Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 40
„Ég var á þessu tímabili í hundrað prósent
starfi á leikskóla. Ég elska að vinna með
börnum en mér leið eigi að síður illa í starfi
mínu í leikskólanum því vinnuumhverfið
var ekki heilbrigt. Félagsandinn milli starfs-
manna var ekki góður. Ég hef löngum átt
fremur erfitt með samskipti við annað fólk
og fljótlega fannst mér ég utanveltu. Loks
gafst ég upp á þessu starfi og hætti.
Á einhverfurófi
Ég hef aldrei fengið greiningu en foreldrar
mínir höfðu töluvert lengi haft grun um að
ég væri á einhverfurófi. Þegar ég var komin
í þjónustu hjá VIRK var ég látin taka próf
sem sýndi fylgni í þá átt. Í framhaldi af því
fór ég til mjög góðs sálfræðings sem sér-
hæfir sig í greiningu og meðferð á fólki sem
er á einhverfurófi. Hann taldi mig vera á
einhverfurófi en af því að ég var eldri en
átján ára þarf ég að fara í greiningu hjá
stofnun sem heitir Sól og hef ekki komið
því í verk ennþá.“
Hvernig lýsa einkenni einhverfu sér?
„Sálfræðingurinn sagði mér að stúlkur væru
sjaldnar greindar með einhverfu. Þær læra
fyrr og betur en strákar að herma eftir öðru
fólki í kringum sig, spegla sig inni í sam-
félaginu. Í mínu tilviki er það svo að ég get
ágætlega rætt við fólk um sértæk mál en er
ómöguleg í svokölluðu „smátali“ – þar er ég
illa stödd. Veit ekki hvað ég á að segja næst
og misskil það sem aðrir skilja sem grín. Ég á
líka til að endurtaka hluti oft. Ég átti til dæmis
púsluspil sem var 260 bitar. Ég sat við að
púsla það aftur og aftur dag eftir dag þangað
til myndin var orðin afmáð. Þetta róaði mig
og sló á kvíðann innra með mér.
Ég á erfitt með að taka óvæntum uppákomum
en ég hef unnið mikið í að læra að höndla
slíkar aðstæður. Ég öðlast skilning á að
maður stjórnar ekki öðru fólki eða aðstæðum
en maður getur ráðið hvernig maður tekur
hlutunum. Besta vinkona mín hefur hjálpað
mér mikið að þessu leyti. Hún er félagslynd
og óhrædd og dregur mig út í allskyns
aðstæður sem mér eru kannski óþekktar.
Ég var vissulega oft kvíðin en smám saman
hef ég lært að takast á við ýmislegt, svo sem
þegar bíllinn verður bensínlaus eða festist í
snjó. Ég er ekki lengur jafn stressuð heldur
tekst að halda ró minni þótt eitthvað slíkt
óvænt gerist. Ég hef lært þetta.
Þessi vinkona mín hefur líka hjálpað mér
félagslega. Hún er dugleg að fá mig út til
að hitta fólk sem ég þekki ekki. Ef ég lendi í
vandræðum í samræðum þá kemur hún og
styður mig. Þetta er ómetanlegt fyrir mig og
gefur mér öryggistilfinningu. Ég hjálpa henni
að vissu leyti líka, hún á það til að fara fram
úr sér og þá held ég aftur af henni. Við erum
andstæður sem spila vel saman.“
Stór hluti af lífinu að geta
fyrirgefið
Heba Lind er tuttugu og þriggja ára og hefur
að eigin sögn verið haldin kvíða og þunglyndi
frá unglingsaldri.
„Ég var að vísu glaðlynt og athafnasamt barn
en í fjórða bekk í grunnskóla sló í bakseglin.
Þá smám saman átti ég ekki góð samskipti
við skólafélaga og var um tíma lögð í einelti.
