Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 47

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 47
AÐSEND GREIN Rannsóknir benda sterklega til þess að aðgerðir á vinnumarkaði eða innan fyrirtækjanna sjálfra séu árangursríkari heldur en að horfa til þess að starfsfólk með skerta starfsgetu aðlagi sig að vinnuumhverfi.“ til boða styrkir úr samfélagslegum sjóðum þegar atvinnuþátttaka er skert, gildir það um flesta að þeir kjósa að taka þátt í samfélagslegum verkefnum enda er það manninum mikilvægt að gera gagn og tilheyra og þar skiptir atvinnuþátttaka miklu máli3. Mikilvægi starfsendurhæfingar þar sem stuðlað er að því að hafa áhrif á færni einstaklinga sem hafa vegna heilsu eða félagslegrar stöðu staðið utan vinnumarkaðar er því óvéfengjanlegt. Hvað veldur skertri starfsgetu? Hindranir sem geta komið í veg fyrir atvinnuþátttöku eru af ýmsum toga. Í líkani Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar4 byggir starfsgeta á samspili færni og aðstæðna einstaklinga. Þannig skoðast starfsgeta bæði út frá andlegri og líkamlegri heilsu einstaklinga og virkni þeirra á sama tíma sem athuga þarf aðstæður í umhverfi einstaklinga sem gera kleift eða hindra þátttöku á vinnumarkaði. Þættir eins og uppbygging vinnumarkaðar og velferðarkerfi samfélagsins eru þannig hluti af umhverfi einstaklinga og hafa bein áhrif á starfsgetu þeirra. Út frá þessu getur skapast sú staða að þrátt fyrir árangursríka starfsendurhæfingu getur komið í ljós að meginhindrunin fyrir atvinnuþátttöku liggi í því hvernig vinnumarkaðurinn er tilbúinn til að taka á móti einstaklingum með mismunandi færni. Í mörgum löndum er vaxandi fjöldi fólks útilokaður frá fullri þátttöku á vinnumarkaði vegna skertrar starfsgetu5. Hér á landi mældist atvinnuþátttaka fólks með skerta starfsgetu lægri en almenn atvinnuþátttaka. Árið 2017 var atvinnuþátttaka öryrkja aðeins 30,6% samanborið við 82,6% almenna atvinnuþátttöku á Íslandi6. Á árunum 2008-2019 fjölgaði örorkulífeyrisþegum úr 7% í 7,8% af mannfjölda 18-66 ára eða um 3800 einstaklinga7. Til að auka atvinnuþátttöku einstaklinga með skerta starfsgetu hefur í mörgum löndum verið mótuð stefna og aðgerðir innleiddar8. Aðgerðum má gróflega skipta í fjóra flokka: Lög um bann við mismunun og kröfur um viðeigandi aðlögun á vinnustað, stuðning vegna aðlögunar á vinnustað, fjárhagslega hvata og hvatningu um áætlunargerð vegna endurkomu til vinnu eftir langa veikindafjarveru9. Fleiri aðgerðir stjórn- valda eru þekktar svo sem kvóta- löggjöf, það er að ákveðið hlutfall af starfsfólki fyrirtækja skuli vera fólk með skerta starfsgetu10. Helstu aðgerðir hér á landi til að hvetja til aukinnar atvinnuþátttöku eru vinnusamningar öryrkja og atvinna með stuðningi sem Vinnumálastofnun heldur utan um11. VIRK hefur lagt vaxandi áherslu á að aðstoða einstaklinga í starfsendurhæfingu við að komast aftur út á vinnumarkað með áherslu á samstarf við fyrirtæki og stofnanir vinnumarkaðarins12. Leiðir til að greiða aðgang að vinnumarkaði Rannsóknir benda sterklega til þess að aðgerðir á vinnumarkaði eða innan fyrirtækjanna sjálfra séu árangursríkari heldur en að horfa til þess að starfsfólk með skerta starfsgetu aðlagi sig að vinnuumhverfi10,13. Þannig sýndi samantektarrannsókn á aðgerðum fimm landa OECD: Kanada, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Bretlands að þegar yfirvöld stuðla að fjárhagslegum hvata til ráðningar starfsfólks með skerta starfsgetu, ýtir það undir ráðningar þessa hóps. Einnig kom fram að hvers kyns stuðningur í vinnuumhverfinu sem eykur aðgengi einstaklinga sem og verklag um endurkomu til vinnu eftir langa veikindafjarveru ber árangur9. Önnur samantektarrannsókn sýndi einnig að aðgerðir sem beinast að því að aðlaga vinnuumhverfi að starfsfólki með skerta starfsgetu séu árangursríkastar til að auka atvinnuþátttöku þessa hóps14. Jákvæð viðhorf atvinnurekenda til ráðninga fólks með skerta starfsgetu eru mikilvægur þáttur í farsælum ráðningum. Erlendar rannsóknir sýna að það sem helst hindrar stjórnendur í að vilja ráða starfsfólk með skerta starfsgetu eru áhyggjur af minni framleiðni, slæmri ástundun, lakari félagsfærni og erfiðleikum með að aðlagast vinnustaðablæ eða reglum vinnustaðarins15,16. Almennt telst þetta til fyrirfram gefinna viðhorfa eða stimplunar (e. stigma) sem rannsóknir sýna að eigi veikar stoðir í raunveruleikanum. Til dæmis hafa rannsóknir sýnt að starfsfólk með skerta starfsgetu er ekki frábrugðið öðru starfsfólki hvað varðar ástundun vinnunnar eða framleiðni þegar það hefur fengið aðlögun á vinnustaðnum sem hæfir þeirra getu15. Einnig hefur komið fram að starfsfólk með skerta starfsgetu var almennt stundvísara, lagði sig í meiri mæli fram um félagsleg samskipti og var áreiðanlegra en annað starfsfólk. Að sama skapi hefur komið fram að fjölbreytni í starfs- mannahópnum sé til þess fallin að auka arðsemi fyrirtækja17. Hér á landi var framkvæmd rannsókn á viðhorfum stjórnenda til ráðningar starfsfólks með skerta starfsgetu og leiddi hún í ljós að endurgreiðsla launa var mikilvægur hvati til ráðninga18. Reynsla íslenskra stjórnenda af ráðningu starfsfólks með skerta starfsgetu Höfundar þessarar greinar fram- kvæmdu rannsókn meðal íslenskra stjórnenda til að kanna viðhorf þeirra og reynslu til þess að hafa starfsfólk með skerta getu í vinnu19. Rannsóknin byggir á viðtölum við 14 stjórnendur en gagnaöflun fór fram á árunum 2017 til 2019. Stjórnendurnir sem rætt var við höfðu margbreytilega reynslu af því að hafa starfsfólk með skerta starfsgetu í 47virk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.