Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 59

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 59
 VIRK Ef það er eitthvað sem árið 2020 hefur kennt okkur þá er það mikilvægi þess að vera alltaf tilbúin til að hugsa hlutina upp á nýtt. Það er ekkert meitlað í stein og þegar við erum tilbúin að hugsa út fyrir kassann finnast oft nýjar leiðir og í sumum tilvikum eru þær jafnvel árangurs- ríkari en þær gömlu.“ ICF flokkunarkerfi WHO um færni, fötlun og heilsu. Starfsendurhæfingin tekur mið af færniskerðingu og heilsu einstaklingsins og er ICF flokkunarkerfið nýtt til þess að fá heildræna sýn á heilsubrest hvers og eins. Tekið er tillit til persónutengdra þátta, sjúkdómsgreiningar, umhverfis, andlegrar heilsu, líkamlegrar virkni, þátttöku og athafna einstaklings. Á mynd 3 má sjá hvernig úrræðum í starfsendurhæfingu er skipt niður í þrep sem taka mið af áhrifum á færni til atvinnuþátttöku. Skýrivísar í ICF flokkunar- kerfinu eru nýttir til þess að flokka úrræðin í rétt þrep sem taka mið af hindrun á færni til atvinnuþátttöku. Fagaðilar í starfsendurhæfingu styðjast við klínískar leiðbeiningar í meðferðum og viðurkennd mælitæki eru nýtt til að meta árangur í starfsendurhæfingunni þar sem það á við. Unnið hefur verið að því í nokkur ár hjá VIRK að þrepaskipta úrræðum með það að markmiði að starfsendurhæfingin sé við hæfi hvers og eins. Á árinu 2020 fór fram gagnger endurskoðun á starfs- endurhæfingarlíkani VIRK og verður ný uppfærsla þess tekin í notkun á árinu 2021. Framundan eru kynningar á breytingunum fyrir þjónustuaðila VIRK en þeir eru mikilvægir samstarfsaðilar í teymi einstaklinga í starfsendurhæfingu. Úrræðasvið VIRK Á úrræðasviði starfa Ásta Sölvadóttir, Anna Lóa Ólafsdóttir, Freyja Lárusdóttir og Fjalar Þorgeirsson. Stærstu verkefni sviðsins þessa dagana eru þrjú stór verkefni sem koma til með að gera þjónustu við einstaklinga enn skilvirkari og betri. Verkefnin eru: 1. Þrepaskipting þjónustu, þjónustuleiðir, úrræði og tímamörk. 2. Skilgreining hópa í þjónustu, þjónustuframboð og árangur fyrir hópa. 3. Samstarf við þjónustuaðila vegna úrræða aukið m.a. með meiri fræðslu og þjálfun. Þróa betra mat á árangri í úrræðum í samstarfi við þjónustuaðila. Ef það er eitthvað sem árið 2020 hefur kennt okkur þá er það mikilvægi þess að vera alltaf tilbúin til að hugsa hlutina upp á nýtt. Það er ekkert meitlað í stein og þegar við erum tilbúin að hugsa út fyrir kassann finnast oft nýjar leiðir og í sumum tilvikum eru þær jafnvel árangursríkari en þær gömlu. Hvort sem við erum að tala um TEAMS, ZOOM, grímufundi, fjarráðgjöf, fjarúrræði, útileikfimi, náttúruhreyfingu, heimalíkamsrækt, jóga á netinu o.fl. þá hefur úrræðaflóran hjá VIRK líklega aldrei verið fjölbreyttari. Landsbyggðin hefur fagn- að þessu og ráðgjafar þar talað um að líklega hafi aldrei verið jafn fjölbreytt úrræði í boði og sl. vetur. Lærdómur tvö er því líklega; fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. 59virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.