Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 44
Nánari upplýsingar veita Þóra B. Helgadóttir framkvæmdastjóri á sviði rekstrar, (thora.helgadottir@sedlabanki.is) og Erla Trausta-
dóttir sérfræðingur á mannauðssviði (erla.traustadottir@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 14. júní nk.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan og traustan einstakling í starf forstöðumanns
rekstrarþjónustu á sviði rekstrar.
Rekstrarsvið er eitt af stoðsviðum Seðlabankans og er hlutverk þess að sinna fjölbreyttri þjónustu er varðar innri starfsemi
bankans ásamt því að bera ábyrgð á innkaupum og rekstrarbókhaldi. Deild rekstrarþjónustu er ný eining á sviðinu og er
markmið hennar að stuðla að nútímalegu og heilsueflandi starfsumhverfi fyrir starfsfólk og gesti bankans.
Deildin ber ábyrgð á þjónustu bankans við starfsfólk og gesti, hefur umsjón með eignum ásamt framkvæmdum og
viðhaldi þeim tengdum, auk þess að sjá um rekstur mötuneytis, veitingaþjónustu og safna bankans. Rekstrarþjónusta
hefur einnig umsjón með viðburðastjórnun og framkvæmd öryggismála í bankanum.
Forstöðumaður
rekstrarþjónustu
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi
deildarinnar
• Dagleg verkstjórn og mótun liðsheildar
• Umsjón með lausafjármunum, fasteignum og
framkvæmdum
• Umsjón með þjónustu við starfsfólk og gesti
• Umsjón með mötuneyti, veitingaþjónustu og
viðburðum
• Umsjón með framkvæmd öryggismála
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Viðeigandi reynsla af störfum er tengjast rekstri
og þjónustu
• Sterkir leiðtogahæfileikar og marktæk
stjórnunarreynsla
• Sterkir skipulagshæfileikar og rík þjónustulund
• Reynsla af framkvæmdum er kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá
sig í ræðu og riti
• Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri
teymisvinnu
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná
árangri í starfi
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn um starfið þarf
að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjara-
samningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upp-
lýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
2019 - 2022
Tveir hjúkrunarfræðingar
á skurðstofu
80-100% starf
Leitum að tveimur einstaklingum með íslenskt
hjúkrunarleyfi og reynslu. Leyfi í skurðhjúkrun æskilegt.
Önnur staðan er stjórnunarstaða með yfirumsjón með
skipulagi og verkefnum á skurðstofunum og mun í
fyrstu vinna samhliða núverandi stjórnanda sem mun
láta af störum á næstunni sakir aldurs. Verksvið er
vinna og skipulag á skurðstofum, innkaup, gæðastarf
og eftirlit. Samskipti við sjúklinga og leiðbeining.
Æskileg er góð tölvukunnátta (word/excel), frum
kvæði, forystu og samskiptahæfni, stundvísi og
faglegur metnaður.
Upplýsingar veitir Stefán E. Matthíasson framkvæmda stjóri
sem tekur við umsóknum með náms og starfs ferils skrá auk
meðmælenda, rafrænt á stefan@laekning.is, eða í síma
696 7585. Starfskjör eru samningsatriði en grundvallast á
samningi SA og viðkomandi stéttarfélags.
Skurðstofan ehf hóf starfsemi árið 1996. Þar eru gerðar dag skurð
að gerðir í almennum, æða, lýta fegrunar, bæklunar og kven
sjúk dóma skurðlækningum. Frá stofnun rúmlega 45000 aðgerðir.
Alger endurnýjun tækja og búnaðar hefur átt sér stað undanfarið
og býr fyrirtækið nú yfir bestu fánlegu tækni á sínu sviði.
Skurðstofan er lítið fyrirtæki með samheldnum hópi starfsmanna
þar sem lögð er áhersla á góða þjónustu og gæði. Vinnutími er að
öllu jöfnu frá kl 816 virka daga.
Lágmúla 5, 108 Reykjavík. S. 590 9213.
Leitum að öflugum
liðsauka
Um sóknar frestur er til 15.06. 2021.
Arkitekt
með reynslu af samkeppnum, gerð aðaluppdrátta og verk-
teikninga. Reynsla af eftirfarandi forrritum: Autocad, Revit,
Skechup og Adobe forrit.
Landslagsarkitekt
með reynslu af landslags- og borgarhönnun, lóðahönnun
og gerð skipulagsuppdrátta. Reynsla af eftirfarandi
forrritum: Autocad, Gis, Skechup og Adobe forrit.
Helstu verkefni framundan eru hönnun 1. lotu Borgarlínu,
hönnun íbúðabygginga, Náttúrufræðisafn á Nesi, ýmis
verkefni á vegum ríkis og sveitarfélaga og fjöldi þróunar-
verkefna.
Mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum og
frumkvæði er mikils metið.
Viðkomandi þarf að hefja
störf í ágúst/september.
Allar umsóknir eru
meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál.
Umsóknir þurfa að inni-
fela ferilskrá og portfolio
og skal senda á
solveig@yrki.is.
Yrki arkitektar leita að góðu
starfsfólki sem er tilbúið í áskoranir
Launafl er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð með fjölbreytta starfsemi í flestum greinum sem
lúta að iðnaði. Í fyrirtækinu er skemmtilegur starfsandi og öflugt starfsmannafélag.
Austurland er góður búsetukostur, kynntu þér það nánar á www.austurland.is
Launafl ehf – www.launafl.is – sími 414-9400
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið Mannauðsstjóra
• Ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni mannauðsmála
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í
mannauðsmálum
• Þróun starfsumhverfis, þ.m.t. mannauðsstefnu, jafn-
launakerfis, starfsþróunar/Endurmenntunaráætlunar
• Umsjón með mannauðsmælingum og ánægjukönnunum
• Ábyrgð á fræðslu stjórnenda og almennra starfsmanna,
þ.m.t. móttaka og þjálfun nýliða
• Mat á mannaflaþörf, skipulag og umsjón með ráðningum
í samvinnu við stjórnendur
• Ábyrgð á uppfærslu og útgáfu starfsmannahandbókar
• Öryggi og velferð starfsmanna
• Framkvæmd og ábyrgð á launakeyrslum
• Fylgja eftir framkvæmd kjara- og stofnanasamninga
• Þátttaka í ýmsum verkefnum og starfshópum
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, æskilegt að viðkomandi
er með framhaldsmenntun í mannauðsmálum.
• Starfsreynsla á sviði mannauðsmála er skilyrði
• Reynsla af stefnumótun og áætlunargerð á sviði man-
nauðsmála
• Mjög góð almenn tölvufærni
• Gott vald á íslensku og ensku til að miðla upplýsingum
bæði í ræðu og riti
• Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
• Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða
eftir samkomulagi.
Hvetjum alla áhugasama að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2021. Umsóknir, ferilskrár og kynningarbréf sendist til magnus@launafl.is eða í
gegnum www.launafl.is
Upplýsingar veitir Magnús Helgason framkvæmdarstjóri í síma 840-7211 og magnus@launafl.is
Launafl ehf. – www.launafl.is – sími 414-9400.
Mannauðsstjóri
Launafl ehf leitar að metnaðarfullum, skemmtilegum og drífandi einstaklingi til að starfa sem mannauðsstjóri
fyrirtækisins á Reyðarfirði. Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptafærni, skipulagshæfileika og faglega þekkingu.