Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 83
Sigríður Bylgja hér ásamt Höllu Kolbeinsdóttur, sem hannaði vefsíðuna utan um Lífsbókina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svona munu merkingarnar á trjánum líta út og QR kóðinn geymir heila sögu.
Þarna var komin hugmynd að
bálstofu og minningagarði fullum
af trjám sem fólk getur heimsótt.
Hvert og eitt tré verður merkt með
spjaldi sem á stendur: Hér vex: Nafn
manneskjunnar og síðan er QR kóði
sem leiðir gesti inn á rafræna minn-
ingarsíðu um hinn látna og þar má
skilja eftir skilaboð.“
Hún segist ekki vilja takmarka val
fólks, svo ýmsir möguleikar verði í
boði til að nýta sér þjónustuna,
hægt sé að vera með minningarsíðu
og QR kóða á legsteini í kirkjugarði
og einnig sé hægt að útbúa minning-
arsíðu fyrir einstakling sem velur að
láta dreifa ösku sinni.
Hringrás lífsins
„Ef við hugsum um hringrás lífsins
þá er merkingarþrungið að gróður-
setja tré með öskunni. Tré búa til
súrefni sem við þurfum til að lifa
og við búum til koltvísýring sem tré
þurfa. Þetta er geggjað samband og
það að faðma tré fær allt aðra merk-
ingu þegar einhver er þar undir sem
þú tengir djúpt við.“
Tré lífsins verður rekið sem sjálfs-
eignarstofnun og segir Sigríður
Bylgja stefnuna vera að það fé sem
kemur inn verði einfaldlega notað
til að halda við tækjum og búnaði
og þróa næstu lausnir. „Það er eitt-
hvað sem tekur við af bálförum, ég
er alveg farin að hugsa svo langt.“
Tré lífsins hefur fengið úthlutað
svæði í Rjúpnadal við Smalaholt í
Garðabæ samkvæmt deiliskipulagi.
„Við fáum þar lóð fyrir bálstofu
og fyrsta minningagaðinn en ætl-
unin er að þeir verði í framtíðinni
um allt land,“ segir hún, en fyrsta
skóflustunga er á dagskrá í sumar.
„Við erum komin í samstarf við
Skógræktarfélag Íslands og munum
gróðursetja stálpuð tré með lífræn-
um duftkerum. Þannig vonumst við
til að búa til aðeins dýpri tengingu
og jafnvel meiri væntumþykju fyrir
náttúrunni.“
Skráir sjálfur arfleifð þína
En að hinum anga verkefnis Sig-
ríðar Bylgju, Lífsbókinni sjálfri,
sem ætlunin er að sé rafræn bók
sem ritari skráir sjálfur í lifanda lífi
og í framhaldi verður bæði eftirlif-
endum leiðbeinandi og minningar-
sjóður.
„Til að geta haldið Tré lífsins sem
sjálfseignarstofnun í samfélags-
legu hlutverki, stofnaði ég sjálfs-
eignarstofnun í kringum það og
hefðbundið félag í kringum Lífs-
bókina,“ útskýrir Sigríður Bylgja,
sem nú hefur sett í loftið sýnishorn
af Lífsbókinni, lifsbokin.is, þar sem
fólk getur kynnt sér hugmyndina
og svarað skoðanakönnun um efni
hennar og virkni. Halla Kolbeins-
dóttir hannaði og setti upp vefinn.
„Við erum að athuga hvort þörf sé
á slíkri þjónustu en hugmyndin er
að fólk geti þá keypt sér aðgang að
Lífsbók og skráð þar arfleifð sína.
Fólk skráir þá sína sögu á meðan
hún er enn að gerast. Sú skráning
getur gefið okkur góða sýn á okkar
líf þegar við eldumst. Þannig sjáum
við þroskann hjá sjálfum okkur rétt
eins og þegar við lesum gamlar dag-
bækur,“ útskýrir hún.
„Lífsbókin skiptist í tvo hluta:
á meðan við erum á lífi og þegar
við erum fallin frá. Sá hluti sem
við notum á meðan við erum enn
á lífi skiptist í: Sagan mín, sem við
skráum jafnt og þétt með hljóðupp-
tökum, myndum og myndböndum
og svo er það fjölskyldutréð og lykil-
orð og reikningar.“
Dýpri tenging við kjarnann
Hugmyndin að baki Lífsbókinni
hefur verið lengi í þróun, en Sigríður
Bylgja segir þau hafa lagst í djúpar
rannsóknir til að geta lofað því að
Lífsbókin lifi.
