Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 63
VIÐTAL
vettvangi og dönsuðum á sömu línu hvað
hugmyndafræði snertir. Þessi margra
ára jákvæða samvinna leiddi til þess að
Guðbjörg sendi mér frétt í tölvupósti varð-
andi St. Jósepsspítala sem þá var verið að
enduropna. Í umræddri frétt kom fram að
Hafnarfjarðarbær væri að gera upp þetta
sögufræga hús með það að markmiði
að koma upp svonefndu Lífsgæðasetri
– klasasetri aðila sem væru að vinna að
bættum lífsgæðum fólks frá vöggu til grafar,“
segir Ingibjörg.
Skoða áhrif skynjunar á
lífsgæði
„Við sáum í Lífsgæðasetrinu einstakt tæki-
færi til að stofna saman fyrirtæki,“ segir
Guðbjörg. „Við höfðum báðar nokkra reynslu
af fyrirtækjarekstri. Mánuði síðar höfðum
við sagt upp störfum okkar og teknar til
við að byggja upp fyrirtækið Saga Story
House. Þetta gerðist árið 2018. Við fengum
dásamlega aðstöðu á St. Jósepsspítala.
En þegar kórónuveirufaraldurinn skall á
þurftum við aukið pláss til þess að geta tekið
á móti fleirum og jafnframt gætt sóttvarna.
Þess vegna leituðum við nýrrar aðstöðu
og fengum inni hér.“ Það er ekki ofsögum
sagt að rúmt er í salnum á efri hæðinni að
Flatahrauni 3.
„Við höfum hannað innréttingar og búnað í
samræmi við kynni okkar á því hve skipulag
og hönnun skiptir miklu máli í umhverfi
fólks. Við skoðuðum áhrif skynjunar á
lífsgæði og hlustuðum á sögur sem fólkið
á hjúkrunarheimilinu í Garðabæ sagði
okkur. Við urðum vitni að ýmsu sem snertir
áhrif náttúrunnar á líðan fólks. Til dæmis
því þegar gömul kona fór út daglega til að
strjúka klöpp sem er í garðinum. Við sáum
líka hve miklu skipti að komast út á stórar
svalir, hafa gott aðgengi út í garðinn, finna
rigninguna á andlitið og snjóinn, finna lykt
af nýslegnu grasi og þar fram eftir götunum.
Að hafa blóm í vasa er góð og hlýleg skynjun.
Bara það að koma með blóm og rekavið inn
á hjúkrunarheimilið gladdi fólkið. Við höfum
nýtt þessa reynslu á námskeiðum okkar,“
segir Ingibjörg.
Hin eðlislæga þörf fyrir
tengingu við náttúruna
Hefur fólk sem kemur til ykkar frá VIRK
misst þessa skynjun að einhverju leyti?
„Almennt er fólk nútímans ekki eins tengt
náttúrunni og áður gerðist, það á við um
okkur flest,“ segir Guðbjörg.
„Við höfum eðlislæga þörf fyrir tengingu
við náttúruna, slíkt er í genum mannsins.
Þetta er vissulega gömul viska en ný
vísindi – við erum að gera okkur grein fyrir
að streita er mikil heilsuvá. Við þurfum að
skoða hvað veldur. Er það tæknin? Er það
hraðinn í nútímasamfélagi? Í rauninni hefur
líkaminn alla burði til að heila sig sjálfur en
við þurfum að skapa honum umhverfi til
þess. Á námskeiðum okkar veltum við fyrir
okkur mikilvægum spurningum og veitum
fólki þá reynslu að fara út í náttúruna og
þiggja þá næringu sem það umhverfi getur
gefið. Síðan hjálpar djúpslökunin til,“ bætir
hún við.
Er eitt námskeið í átta lotum nógu langur
tími til að ná árangri í þessum efnum?
„Mjög fljótt urðum við varar við eftirspurn
eftir framhaldsnámskeiðum og brugð-
umst við henni. Nú erum við með jafn
langt framhaldsnámskeið eins og byrjunar-
námskeið eða tuttugu og fjórar klukkustundir
hvort námskeið,“ segir Ingibjörg.
Markmið rannsóknar að skoða
streitulosun náttúrunnar
Hvað varð til þess að gerð var rannsókn á
námskeiði ykkar hjá Háskóla Íslands?
„Við höfum eigin matslista þar sem við met-
um árangur þátttakenda á námskeiðum
okkar. En okkur fannst líka áhugavert að
athuga hvort fólk gæti yfirfært reynslu af
námskeiðunum á daglegt líf sitt. Við leituðum
því til Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og
könnuðum áhuga á að slík rannsókn yrði gerð.
Í framhaldi af því varð til meistaraverkefni
Berglindar Magnúsdóttur í félagsráðgjöf.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort
náttúrulegt umhverfi hefði streitulosandi
áhrif á fólk. Við báðum sérstaklega um
að náttúrutengingin yrði skoðuð. Slík varð
svo áhersla rannsóknarinnar hjá HÍ. Eins
voru rannsökuð gæði námskeiðsins í heild.
Þátttakendur í þessari rannsókn komu allir
hingað til okkar frá VIRK,“ segir Guðbjörg.
„Erlendis hefur orðið mikil vitundarvakning
í þessum efnum. Í æ ríkari mæli hefur
fólk áttað sig á þeim styrk sem náttúran
getur gefið. Ekki hafa verið gerðar margar
rannsóknir hér á áhrifum náttúrunnar á
líðan fólks. Og við vitum ekki til að önnur
rannsókn en þessi hafi verið gerð á samspili
náttúru og streitu varðandi líðan fólks,“ segir
Ingibjörg.
Niðurstaða rannsóknar
gleðilega í samræmi við
væntingar
Þær Guðbjörg og Ingibjörg segjast mjög þakk-
látar fyrir þetta meistaraverkefni Berglindar og
geta þess jafnframt að rannsókn hennar hafi
verið bæði eigindleg og megindleg.
„Í umræddri rannsókn voru lagðir fyrir þátt-
takendurna frá VIRK spurningalistar og tekin
við þá djúpviðtöl. Viðtölin voru hin eigindlega
rannsókn. Megindlega rannsóknin fól í sér
meðhöndlun á tölulegum gögnum. Þess ber
að geta að í rannsókn þessari voru einnig
lagðar spurningar fyrir aðstandendur þátt-
takenda. Niðurstöður rannsóknarinnar
– „Náttúran græðir og grætur með mér“.
Áhrif náttúrunnar á streitu – má finna á vef
Skemmunnar.
Niðurstaða rannsóknar Berglindar reyndist
sú að dvöl í náttúrunni undir faglegri leiðsögn
leiðbeinanda hafi streitulosandi áhrif –
nokkuð sem gladdi okkur mjög,“ segja þær
Guðbjörg og Ingibjörg og bæta við að sú
niðurstaða hafi reyndar verið í samræmi við
væntingar þeirra og reynslu.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Við höfum eðlislæga þörf fyrir tengingu
við náttúruna, slíkt er í genum mannsins.
Þetta er vissulega gömul viska en ný vísindi
– við erum að gera okkur grein fyrir að streita
er mikil heilsuvá. Við þurfum að skoða hvað
veldur. Er það tæknin? Er það hraðinn í
nútímasamfélagi?“
63virk.is