
komið í ljós jákvæðar niðurstöður hvað varðar einstaklinga sem ekki hafa verið á
vinnumarkaði í áratug eða lengur og eru komnir í launaða vinnu í dag.
Bandaríkin
IPS aðferðafræðin á uppruna sinn að rekja til Bandaríkjanna. Ný þriggja ára rannsókn
er nú í gangi samtímis í 5 fylkjum í Bandaríkjunum9. Verið er að skoða hvort og þá
hvernig IPS nýtist ungu fólki (16-24 ára) með alvarlega geðsjúkdóma. Markmiðið er
að skoða hvort IPS getur nýst til að styrkja hópinn í námi og/eða til atvinnuþátttöku,
prófa nýjan kvarða fyrir tryggðarskalaúttekt sem var þróaður sérstaklega fyrir þennan
aldurshóp (IPS-Y) og fara vel yfir aðferðir við framkvæmd og hindranir við innleiðingu.
Danmörk
IPS aðferðafræðin hefur náð fótfestu í Danmörku á síðustu árum. IPSCENTER Danmark
hefur verið í fararbroddi við að aðstoða bæjarfélög og atvinnumiðlanir að innleiða IPS
m.a. með því að bjóða upp á þjálfun fyrir atvinnulífstengla og tryggðarskalaúttekt10.
Niðurstöður úr sex ára rannsókn á vegum danska atvinnumálaráðuneytisins sýndu
að einstaklingar í IPS meðferðarhópnum (með og án samhliða áherslna á hugræna
og félagslega atferlismeðferð) voru frekar í vinnu eða námi við 18 mánaða endurmat í
samanburði við þá sem voru í hópnum sem fengu hefðbundna endurhæfingu (59,9%
vs 47,5%)11. Nýjar niðurstöður úr þessari sömu rannsókn sýna að IPS reyndist vera
hagkvæmara og skilaði betri árangri en hefðbundin meðferð12. Danir eru að prófa sig
áfram með IPS fyrir fleiri hópa.
IPS þekkingarsetur
VIRK hefur verið í samstarfi við Laugarás
meðferðargeðdeild (LMG) undanfarin ár þar
sem IPS atvinnulífstenglar sinna þjónustu-
þegum LMG sem vilja fara að vinna.
Samstarfið hefur gengið vel og sú þekking
sem er til staðar og sá lærdómur sem hefur
komið frá þessu samstarfi hefur verið mjög
mikilvægur fyrir þróun IPS hér á Íslandi.
Miðað við þá þróun sem hefur átt sér stað
í löndunum í kringum okkur þá er spurning
hvort ekki sé tímabært að nýta aðferðina víðar
hér á landi. Til að ýta undir þessa þróun var
VIRK með kynningu á IPS aðferðafræðinni
fyrir allar starfsendurhæfingarstöðvar á land-
inu þann 17. janúar 2020 og kom þar fram
mikill áhugi á að skoða betur hvort og þá
hvernig væri hægt að innleiða IPS víðar hér
á landi.
Í gegnum samstarfið við LMG þá hefur
VIRK einnig verið að skoða hvernig innleiða
megi IPS aðferðafræðina inn í almennan
starfsendurhæfingarferil hjá VIRK. Í byrjun
árs 2019 fór samstarfsverkefni af stað á
vegum Félagsmálaráðuneytisins sem VIRK
er þátttakandi í ásamt öðrum stofnunum
innan velferðarkerfisins en markmið
verkefnisins er að hækka virknihlutfall (auka
atvinnuþátttöku) ungs fólks á aldrinum 18
– 29 ára. Samhliða þessu verkefni fór af
stað átaksverkefni fyrir ungt fólk (UNG19) í
starfsendurhæfingu hjá VIRK en meðal þess
sem hefur verið í boði fyrir einstaklinga í
verkefninu er þjónusta IPS atvinnulífstengils.
Þar er verið að nýta IPS á svipaðan hátt og
Norðmenn hafa verið að gera með ungu
fólki og hefur það gefist mjög vel en sjá má
niðurstöður UNG19 verkefnisins í grein sem
skrifuð var í Ársrit VIRK 20207.
VIRK hefur verið að þróa IPS þekkingarsetur
þar sem megin markmiðið er að styðja við
starfsendurhæfingarstöðvar og aðrar stofn-
anir sem vilja vinna út frá IPS aðferðafræð-
inni. Þar stendur þeim til boða bæði fræðsla
og stuðningur þegar kemur að innleiðingu
auk þess sem handleiðsla er í boði fyrir nýja
atvinnulífstengla. Í þessu sambandi hefur
sérfræðingur í IPS hugmyndafræðinni verið
með fræðslu um IPS hjá félagsþjónustum
Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðar, Fjöl-
smiðjunni í Reykjavík, Vinnumálastofnun,
Fangelsismálastofnun og víðar. Með
því að nýta IPS aðferðafræðina víðar þá
getum við tekið mikilvæg skref í að efla
starfsendurhæfingu enn frekar hér á landi.
36 virk.is