„Ég vil geta lofað því að þegar ég er
orðin 85 ára verði Lífsbókin enn þá í
gangi, sama hvernig tæknin þróast.
Barnabörnin mín geta þá upplifað
sögu mína og samtíma minn og náð
dýpri tengingu við kjarnann sinn.
Við störfum með sérfræðingum á
sviði öryggis- og tæknimála til að
tryggja þetta, því ég vil ekki fara
með þetta í loftið nema geta staðið
við þetta loforð.“
Í Lífsbókina skráir fólk sína sögu
með sínum orðum, stórar sem litlar
upplifanir. „Svo er hægt að skrá
fjölskyldutréð sitt algjörlega óháð
blóðböndum en fjölskyldumynst-
ur eru alls konar. Íslendingabók er
eitt en í Lífsbókina skráirðu frekar
hvernig fjölskyldutréð er í þínum
huga. Kannski er besta vinkona þín
hluti af fjölskyldunni og svo auð-
vitað stjúpbörnin. Við erum svo
alls konar og það verður að vera
rými fyrir það. Við hvern og einn
einstakling má svo setja minningar
og myndir og sífellt má bæta inn
upplýsingum, eins og fyrstu orðum
barnsins þíns, fyrsta daginn í sex
ára bekk eða sögur frá unglings-
árunum.“´
Óþægilegt að tala um dauðann
Við nýskráningu í Lífsbókina skráir
notandinn tvo nána aðstandendur
sem svo fá aðgang að henni við and-
lát viðkomandi.
„Það er óþægilegt að tala um
dauðann og það finnst mörgum.
Hugmynd okkar er að fólk komi til
okkar þegar ástvinur deyr og fái þá
bókina í hendurnar og getur hún
bæði verið huggun í sorginni en
einnig leiðbeinandi um hinstu óskir
hins látna.
Eins og fyrr segir þá skiptist Lífs-
bókin í tvo hluta, en sá seinni fjallar
um hvað tekur við eftir dauðann.
„Þar skráirðu hinstu óskir þínar,
erfðamál og kveðjur til aðstand-
enda. Ef þú velur að skrifa bréf til
einstaklinga varðveitum við það
þar til þú fellur frá og fær aðeins við-
komandi það í hendur.“
Sigríður Bylgja segir hugmynd-
ina þannig vera að aðstandendur
fái í hendur bók sem aðstoðar þá í
skipulagi kveðjustundarinnar en
jafnframt fjársjóðskistu minninga.
„Það er búið að fjarlægja okkur
mikið dauðanum og ég ætla ekki
að leggja mat á hvort það sé gott.
En við þurfum samt að eiga þetta
samtal því það er svo algengt að
við hrökkvum upp við missi þar
sem skyndilega allt er farið. Þetta
er líka leið til að halda í arfleifðina
og halda í tengingu á milli kynslóða.
Mér þætti til að mynda frábært að
geta lesið minningar ömmu minnar
sem ólst upp í kringum 1900 á Vík í
Mýrdal og sjá hvort við ættum eitt-
hvað sameiginlegt,“ segir hún og
bætir við: „Ég held að við tengjum
öll við sorg og missi og pældu í því,
við höfum aldrei verið eins tengd
með tilkomu tækninnar, en við
höfum aldrei verið eins ótengd, það
ríkir faraldur einmanaleika.“
Notendur hafi áhrif
Eins og fyrr segir hefur verið sett
upp kynning á Lífsbókinni á lifs-
bokin.is þar sem hægt er að hafa
áhrif á þróun hennar út mánuðinn
og hvort yfirhöfuð verkefnið fari
alla leið. „Þar er mikið af upplýs-
ingum en kannski er okkur að yfir-
sjást eitthvað og þá langar okkur
að heyra það,“ segir Sigríður Bylgja,
full af eldmóð, en aðspurð viður-
kennir hún í lokin að verkefnið hafi
stækkað meira en hana óraði fyrir:
„Mig langaði bara að hjálpa fólki
að gróðursetja tré en allt í einu er
ég komin með bálstofu, minninga-
garð, minningarsíður og svo fram-
vegis. Það er bæði gaman og erfitt
að vera frumkvöðull en þetta hefur
verið magnað ferðalag,“ segir hún að
lokum. n
Í LOFTINU
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
LAUGARDAGA 16:00-18:30
VEISTU HVER ÉG VAR?
Helgin 27LAUGARDAGUR 5. júní 2021