Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 74
Eftir höfðinu dansa limirnir
Við þörfnumst hver annars, við erum fædd til að tengjast. Eitt af því
mikilvægasta sem við erum að læra á þessum COVID tímum er að
allir skipta máli, að fjölbreytileikinn gerir okkur sterkari til að takast
á við áskoranir lífsins. Það er merkileg upplifun að vera þátttakandi
á slíkum umbrotatímum og sjá eingöngu „toppinn af ísjakanum”
af þeim breytingum sem að eru í vændum. Flest erum við þó
sammála um að COVID gerði það að verkum að aðlögunarhæfnin
okkar var sett undir mikla pressu og tæknilega þurftum við að færa
okkur fram um nokkur ár, innan nokkurra vikna.
Sem leiðtogaþjálfi sé ég þessa hröðu þróun með augum leiðtogans.
Það er greinilegt hvaða fyrirtæki „áttu inni” fyrir mótvindinum.
Hverjir höfðu hlúð að trausti og samtali í gegnum árin, hverjir voru
tilbúnir að takast á við miklar og hraðar breytingar, hverjir áttu
auðvelt með að fá starfsfólkið með sér í lið. Ástæðan fyrir því að
einmitt þessum fyrirtækjum tókst að takast á við mótvindinn var
LEIÐTOGAHÆFNI
TIL FRAMTÍÐAR forvarnir á 21. öldinni
GUÐRÚN SNORRADÓTTIR stjórnendaþjálfi hjá Human Leader, MSc í hagnýtri
jákvæðri sálfræði (MAPP)
leiðtogahæfni þeirra er stóðu í stafni. Eftir höfðinu dansa limirnir, er
gamalt og gott máltæki, sem vel á við í þessu samhengi. Í þessum
pistli mínum mun ég fjalla um fleiri áskoranir sem framundan eru
og hvaða leiðtogahæfileikar eru hve mikilvægastir til að takast á við
slík verkefni.
Áskoranir framundan
Það sem framundan er, á 21 öldinni, eru stöðugar, skyndilegar
og oft á tíðum óundirbúnar breytingar. Leiðtogar frá öllum sviðum
atvinnulífsins eru kallaðir til borðsins til að skapa vinnuumhverfi sem
mætir þessum breytingum. Þeir þurfa að tryggja að þeirra vinnustaður
geti sýnt frumkvæði, sveigjanleika og þrautseigju, þegar í harðbakkann
slær. Þörfin fyrir vel þjálfaða leiðtoga hefur líklega aldrei verið meiri,
leiðtoga sem eru vel undirbúnir fyrir hið óvænta1.
Ef við lítum á nokkrar framtíðarspár, um komandi áskoranir, þá eru
nokkur „þemu“ vel þekktar stærðir.
74 virk.is