Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Side 53
AÐSEND GREIN
fólk á erfiðara með að sækja sér þjónustu
en ella. Fólki sem líður verulega illa gengur
misvel að yfirstíga þær hindranir sem eru
í kerfinu okkar og enn eru, því miður, til
staðar fordómar gagnvart geðrænum vanda
sem nær örugglega stoppar marga af við
að sækja sér þá aðstoð sem þeir hefðu
annars gagn af. Hópur fólks glímir einnig
við vanda sem telst vægur og fær því ekki
forgang í geðheilbrigðiskerfinu en margt af
því fólki gæti engu að síður nýtt sér leiðir og
aðferðir til að bæta líðan sína og lífsgæði.
Þannig mætti jafnvel fyrirbyggja um leið að
vandi þeirri þróist í alvarlegri átt. Það eru
því fjölmargar ástæður fyrir því að svokölluð
net- og fjarúrræði hafa rutt sér til rúms og
munu líklega halda áfram að gera það.
Heimsfaraldur af völdum Kórónaveiru hefur
einnig ýtt enn frekar undir þá hugsun að
netið og tæknina megi nýta mun betur en
nú er gert á þessu mikilvæga sviði.
Rannsóknir á úrræðum
Í grófum dráttum má skipta fjar- og net-
úrræðum í tvo meginflokka, sjálfshjálpar-
úrræði (með eða án lágmarksstuðnings frá
meðferðaraðila) annars vegar og meðferðar-
úrræði (sem eru nær alltaf með stuðningi frá
meðferðaraðila) hins vegar.
Úrræði sem teljast til sjálfshjálpar eru oftar
en ekki í formi námskeiða sem gjarnan
eru sett fram með myndböndum, texta og
verkefnum til að kenna vissa meðferðarleið
eða til að hjálpa með vissan afmarkaðan
vanda, frekar en endilega að meðhöndla
geðraskanir sem mæta læknisfræðilegum
greiningarskilmerkjum. Ýmsar rannsóknir
eru til sem benda til að úrræði af þessum toga
geti reynst verulega gagnleg, sérstaklega
við vægari vanda. Hér má nefna dæmi um
rannsóknir á úrræðum sem ætluð eru til að
hjálpa fólki með verkjavandamál5, að hætta
að reykja6 og að taka upp heilsusamlegri
lífsstíl7. Stærsta áskorun úrræða af þessu
tagi er að vísbendingar eru um að margir
sem byrji á sjálfshjálparnetnámskeiðum
klári þau ekki eða fylgi ekki að öllu leyti
leiðbeiningum námskeiðsins8. Þó má draga
úr þessu vandamáli verulega með ein-
földum aðgerðum, til dæmis með því að
senda þátttakendum reglulega tölvupósta til
áminningar9.
Töluvert af rannsóknum hafa kannað hvernig
megi koma gagnreyndri sálfræðimeðferð til
skila með aðstoð stafrænnar tækni. Þessar
rannsóknir, sérstaklega þær sem snúa að
hagnýtingu hugrænnar atferlismeðferðar
með tæknilausnum, ná aftur um 20 ár og
teljast því varla lengur nýjar. Ef til vill er
merkilegasta niðurstaða þessara rannsókna
sú að heilt yfir virðist vel framkvæmd net-
og fjarmeðferð ekki skila minni árangri en
hefðbundin sálfræðimeðferð sem fer fram
augliti til auglitis10,11. Það er bæði merkilegt
og mikilvægt að vita að gagnreynd og góð
meðferð virkar líka yfir netið. Það bendir til að
mikil sóknarfæri séu til staðar þegar kemur
að því mikilvæga verkefni að auka aðgengi
almennings að sálfræðimeðferð. Einnig eru
í þróun aðferðir og tæknilausnir sem hafa
það að markmiði að hreinlega bæta meðferð
og gera hana hagkvæmari í framkvæmd.
