Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Side 68
KULNUN (E. BURNOUT)
HEFUR VERIÐ TALSVERT
Í UMRÆÐUNNI SÍÐAST-
LIÐIN ÁR OG MIKIÐ
UM HANA RÆTT OG
SKRIFAÐ.
Þ
að er mikilvægt þegar rætt er um
menn og málefni að ákveðin sam-
staða sé um skilgreiningar á því sem
átt er við, þó vissulega geti verið
skiptar skoðanir um málefnið. Umræður
geta verið af hinu góða og mikilvægt að
opnað sé á samtalið og fólk hvatt til að segja
frá sér, sinni líðan og högum. Þegar umræða
verður mikil og skilgreiningar óljósar getur
það gerst að fleiri spegla sig í því sem um er
rætt. Og jafnvel aðilar með alvarleg einkenni
annars vanda sem mikilvægt er að veita
viðeigandi meðferð við.
Því er gott að staldra við og skoða hvort
við séum á réttri leið, hvort við séum eins
sammála og hægt er hverju sinni um grunn
skilgreiningar og hvað rannsóknir segja
okkur. Það er vænlegra til árangurs að
afmarka, skýra og skilgreina þá þætti sem
vinna þarf með hverju sinni fremur en að
vísað sé til mjög almennra og jafnvel óljósra
skýringa á vanda einstaklinga. Skilgreiningar
eru því ávallt mikilvægar þegar mæta á vanda
á sem árangursríkastan hátt. Sömu einkenni
geta verið birtingamynd mismunandi
vanda og jafnvel verða að koma fram svo
greiningarviðmiðum sé mætt, þó einkenni
geti ein og sér ekki sagt alla söguna.
Þunglyndi og kulnun í starfi geta bæði lýst
sér í orkuleysi og þreytu svo nefnt sé dæmi1.
Þannig geta einstaklingar með mismunandi
vanda haft svipaðar hindranir þegar kemur
að vinnu. Þegar verið er að skoða samspil
ákveðinna aðstæðna, til dæmis vinnu
og heilsu fólks, þarf að vera skýrt hverjir
geti aðstoðað og dregið úr neikvæðum
áhrifum. Þegar vinnustaður á hlut að máli
er mikilvægt að hann komi þar að, en einnig
að þegar hann er ekki hluti af vandanum sé
leitað annarra viðeigandi leiða.
Hvað er kulnun?
Samkvæmt flokkunarkerfi (ICD-11) Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) er kulnun
skilgreind sem svo:
„Kulnun er heilkenni sem er afleiðing lang-
varandi streitu á vinnustað sem ekki hefur
tekist á árangursríkan hátt að ná stjórn á.
Einkenni kulnunar eru á þremur víddum:
1) Orkuleysi eða örmögnun; 2) Andlega
fjarverandi í vinnu, neikvæð viðhorf eða
tortryggni tengd vinnustað; 3) Minni afköst
í vinnu. Kulnun vísar til fyrirbæris í tengslum
við vinnuumhverfið og ætti ekki að nota til að
lýsa reynslu á öðrum sviðum lífsins.1”
ÞRÓUNARVERKEFNI VIRK
KULNUN Í STARFI
BERGLIND STEFÁNSDÓTTIR OG
GUÐRÚN RAKEL EIRÍKSDÓTTIR
sálfræðingar og verkefnastjórar hjá VIRK
68 virk.is