Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 58
Með VIRK starfa tæplega 140 sjúkra-
þjálfarar sem veita fjölbreytta einstaklings-
og hópþjónustu fyrir einstaklinga með
stoðkerfisraskanir. Þeir styðja auk þess
einstaklinga til að gera hreyfingu að lífstíl.
Sjúkraþjálfurum í samstarfi við VIRK
fjölgaði á árinu og standa vonir til að
sjúkraþjálfurum fjölgi enn frekar meðal
þjónustuaðila á árinu 2021 þar sem
umsýsla vegna þjónustupantana er mun
skilvirkari í nýja upplýsingakerfinu og þörf
einstaklinga í þjónustu VIRK hefur ekki
dregist saman.
Um 125 þjónustuaðilar um land allt bjóða
upp á ýmsa heilsueflandi þjónustu og
má þar nefna líkamsrækt með stuðningi
íþróttafræðings eða þjálfara, vatnsleikfimi
og jóga. Talsverður fjöldi nýrra fagaðila
bættist í hóp þjónustuaðila á árinu.
Um 60 fræðsluaðilar og símenntunar-
miðstöðvar um allt land veita ráðgjöf og
fræðslu sem auka möguleika einstaklinga
á vinnumarkaði. Þjónustan felur meðal
annars í sér áhugasviðsgreiningar,
hæfnigreiningar, raunfærnimat, nám á
vottuðum námsleiðum auk fjölmargra
styttri námsleiða og námskeiða sem
auka möguleika á vinnumarkaði. Fjöldi
þjónustuaðila veitir atvinnutengda þjónustu
og má þar helst nefna vinnuprófanir,
úttekt og ráðgjöf og stuðning á vinnustað
við endurkomu til vinnu sem og úrræði
sem miða að því að búa einstaklinga undir
atvinnuleit. Fagaðilum sem veita ýmsa
ráðgjöf og þjónustu fjölgaði á árinu 2020.
Hópur útlendinga leitar einnig til VIRK
og er veittur ýmiss sértækur stuðningur
fyrir þennan hóp t.d. túlkaþjónusta
og íslenskunámskeið. Þörf er á fleiri
úrræðum fyrir útlendinga meðal allra hópa
þjónustuveitenda.
VIRK hefur átt í farsælu samstarfi við 9
starfsendurhæfingarstöðvar um allt land á
undanförnum árum. Samstarfssamningar
við starfsendurhæfingarstöðvar eru
liður í því að tryggja að til staðar sé
fagleg þekking og reynsla á sviði
starfsendurhæfingar um allt land. Samstarf
VIRK og starfsendurhæfingarstöðva
byggist m.a. á reglulegum þverfaglegum
rýnifundum þar sem farið er markvisst
yfir mál einstaklinga sem eru í þjónustu
starfsendurhæfingarstöðva á vegum VIRK.
Almenn ánægja er með samstarfið og
nýtist upplýsingakerfið vel við miðlun
á framvindu í starfsendurhæfingunni.
Sem hluti af fræðslu og samstarfi við
starfsendurhæfingarstöðvar bauð VIRK
kynningu á IPS aðferðafræðinni fyrir
allar starfsendurhæfingarstöðvar á
landinu þann 17. janúar 2020 og kom
þar fram mikill áhugi á að skoða betur
hvort og þá hvernig væri hægt að vinna
eftir aðferðafræðinni hér á landi. VIRK
hefur verið í samstarfi við Laugarás
meðferðargeðdeild (LMG) undanfarin ár
þar sem IPS atvinnulífstenglar frá VIRK
sinna þjónustuþegum LMG sem hafa sýnt
áhuga á endurkomu til vinnu.
Starfsendurhæfingarlíkan
VIRK byggir á heildrænni sýn
og þrepaskiptingu úrræða
Atvinnutengd starfsendurhæfing hjá VIRK
er einstaklingsmiðuð og byggir starfs-
endurhæfingarlíkan VIRK meðal annars á
Þrep 1
Forvarnir / á eigin vegum /
styrkleikavinna
Starfsendurhæfing á vegum VIRK – unnið með heilsubrest
Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4
Hindrun á færni 0-1
Engin til lítil áhrif á færni
til atvinnuþátttöku
Engin til lítil meðferðarþörf til
staðar, ósérhæfð inngrip,
almenn ráðgjöf og sjálfshjálp
Forvarnir / Velvirk-efni,
styrkleikavinna, námskeið,
hreyfiseðill og fleira
Hindrun á færni 2
Nokkur áhrif á færni
til atvinnuþátttöku
Almenn ráðgjöf og sjálfshjálp
Hópnámskeið / hópmeðferð /
fræðsla
Hindrun á færni 3
Talsverð áhrif á færni
til atvinnuþátttöku
Markviss meðferð / endurhæfing
svo sem sálfræðiviðtöl og
sjúkraþjálfun, ráðgjöf
Sérhæfð hópmeðferð /
einstaklingsmeðferð
Hindrun á færni 4
Veruleg áhrif á færni
til atvinnuþátttöku
Sérhæfð meðferð / endurhæfing
þverfagleg endurhæfing
einstaklingsmeðferð hjá
sérhæfðum fagaðilum og ráðgjöf
Sértæk hópmeðferð /
sérhæfð einstaklingsmeðferð
Skýrivísar vegna þrepaskiptingar úrræða
Mynd 3
Það sem stendur upp úr nú þegar sér
fyrir endann á faraldrinum eru skjót viðbrögð
þjónustuaðila sem sýndu mikla seiglu og
fagmennsku í að aðlaga starfsemi sína að þeim
veruleika sem blasti við í þjóðfélaginu.“
58 virk.is