Sem dæmi má nefna rannsóknir þar sem
sýndarveruleiki (Virtual Reality) er notaður til
að hjálpa fólki að takast á við sértæka fælni
eða mikinn kvíða við ákveðnar aðstæður,
svo sem fyrir börn sem þurfa að bera vitni
í sakamáli í réttarsal12. Önnur leið er að
nota farsímaöpp til að styðja við meðferð á
milli meðferðartíma. Þá skráir fólk hjá sér
líðan sína, fær áminningar um æfingar og
heimaverkefni á milli tíma og skráir hjá sér
hvernig æfingar gengu og meðferðaraðili
getur fylgst með í rauntíma og brugðist fljótt
við spurningum13.
Eðlilega hafa spurningar vaknað um hvort
samband skjólstæðings og meðferðaraðila,
sem vitað er að skiptir máli fyrir gagnsemi
meðferðar, sé ekki slakara þegar öll sam-
skipti fara fram í gegnum netið. Þetta hefur
verið töluvert kannað og niðurstaðan er sú
að meðferðarsambandið er almennt álíka
gott í netmeðferð og í annarri meðferð, sem
styrkir enn frekar stöðu þessara úrræða14.
Lifðu betur
Fyrir nokkrum árum var undirritaður að
störfum sem klínískur sálfræðingur á
Austurlandi. Á þeim tíma var staða geð-
heilbrigðismála í fjórðungnum þannig að
tveir öflugir sálfræðingar voru starfandi við
sérfræðiþjónustu skóla, einn til tveir sál-
fræðingar komu frá Reykjavík á nokkurra
vikna fresti og einn til tveir geðlæknar
gerðu slíkt hið sama. Þetta var sú þjónusta
sem í boði var fyrir um það bil 12 þúsund
manna samfélag sem dreifðist yfir tæplega
23.000 ferkílómetra svæði. Biðlistar voru
eðlilega langir og þjónustan oft ekki eins
og best var á kosið. Á sama tíma voru
að birtast tölur sem sýndu fram á að við
Íslendingar notuðum meira af kvíða-, svefn-
og þunglyndislyfjum en hin Norðurlöndin
og tölurnar fyrir Austurland voru hærri hvað
þetta varðaði en tölurnar á landsvísu15, 16. Því
miður komu þessar tölur ekki sérstaklega á
óvart, eftirspurn eftir geðheilbrigðisþjónustu
á þessu stóra (og oft illfæra) landsvæði var
mun meiri en framboðið og þau úrræði
sem í raun voru mest aðgengileg fyrir flesta
voru lyf. Nú er mikilvægt að taka fram að lyf
eru oft góður kostur í meðferð sálmeina en
rannsóknir sýna að við vægum til miðlungs
alvarlegum vanda er sálfræðimeðferð
áhrifaríkari og hagkvæmari og í alvarlegri
tilfellum er blönduð meðferð lyfja og sál-
fræðimeðferða oftast talinn besti kostur17.
Við þessar aðstæður austur á landi kviknar
hugmyndin að Lifðu betur, sjálfshjálpar-
námskeiði á netinu sem er ódýrt, einfalt og
aðgengilegt öllum með nettengingu. Lifðu
betur er byggt á ACT (Acceptance and
Commitment Therapy) sem við sem að
verkefninu stöndum þýðum sem sáttar- og
atferlismeðferð18. Við völdum ACT af því að
við töldum að það væri meðferð sem hentaði
sérlega vel að setja upp sem netnámskeið,
okkur fannst full ástæða til að koma ACT
meira á framfæri hérlendis og að búa til
meðferðarefni á íslensku, við töldum líklegt
að svipað námskeið byggt á hefðbundinni
hugrænni atferlismeðferð væri væntanlegt
frá öðrum aðilum og við vildum bjóða
valkost við það. Nýleg samantektarrannsókn
hefur sýnt fram á að ACT netmeðferðir
eru gagnlegar við fjölmörgum geðrænum
vandamálum, þær gagnast mörgum
ólíkum hópum fólks og árangurinn af
Við þessar aðstæður austur á landi
kviknar hugmyndin að Lifðu betur,
sjálfshjálparnámskeiði á netinu sem
er ódýrt, einfalt og aðgengilegt öllum
með nettengingu.“
53virk.is