Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 41

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 41
 VIÐTAL sótt um vinnu. Ég fékk eitt viðtal hjá leik- skóla og atvinnulífstengillinn kom með mér í viðtalið sem mér fannst mjög þægilegt. Hann fylgdi mér eftir og var til staðar þegar ég þurfti á að halda. Það var mikilvægt. Ég hefði getað fengið vinnu í þessum leikskóla en sá svo að það hentaði ekki ef ég ætlaði að fara í námið sem ég var þá enn ekki komin í. Ég ákvað svo í samráði við atvinnulífstengilinn að sækja um starf á frístundaheimili í Gufu- nesbæ í Grafarvogi. Ég mætti í það viðtal ein og sjálf og fékk starfið. Ég vinn fjóra daga í viku eftir hádegi. Það dugar mér í bili, ég bý enn hjá foreldrum mínum og fæ Ég skildi líka að allir eiga við sín vandamál, sín skrímsli, að etja. Það sem skiptir mestu máli er að finna leiðir til að lifa með þunglyndi og kvíða. Að standa upp hve oft sem þú ert barin í jörðina. Leiðin til að finna hamingju í lífinu er að standa aftur upp. VIRK hjálpaði mér á þeirri vegferð.“ Skil nú að allir eiga við sín vandamál að etja Ég lauk starfsendurhæfingu hjá VIRK í des- ember 2020 en atvinnulífstengillinn hefur sagt mér að ég geti sent póst ef í harðbakk- ann slær. Ég hef ekki þurft þess. Námið í Borgarholtsskóla gengur ágætlega. Vegna Kovidástandsins fer það fram á netinu. Fyrst var ég kvíðin en það gekk yfir. Og vinnan á frístundaheimilinu gengur líka vel.“ Áttu auðveldara með að tengjast börnum en fullorðnum? „Já mun auðveldara. Samskipti við börn eru einfaldari en við fullorðið fólk. Börn eru hreinskilin. Ég á oft erfitt með að lesa fólk, eins og það er kallað. Veit ekki hvort verið er að gera grín eða tala í alvöru. Skil ekki alltaf meiningu á bak við orðin, það þarf að segja mér beint hvað við er átt. Ég les sem sagt illa inn í aðstæður eða tvíræðni í sam- ræðum. Það er oft vandræðalegt. Kostur minn er hins vegar að ég er traust þar sem ég tek því. Eitt af því sem ég lærði hjá VIRK er að lífið er ekki alltaf réttlátt. Ég skildi líka að allir eiga við sín vandamál, sín skrímsli, að etja. Það sem skiptir mestu máli er að finna leiðir til að lifa með þunglyndi og kvíða. Að standa upp hve oft sem þú ert barin í jörðina. Leiðin til að finna hamingju í lífinu er að standa aftur upp. VIRK hjálpaði mér á þeirri vegferð.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Mynd: Lárus Karl Ingason mikinn stuðning frá þeim og systrum mínum tveimur. Ég hef líka í bakhöndinni stuðning frá atvinnulífstenglinum ef eitthvað alvarlegt kemur upp á. Það hefur ekki gerst. Að vinna með börnum finnst mér yndislegt. Vinnuumhverfið á frístundaheimilinu er mjög gott og yfirmaður minn skilningsríkur. En að vita af því að atvinnulífstengillinn fylgdist með mér á hliðarlínunni færði mér öryggistilfinningu. Það er svo mikilvægt að VIRK hefur verið til staðar. Þessi IPS-tenging hefur hjálpað mér mjög mikið. Mér var ekki ýtt út í neitt sem ég treysti mér ekki í en hvatning og skilningur var alltaf fyrir hendi. 41virk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.