Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 37
VIRK
Linda Huld Loftsdóttir Valur BjarnasonElín Gestsdóttir
Valur Bjarnason verkefnastjóri IPS hjá
þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar
Valur er félagsráðgjafi og hefur unnið með
IPS hugmyndafræðina frá árinu 2012. Hann
kom að innleiðingu á IPS aðferðafræðinni
hjá Laugarás meðferðargeðdeild (LMG)
Landspítalans í samstarfi við VIRK það ár og
allar götur til vors 2019 þegar hann var ráðinn
til að verkstýra innleiðingu á IPS fyrir fólk á
fjárhagsaðstoð hjá þjónustumiðstöðvum
Reykjavíkurborgar. Tveir atvinnulífstenglar
starfa nú í þessu verkefni og hafa 14
einstaklingar í þjónustu farið í vinnu á
síðustu sex mánuðum. Hann telur IPS
aðferðafræðina virka mjög vel í íslensku
umhverfi sem kemur vel fram í eigindlegri
rannsókn sem Karen Sturludóttir gerði um
IPS verkefnið á Laugarásnum og birtist í
meistararitgerð hennar13. Valur telur að nýta
megi IPS aðferðafræðina með fleiri hópum en
eru að þiggja þessa þjónustu í dag og bendir
þá sérstaklega á niðurstöður rannsókna sem
gerðar hafa verið í Noregi [sjá umfjöllun um
rannsóknir hér í greininni].
„Ég á mér þann draum að IPS verði allt-
umlykjandi þegar kemur að starfsendurhæf-
ingu hér á landi.“ Í Noregi þá er IPS aðferða-
fræðin algjörlega búin að taka yfir flesta hópa
sem þurfa aðstoð til að komast í vinnu og/
eða nám og telur Valur að við þurfum ekki
að vera eftirbátar frændþjóða okkar í þeim
málum. Í framtíðinni sér hann möguleika á
auknu samstarfi milli kerfa eins og t.d. VIRK,
Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar
sem tækju við tilvísunum í þjónustu. „Það
mætti auðvitað búast við ýmsum hindrunum,
en allt er hægt og „sky is the limit“ þegar IPS
er annars vegar. Við eigum að hugsa stórt og
láta vaða!“
Hvað segja þeir sem vinna
eftir IPS aðferðafræðinni?
Linda Huld Loftsdóttir
atvinnulífstengill hjá VIRK
Linda hefur unnið sem IPS atvinnulífstengill
hjá VIRK í um 3 ár og telur að aðferðafræðin
henti íslenskum vinnumarkaði mjög vel.
Fyrirtæki taka mjög vel í að ráða ein-
staklinga í vinnu og eru opin fyrir því að
styðja einstaklinga hægt og rólega inn
í starf. Stuðningurinn sem þeir fá frá
atvinnulífstenglinum er líka mikilvægur fyrir
fyrirtækin og þeirra starfsmenn. IPS skilar líka
miklum árangri fyrir einstaklingana þar sem
þau leita að vinnu samhliða því að taka þátt
í starfsendurhæfingu og er mikilvægt að fara
að íhuga tengingu við vinnumarkaðinn um
leið og einstaklingurinn telur sig tilbúinn til
þess. Áhugahvöt einstaklingsins skiptir hér
mestu máli.
„Ég væri svo til í að sjá IPS á fleiri stofn-
unum t.d. í félagsþjónustunni, öllum starfs-
endurhæfingarstöðvum og Vinnumálastofn-
un. Það væri frábært ef við myndum komast
á þann stað að það myndi ekki skipti máli
hvar einstaklingur fær þjónustu, þar sem
það væri alltaf möguleiki á að komast í IPS
atvinnutengingu.“
Elín Gestsdóttir ráðgjafi VIRK hjá Eflingu
Elín hefur verið ráðgjafi í starfsendurhæfingu
í um 3 ár en hún er í UNG-teyminu hjá
VIRK og er IPS atvinnulífstengill einnig í því
teymi. Samkvæmt Elínu þá eru einstaklingar
oft á tíðum tilbúnir að hefja starf snemma
í starfsendurhæfingarferlinum en vantar
stuðning, hvatningu og einhvern sem getur
fylgt þeim eftir og þá hefur IPS aðferðafræðin
nýst vel.
„Það sem skiptir þessa einstaklinga mestu
máli er að vita af atvinnulífstenglinum sem
þeir geta leitað til ef eitthvað kemur upp á er
varðar atvinnuþátttöku þeirra.“
Elín telur að þessi aðferðafræði gæti nýst
fyrir fleiri hópa en eru í þjónustu VIRK eins
og t.d. fyrir einstaklinga sem hafa verið
lengi frá vinnumarkaðinum eða þá sem
hafa endurtekið misst vinnuna vegna sam-
skiptavandamála. Þá er hægt að vinna
með vandann á meðan einstaklingurinn
er að fóta sig í nýju starfi. Hún telur að IPS
ætti í framtíðinni að vera í boði innan fleiri
kerfa eins og hjá Vinnumálastofnun og
heilsugæslunni og þá gætu einstaklingar farið
á milli kerfa og haldið áfram að fá stuðning frá
IPS atvinnulífstengli.
Það sem skiptir þessa einstaklinga mestu
máli er að vita af atvinnulífstenglinum sem þeir
geta leitað til ef eitthvað kemur upp á er varðar
atvinnuþátttöku þeirra.“
37virk.is