Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 83
VIÐTAL
„Hlutverkasetrið er virkni- og endurhæfingar-
miðstöð sem býður upp á allskonar leiðir
til að fólk geti haldið sér virku,“ segir Helga
Ólafsdóttir.
„Samstarfið við VIRK hefur verið mjög já-
kvætt. Við höfum fundið mikinn velvilja frá
VIRK í okkar garð. Ráðgjafar VIRK benda
þjónustuþegum sínum reglulega á okkur og
mættu jafnvel gera meira af því,“ bætir Helga
við og hlær glaðlega.
Hvenær byrjaði þetta samstarf?
„Það hefur staðið í nokkur ár. Hlutverkasetrið
var stofnað 2005. Fyrstu árin var megin-
aðrir sjaldnar. Allt eftir óskum og þörfum
viðkomandi einstaklings. Við erum tíu
sem störfum hér, sumir í hlutavinnu. Einu
sinni í viku eldum við mat og svo erum við
svo heppin að hafa Samhjálp hér á næstu
grösum. Þar er boðið upp á mat á hverjum
degi. Við fáum oft mat þaðan sem kemur sér
vel. Hingað eru allir velkomnir.“
Hvernig er samstarfi ykkar við VIRK háttað?
„Við höfum verið styrkþegar VIRK og á
móti benda ráðgjafarnir þjónustuþegum
á úrræði Hlutverkasetursins. Við heyrum í
ráðgjöfunum reglulega og fólk sem kemur
hingað eftir ábendingu þeirra heldur sumt
áfram að koma hér eftir að þjónustunni hjá
VIRK er lokið. Það er mjög ánægjulegt.“
Hver er ástæða þess að fólk leitar í
Hlutverkasetrið?
„Ástæðurnar eru margvíslegar, stundum
er fólk að leita að ákveðnum úrræðum, svo
sem slökun, dansi, handavinnuklúbb sem
starfar hér tvisvar í viku og þar fram eftir
götunum. Sumir eru einmana og leita eftir
félagsskap. Þeir finna hann hér. Allir koma á
sínum eigin forsendum. Þörfin er greinilega
mikil og ánægja þeirra sem koma er augljós.
Við erum með ólíka hópa en samkomulagið
er ótrúlega gott.“
Eruð þið með námskeið?
„Nei ekki beinlínis. Oft er fólk sem kemur
hingað búið að sækja mörg slík og er
fremur að sækja sér félagsskap og viðhalda
virkni. Hér getur fólk komið og farið að vild
í lengri eða skemmri tíma. Mörgum líkar
slíkt fyrirkomulag vel. Við tökum á móti fólki
þar sem það er statt. Vilji fólk sérhæfðari
námskeið er slíkt í boði víða annars staðar.“
Hver borgar þessa starfsemi?
„Við erum með þjónustusamning við félags-
málaráðuneytið sem Vinnumálastofnun
heldur utan um, Reykjavíkurborg styrkir
starfsemi okkar og loks höfum við sótt um
Hér getur fólk
komið og farið að vild
í lengri eða skemmri
tíma. Mörgum líkar
slíkt fyrirkomulag vel.
Við tökum á móti fólki
þar sem það er statt.“
áherslan á endurhæfingu en þegar atvinnu-
leysið jókst eftir efnahagshrunið 2008 varð
ljóst að þörf fyrir virkni var mikil. Þegar vinnan
er ekki lengur til staðar breytist gjarnan
félagslegur veruleiki fólks til hins verra. Þá var
áherslunum hér breytt og þannig hefur það
verið síðan. Einkunnarorð okkar eru: „Vertu í
aðalhlutverki í eigin lífi.“
Íslensk sýn ræður ríkjum innan Hlutverka-
setursins en ákveðin verkefni eru að erlendri
fyrirmynd. Úrræðið notandi spyr notanda er til
dæmis þekkt ytra – þá spyr tilvonandi notandi
einhvern sem er að nota eitthvert úrræði álits
á því. Af okkar hálfu er alltaf skoðað hvað
gengur vel og hvað má betur fara. Hægt
er að hafa beint samband við okkur hér. Í
framhaldi af því förum við með viðkomandi í
kynningu á starfseminni. Hafi hann áhuga á
að halda áfram fær hann skráningarblað og
býðst að mæta í allt það sem hér er í boði.“
Hvað er vinsælast hjá ykkur?
„Listanámskeiðið. Við erum með færa mynd-
listarkennara sem fá jafnvel þá sem aldrei
hafa reynt sig á þessum vettvangi til þess
að teikna og mála af leikandi færni. Hingað
kemur fólk á breiðu aldursbili og úr ýmsum
stéttum samfélagsins. Sumir staldra stutt
við, aðrir lengur. Sumir koma oft í viku en
og fengið árlega styrki frá VIRK fyrir ákveðin
verkefni. Við leigjum hér í Borgartúni 1, þú
ættir að sjá hvað þetta húsnæði hentar
okkur vel.“
Helga lætur ekki sitja við orðin tóm. Hún
stendur á fætur og býður blaðamanni að
skoða sig um. Greinilega er hér mjög margt
í boði, ótal púslkassar eru í hillum, efni til
að sauma úr með fannhvítum saumavélum
handavinnurýmisins. Tölvuherbergið stendur
fyrir sínu og Salurinn bíður eftir dansfólki
og jógaunnendum. Herbergi eru líka til
reiðu fyrir þá sem vilja hvíla sig frá dagsins
önn. Allt er þarna vel um gengið og sérlega
notalegt. Eldhús er í miðju húsnæðinu en
frammi á gangi situr handavinnuhópurinn við
prjónaskap og spjall.
Við kveðjum Helgu og Hlutverkasetrið
með hlýju og göngum út á gangstéttina.
Sú tilfinning er góð að til skuli vera staður
sem býður hverjum þeim sem vill þiggja
skemmtun, fræðslu og félagsskap.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Hlutverkasetur
83virk.is