Sömuleiðis átti ég erfitt með að treysta
fólki. Þegar ég svo sem unglingur reyndi að
opna mig meira og hleypa nýju fólki inn í líf
mitt þá gerðist það að barnaníðingur var í
umhverfinu. Hann fékk að lokum nokkurra
mánaða dóm. Ég slapp við misnotkun en sá
ýmislegt og upplifði sem olli því að ég féll
í djúpt þunglyndi og varð mjög kvíðin. Ég
lokaði mig af og talaði ekki við neinn. Þetta var
sárt og sparkaði mér aftur á byrjunarreit eftir
að ég hafði unnið markvisst að uppbyggingu
sjálfmyndarinnar í mörg ár. Gelgjuskeiðið er
einn mikilvægasti tíminn í ævi fólks. En stór
hluti af lífinu er að geta fyrirgefið, sjálfum sér
og öðrum. Reiði og biturleiki gerir engum
gott. Slíkt meiðir sjálfan þig meira en aðra.
En maður þarf líka að átta sig á að stundum
er best að ljúka samböndum til að að þau
þróist ekki í átt að niðurbroti.
Tár sem ég gat ekki stöðvað
Vel var tímasett þegar ég fór í þjónustu hjá
VIRK. Það var einmitt það sem ég þurfti
þá. Ég var komin á endastöð í starfinu í
leikskólanum og í einkalífi var ég harðlokuð.
Þetta gerðist þannig að ég átti enn einu
sinni erindi á heilsugæsluna til að fá vottorð.
Eitthvað hafði gleymst og ég var kölluð inn
aftur. Þar settist ég niður og fór að hágráta
– þetta voru tár sem ég gat ekki stöðvað.
Hjúkrunarfræðingurinn sagði við mig að ég
yrði að hætta að vinna. Það fannst mér erfitt.
Þótt ég byggi í foreldrahúsum þarf maður
peninga til að vera til. Í framhaldi af þessu
atviki var mér beint til VIRK. Ég þurfti að bíða
í nokkra mánuði en það var þess virði. Svo
fékk ég símtal og fór í viðtal hjá sérfræðingi.
Fáum dögum síðar var ég samþykkt í
þjónustu hjá VIRK og hitti ráðgjafa hjá
Eflingu.“
Hvað gerðist svo?
„Ráðgjafinn sá um að ég fengi sálfræðitíma
og jafnframt fór ég í heilsurækt hjá Heilsu-
borg. Einnig sótti ég námskeið sem heitir
Framvegis. Þar gekk mér vel og þá bauð
ráðgjafinn mér að koma mér í samband við
atvinnulífstengil hjá VIRK. Ég átti mér þann
draum að mennta mig á sviði leikskólafræða.
Atvinnulífstengillinn settist með mér við
tölvuna og hjálpaði mér að sækja um raun-
hæfnismat hjá Mími. Þar náði ég um sextíu
einingum og á námskeiðinu hjá Framvegis
fékk ég tíu einingar. Safnast þegar saman
kemur. Í framhaldi af öllu þessu komst ég
svo inn í Borgarholtsskóla á leikskólabrú.
Núna er ég að taka sjö áfanga til að
útskrifast. Þetta nám á að gefa mér kost á
að fara í háskólanám í leikskólafræðum.“
Í námi og starfi
Líf þitt virðist hafa tekið miklum
breytingum?
„Já, svo sannarlega. Mér finnst ótrúlegt
þegar ég horfi til baka, til þess tíma þegar allt
var sem verst og ber það saman við hvar ég
stend núna. Sótt var um fyrir mig hjá VIRK í
byrjun sumars 2019 og ferlið hófst svo fyrst í
september það ár. Mér gekk það vel að ráð-
gjafinn og atvinnulífstengillinn hvöttu mig til
að sækja um vinnu meðfram náminu. Eftir
að hafa hjálpað mér að gera nýja ferilskrá
sýndi atvinnulífstengillinn mér hvar ég gæti
Vinnuumhverfið á
frístundaheimilinu er
mjög gott og yfirmaður
minn skilningsríkur.
En að vita af því að
atvinnulífstengillinn
fylgdist með mér á
hliðarlínunni færði
mér öryggistilfinningu.
Það er svo mikilvægt að
VIRK hefur verið til staðar.
Þessi IPS-tenging hefur
hjálpað mér mjög mikið.“
40 virk.is