Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 72
túlkaþjónusta svo einstaklingurinn sem um
ræðir geti svarað spurningalistum og þess
háttar. Þetta hefur allt gengið prýðilega.
Þegar verst gegndi var aðeins hægt að
taka á móti einum í einu hér inni vegna
takmarkanna. Þeir sem koma þurfa að gæta
sóttvarna, spritta sig og setja á sig grímu. Allt
hefur þetta verið fremur tafsamt en gengið
þó,“ segir Kristín.
Allt gert til að auðvelda
starfið í móttökunni
Hafið þið verið áhyggjufullar vegna heilsu
ykkar sjálfra?
Allar fjórar þvertaka fyrir slíkt. „Alls ekki,
við höfum gætt okkar vel, notað handþvott,
spritt og grímur. Á okkar verksviði hefur
einnig verið að sjá um að sótthreinsa og
undirbúa fundarherbergi og fleiri rými fyrir
notkun. Við tökum líka fram við fólk sem
hefur samband að það megi alls ekki koma
ef það er með flensulík einkenni. Ætli megi
ekki segja að hér hafi verið meira umstang
en venjulega er,“ segir Hanna Björk.
Hafið þið sloppið við Kovidsmit?
„Já. Við höfum reyndar farið í sýnatöku. Haft
smávægileg einkenni og þá farið í kóvidpróf
eins og vera ber. Heima biðum við svo eftir
svari sem reyndist neikvætt í öllum tilvikum.
Síðan komum við bara aftur til starfa hér,“
segja þær.
„Þess ber að geta að allt hefur verið gert
hér til þess að auðvelda okkur starfið í
móttökunni. Okkur hafa boðist plasthlífar,
grímur, hanskar, spritt og allt það sem vörn
er talin í. Við fjórar lítum hins vegar á okkur
sem „eina kúlu“. Við erum ekki með grímur
okkar í millum. Við gætum okkar líka vel
utan vinnu, erum ekki á neinu flakki,“ segir
Kamilla Hildur.
Hefur aðsóknin aukist til VIRK á
undanförnum mánuðum?
„Nei, ekki ennþá. Allt hefur þetta stýrst af
faraldrinum. Fólk fór minna til læknis eftir því
sem smitum fjölgaði. Þegar smitum fækkaði
óskaði fólk fremur eftir að komast í þjónustu
hjá VIRK. Hins vegar má sennilega búast
við fjölgun þjónustuþega þegar faraldrinum
lýkur,“ segir Ellen María.
Þolinmæði mikilvægasti
eiginleikinn
Hvaða eiginleika teljið þið mikilvægastan í
ykkar starfi? spyr blaðamaður.
„Þolinmæði,“ svara allar fjórar í kór og hlæja.
„Gildi VIRK eru – fagmennska, virðing og
metnaður – ætli megi ekki bæta þolinmæði
við í okkar tilviki,“ segir Kristín.
Allar eru konurnar í móttökunni vel
menntaðar. Ellen María er sjúkraliði og
heilbrigðisgagnafræðingur. Hanna Björk
er nemi í heilbrigðisgagnafræði og söng-
kennari. Kamilla Hildur er kennari og
förðunarfræðingur og Kristín er ferða-
fræðingur og með próf frá NTV í skrif-
stofu- og tölvunámi.
Þær eru sammála um að margþætt menntun
geri þær sem heild skilningsríkari starfsmenn
og bæta því við að vinnan í móttökunni sé
bæði skemmtileg og fjölbreytt.
„Hér ríkir starfsgleði, ys og þys. Enginn dagur
er eins. Við erum alltaf að læra eitthvað nýtt.
Við erum stoltar af að vinna hjá VIRK sem
er frábært fyrirtæki og gerir mikið gagn,“
segja þessar glaðbeittu samstarfskonur –
þjónustufulltrúarnir í móttökunni hjá VIRK
Starfsendurhæfingarsjóði.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
72 virk.is