Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Side 61
VIÐTAL
„Ég dvaldi um tíma í Kína í tengslum við
MBA-nám mitt. Ég á ættleidda dóttur frá
Kína og við fjölskyldan vildum kynnast
menningu, samfélagi og sögu þar,“ segir
Ingibjörg. Fyrir áttu hún og maður hennar
einn son. Guðbjörg og hennar maður eiga
þrjá syni. Þær geta þess að vel hafi tekist til
við að flétta saman starf og einkalíf.
Guðbjörg er iðjuþjálfi og lærði sitt fag í
Álaborg í Danmörku.
„Á þeim tíma var ekki byrjað að kenna
iðjuþjálfun á Íslandi. Að námi loknu starf-
aði ég sem iðjuþjálfi í Álaborg og í Kaup-
mannahöfn. Iðjuþjálfun hjálpar fólki meðal
annars að finna styrkleika sína. Ég er líka
jógakennari og hef eftir að heim til Íslands
kom unnið við endurhæfingu og ráðgjöf í
heilbrigðisgeiranum,“ bætir hún við.
Námskeiðin samsett úr
þremur þáttum
Hvernig er háttað samstarfi ykkar
við VIRK?
„Þjónustuþegar frá VIRK hafa sótt nám-
skeiðin okkar þar sem sameinaðar eru
kenningar og hugmyndafræði um betri
líðan meðal annars í nánari tengslum við
náttúruna. Við töldum að námskeið okkar
gæti nýst fólki sem er að upplifa álag og
streitu til þess að efla lífsgæði þess. Þannig
gæti það ígrundað eigið líf og tilfinningar og
fengið verkfæri til þess að vinna með.
Upphaf hvers þriggja klukkustunda náms-
dags hefst á fræðslu og áherslu á það sem
við gerum þann dag. Við ræðum praktísku
atriðin og hugmyndafræðina á bak við þau.
Síðan förum við út í kyrrðargöngu. Þegar
við komum til baka þá er leidd djúpslökun.
Þessum þremur þáttum er ætlað að hlúa að
lífsgæðum og daglegu lífi þátttakenda.“
Gakktu með sjó og
sittu við eld
Hvernig hefur það gengið?
„Námskeiðin okkar hafa spurst vel út. Við
leggjum okkur fram um að þátttakendur
tengi við eigið innsæi og skoði tilfinningar
sínar. Við álag og streitu getum við orðið
dálítið viðskila við okkar innra líf. Á nám-
skeiðum okkar gefum við sem sagt rými til
að staldra við svo þátttakendur geti skoðað
það sem inni fyrir býr. Þetta er auðvitað
gömul viska. „Gakktu með sjó og sittu við
eld,“ kvað völvan forðum. Við vitum þetta
flest en þurfum að rifja þetta upp þegar
álagið er mikið og við verðum tilfinningalega
dofin eða óróleg.“
Hvað einkennir þá sem koma til ykkar
frá VIRK?
„Þeir eiga það flestir sameiginlegt að upp-
lifa streitu og kvíða þótt streituvaldarnir sé
ólíkir. Þátttakendur á námskeiðum okkar
kynnast og við hlúum að heilandi og nær-
andi rými sem gefur ró og öryggi. Ætli fólk
að ígrunda eigið líf þarf það að finna til
öryggis í umhverfinu. Við leiðum þetta ferli
á mildan hátt. Miklu skiptir að fólki líði vel
hér og við gerum það sem við getum til að
svo verði í orði sem á borði.“
Eruð þið þess vegna með svona mikið af
blómum og jarðefnum?
„Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt að
það hefur róandi og heilandi áhrif að hafa
náttúruna innandyra í formi jurta og jarð-
efna. Ég er mikil blómamanneskja og sé um
að vökva,“ segir Guðbjörg og brosir.
„Að vinna með fólki úti í náttúrunni er hluti
af okkar bakgrunni hvað reynslu varðar,“
segir Ingibjörg. Hún kveðst vera alin upp á
Ströndum þar sem fjaran er full af rekavið.
Þessa sér stað í salnum þar sem námskeiðin
umræddu fara fram að hluta.
„Við viljum leggja áherslu á víða skírskotun,
þannig er nafnið á fyrirtækinu okkar til-
komið, Saga Story House. Við höfum svo
lengi unnið með lífssögur fólks á ólíkum ævi-
skeiðum,“ segir Ingibjörg. Guðbjörg kinkar
kolli samsinnandi.
Báðar hafa þær mikla reynslu af störfum í
heilbrigðisgeiranum, jafnt með ungum sem
öldnum.
Náttúran hinn stóri skóli og
mikla ástríða
Aðspurðar segjast þær Guðbjörg og Ingibjörg
hafa kynnst í öldrunarþjónustu Garðabæjar.
„Við vorum saman að leiða uppbyggingu nýs
hjúkrunarheimilis og nýrrar dagþjálfunar.
Báðar höfum við líka unnið með unglingum,
meðal annars á BUGL – Barna og unglinga-
geðdeild LSH,“ bæta þær stöllur við.
Skiptið þið með ykkur verkum í
fyrirtækinu?
„Við getum gengið í öll verk en höfum samt
þróað ákveðna verkaskiptingu. Ingibjörg
leiðir göngur úti í náttúrunni en ég leiðbeini
í djúpslökun sem er hluti af námskeiðum
okkar. Þau eru sem fyrr greindi saman sett
úr þremur þáttum, fyrst eru fyrirlestrar, svo
göngur úti við og loks djúpslökun eftir að inn
er komið. Hvert námskeið er átta sinnum
þrjár klukkustundir,“ segir Guðbjörg.
Þær Ingibjörg og Guðbjörg eru innilega
sammála um að náttúran sé hinn stóri skóli
og þeirra mikla ástríða. Í upphafi segjast þær
stöllur ekki hafa talið líklegt að námskeiðin
yrðu nema að sumarlagi. En annað kom á
daginn. Áhugi fólks á námskeiðunum leiddi
til þess að þau standa allt árið og einnig kom
fljótt fram áhugi á framhaldsnámskeiðum.
„Í öldrunarþjónustu Garðabæjar leiddum við
Guðbjörg líka starfsemi í heimaþjónustu og
félagsstarfi. Ég vann sem framkvæmdastjóri
í öldrunarþjónustunni og Guðbjörg sem
iðjuþjálfi. Við áttum gott samstarf á þessum
Þátttakendur á námskeiðum okkar kynnast og
við hlúum að heilandi og nærandi rými sem gefur
ró og öryggi. Ætli fólk að ígrunda eigið líf þarf það
að finna til öryggis í umhverfinu. Við leiðum þetta
ferli á mildan hátt.“
61virk.is