Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 71
VIÐTAL
Má hver sem er koma í móttökuna? spyr
blaðamaður.
„Stundum kemur hingað fólk af götunni,
sem er ekki í þjónustu hjá VIRK, til að leita
sér upplýsinga. Við útskýrum hvernig ferlið
fer fram og beinum því svo til læknis ef það
vill sækja um þjónustu hjá VIRK. Núna eru
færri á ferli en venjulega. Það gerir ástandið
vegna Kóvid-19. Um tíma, í fyrstu bylgjunni,
unnum við allar heima. Það gekk allt saman
vel fyrir sig. Við skipulögðum okkur vandlega
og það skilaði sér. Í þriðju bylgjunni í haust
var almennri móttöku lokað hér um tíma,
við vorum þá fljótar að komast í heimagírinn
aftur, þær sem þess þurftu.“
Að sögn kvennanna starfa í móttökunni að
jafnaði tveir þjónustufulltrúar í fullu starfi og
tveir í hlutastarfi. Á fyrstu hæð er móttaka
VIRK og einnig á fjórðu hæðinni.
„Við höfum starfað tvær og tvær saman á
hvorum stað en undanfarna mánuði hefur
móttakan á fjórðu hæðinni verið alveg
lokuð vegna faraldursins. Nú er breytinga
að vænta. Starfsemi VIRK flytur senn í
Borgartún 18 og þá verðum við á einni hæð
í móttökunni þar,“ segir Ellen María.
Samstarfskonurnar segjast hlakka til að fá
að vinna allar saman á sömu hæðinni.
„Það verður ábyggilega gaman. Við þjón-
ustufulltrúar sinnum tveimur til þremur
símaskiptiborðum. Við fáum allskonar fyrir-
spurnir sem gerir vissulega þær kröfur að
við séum vel inni í hinum ýmsu þáttum
fjölbreytilegrar starfsemi VIRK. Við þurfum
jafnvel að hafa upplýsingar um aðrar
stofnanir, til dæmis Tryggingastofnun. –
Við höfum margt á okkar könnu, jafnvel að
panta flug fyrir sérfræðinga og þjónustuþega
sé þörf á slíku,“ segir Hanna Björk.
Reynum að vera bakhjarlar
Getið þið leyst úr öllum spurningum
sem til ykkar er beint?
„Næstum því – en af og til kemur þó
upp eitthvað nýtt og þá er bara að segja:
„Augnablik“ – og fara svo að skoða málið
og jafnvel leita upplýsinga í okkar kerfum
eða á netinu. Fólkið sem kemur eða hringir
í móttöku VIRK telur að við sem störfum hér
hljótum að hafa svör við flestu,“ segir Hanna
Björk. Samstarfskonur hennar samsinna
þessum orðum. Allar hafa þær greinilega
lent í slíkum kringumstæðum.
Hvað gerið þið ef fólkið sem til ykkar leitar
er ekki sátt?
„Við höfum tileinkað okkur ákveðið verklag.
Við reynum að greina vanda og hjálpa eftir
bestu getu í þeim málum sem að okkur
snúa. Bæði gagnvart þeim sem hingað koma
og einnig þeim sem hringja – ef það dugar
ekki höfum við samband við sérfræðinga
á hinum ýmsu sviðum. Við lokum ekki
móttökunni og við skellum aldrei á,“ segir
Hanna Björk.
Samstarfið í hópnum er gott
Fáið þið handleiðslu hjá sérfræðingum
ef þörf er á?
„Við getum fengið handleiðslu en þess ger-
ist sem betur fer sjaldan þörf. Samstarfið
milli okkar fjögurra sem vinnum saman í
móttökunni er gott þótt við séum vissulega
gríðarlega ólíkar. Við höfum allar ákveðna
styrkleika en auðvitað einhverja veikleika
líka. Einmitt af því við erum svona ólíkar þá
getur orðið töluverð sveifla í samskiptunum.
En ef eitthvað kemur upp innan okkar
hóps sem þarf að ræða þá erum við ekki
feimnar við það,“ segir Kamilla Hildur og
lítur til samstarfskvennanna. Þær kinka kolli
samsinnandi.
„Við þekkjumst vissulega orðið ansi vel og
erum í raun samheldinn hópur enda erum
við mest saman hér í móttökunni – þar er
okkar staður,“ bætir Kamilla Hildur við.
Eruð þið með „allt á hreinu“ sem gerist
innanbúðar hjá VIRK? spyr blaðamaður.
„Það má segja það – allavega allt sem
lýtur að starfseminni sem slíkri og hverjir
eru við störf hér á hverjum tíma og annast
verktöku. Undanfarið ár hefur óneitanlega
verið áskorun. Margt er breytt frá hinum
venjulegu kringumstæðum. En segja má að
þetta hafi gengið glimrandi vel. Við tökum
á móti öllum þeim sem þurfa að komast
í mat hjá sérfræðingum,“ segir Kristín
Bjarnadóttir.
„Hjá VIRK starfa fastráðnir sérfræðingar og
einnig verktakar. Við þurfum að sjá um að
tengja þá saman sem þess þurfa. Hingað
leita margir af erlendum uppruna en VIRK
pantar túlkaþjónustu þegar slíkrar þjónustu
gerist þörf. Núna, á Kóvidtíma, hafa túlkar oft
þurft að hringja í viðkomandi þjónustuþega
héðan, þá er keypt bæði símaþjónusta og
Hér ríkir starfsgleði, ys og þys.
Enginn dagur er eins. Við erum
alltaf að læra eitthvað nýtt. Við erum
stoltar af að vinna hjá VIRK sem er
frábært fyrirtæki og gerir mikið gagn.“
Smám saman hefur myndast við borðið
mikil samkennd sem lýsir sér í svipbrigð-
um og skilningsríkum brosum kvennanna,
þetta er augljóslega reynsla sem þær eiga
sameiginlega. Þær segjast hafa sótt nám-
skeið og yfirmenn sjái til þess að upplýsingar
um breytingar í starfseminni skili sér til
þeirra fljótt og vel.
„Stundum hjálpumst við að þegar um er að
ræða erfið símtöl. Leysum hvor aðra af þegar
okkur finnst það hjálpa þeim sem við eigum
samskipti við. Það gefur viðmælendum
okkar tilfinningu fyrir að verið sé að gera það
sem unnt er og þannig er það líka – jafnvel
þótt svörin séu keimlík. Við reynum að vera
bakhjarlar hver fyrir aðra ef þörf krefur,“
segir Kamilla Hildur.
71virk.is