Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 40
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með móttöku og skráningu erinda og skjala
• Samræmir og hefur með höndum skipulag, ábyrgð og umsjón með skjalamálum bæjarins
• Umsjón og eftirlit með skjalastefnu og þróun hennar
• Endurskoðun og mótun verklags við skjalastjórnun
• Umsjón með skjalamálum og skjalasafni, málaskrá, málalykli, geymsluskrá
• Gerð skjalavistunaráætlana, verklagsreglna og vinnuleiðbeininga fyrir skjalavörslu
• Eftirfylgni með skjalaskráningu
• Skipulagning og framkvæmd með fræðslu og kennslu í skjalamálum
• Ráðgjöf, stuðningur og þjónusta við stjórnendur og starfsmenn um skjalamál
• Þátttaka í þróun rafrænna skila til Þjóðskjalasafns
• Almenn skrifstofustörf og þjónusta við íbúa og aðra viðskiptavini
• Ýmiss sérverkefni sem upp kunna að koma og starfsmanni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem bókasafns- og upplýsingafræði
• Mjög góð þekking og reynsla af skjalamálum er skilyrði
• Góð þekking eða reynsla á opinberri stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er mikilvæg
• Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfinu GoPro er mikill kostur
• Góð tölvuþekking og skilningur á öryggis- og upplýsingatækni er nauðsynleg
• Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
• Frumkvæði, metnaður og nákvæmi í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku ásamt hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Tímabundið laust starf
Skjalastjóra Seltjarnarnesbæjar
seltjarnarnes.is
Seltjarnarnesbær auglýsir starf skjalastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða.
Starfshlutfall er 100%.
Leitað er eftir öflugum skjalastjóra til starfa á bæjarskrifstofunni og heyrir starfið beint undir sviðsstjóra
Þjónustu- og samskiptasviðs. Skjalastjóri hefur það hlutverk að leiða og þróa skjalamál sveitarfélagsins og
ber ábyrgð á að farið sé eftir gildandi lögum og reglum um skjalavistun. Í boði er áhugavert starf sem reynir
á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir
ástæðum umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is
Nánari upplýsingar veitir María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs
Seltjarnarnesbæjar, maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Jafnlaunavottun er í gildi hjá Seltjarnarnesbæ.
Erum við
að leita
að þér?
4 ATVINNUBLAÐIÐ 5. júní 2021 LAUGARDAGUR