Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 91
BMW-bílaframleiðandinn
hefur frumsýnt i4 rafbílinn
sem er bíll svipaður 3-línunni
í stærð og á að keppa við hinn
vinsæla Tesla 3.
njall@frettabladid.is
BMW i4 notar sama CLAR undirvagn
og 3-línan og reyndar f leiri bílar
BMW. Hann er 4.785 mm langur og
er með 470 lítra skotti. Rafhlaðan er
þunn og undir gólfi bílsins en samt
er hún 81 kWst. Tvær gerðir eru í
boði til að byrja með, annars vegar
eDrive40 með afturdrifi og M50
með fjórhjóladrifi. BMW eDrive 40
er sagður 335 hestöfl, er 5,7 sekúndur
í hundraðið og hámarkshraðinn er
190 km á klst. Það sem skiptir þó
mestu máli er að drægið er 590 kíló-
metrar að sögn BMW. BMW M50 er
hins vegar hvorki meira né minna
en 537 hestöfl svo að viðbragðið
í hundrað km á klst. er aðeins 3,9
sekúndur. Hámarkshraðinn er líka
meiri, eða 225 km á klst. Drægi hans
er aðeins minna, eða 510 km. Hægt
er að hlaða báða bílana á 200 kW
hleðslustöð svo að hleðsla í 80%
tekur aðeins hálftíma.
BMW hefur látið að því liggja að
von sé á fleiri útgáfum, jafnvel með
minni rafhlöðu og á betra verði þar
af leiðandi. Loftfjöðrun er staðal-
búnaður á báðum bílunum en hægt
er að fá M50 með stillanlegum
dempurum. Svokölluð spyrnustýr-
ing er hluti af búnaði bílsins sem og
skrikstilling (Drift Control). Athygli
vekur að loftmótstaða bílsins er
aðeins 0,24Cd sem hefur áhrif á gott
drægi bílsins. Innréttingin er búin
hinu nýja iDrive kerfi sem er 12,3
tommu skjár í mælaborði ásamt
14,9 tommu upplýsingaskjá sem er
snertiskjár, þótt enn sé boðið upp á
skruntakkann áfram. Kerfið er einn-
ig raddstýrt á mörgum tungumálum.
Að sögn Guðmundar Inga Gústavs-
sonar, sölustjóra BMW hjá BL, er
bíllinn væntanlegur til landsins í
febrúar á næsta ári en verð á honum
liggur ekki fyrir enn þá. n
Bíllinn kemur í tveim-
ur útgáfum, eDrive40
sem er 335 hestöfl og
5,7 sekúndur í hundr-
aðið og svo M50 með
fjórhjóladrifi sem er
537 hestöfl og aðeins
3,9 sekúndur í 100 km
á klst.
Fimmta kynslóð Kia Sportage
jepplingsins verður frumsýnd
í júlí en framleiðandinn hefur
birt fyrstu opinberu mynd-
irnar af nýja bílnum, sem
er sérstaklega fyrir Evrópu-
markað.
njall@frettabladid.is
Eins og sjá má verður töluverð
breyting á bílnum, jafnt að utan
sem innan. Að framan er stórt grill
og C-laga dagljós mest áberandi,
en að aftan mætir axlarlínan
ljósunum sem renna saman í eina
heild með díóðuljósarönd. Vél-
búnaðurinn verður að mestu leyti
sá sami og í nýjum Hyundai Tuc-
son svo að hægt verður að fá bílinn
bæði fram- og fjórhjóladrifinn.
Bæði bensín- og dísilvélar verða
í boði með 48 volta tvinnbúnaði.
Önnur tvinnútgáfa með 1,6 lítra
bensínvél og 59 hestafla rafmótor
skilar samtals 227 hestöflum og
350 Nm togi, en sú útgáfa mun geta
ekið stuttar vegalengdir á raf-
magninu einu saman. Loks verður
tengiltvinnútgáfa í boði með rúm-
lega 50 km drægi á rafhlöðu.
Mun meiri tækni verður í boði í
nýjum Kia Sportage, en meðal þess
verður sjálfstýribúnaður sem getur
séð um að auka hraða, bremsa og
halda bílnum innan akreinar í
ákveðinn tíma. Í fyrsta skipti verður
stillanleg fjöðrun í boði svo hægt
verður að velja um nokkrar akst-
ursstillingar. Loks fær innréttingin
alveg nýjan blæ með bogadregnum
skjá sem nær yfir hálft mælaborðið.
Mun hann innihalda bæði upp-
lýsingaskjá og skjáinn fyrir mæla-
borðið. Hérlendis má búast við að
bíllinn keppi helst við Volkswagen
Tiguan, Peugeot 3008 og að sjálf-
sögðu Toyota RAV4. n
Fyrstu myndir af nýjum Kia Sportage
Hið svokallaða tígursnef á framenda bílsins er með meira áberandi grilli en áður hefur sést.
Innréttingin er
alveg ný með
stórum, boga-
dregnum
litaskjá með
háskerpu.
njall@frettabladid.is
Bílasýningin í Genf er ein sú stærsta
í Evrópu en vegna áhrifa Covid-
heimsfaraldursins hefur hún ekki
verið haldin í tvö ár. Hún mun snúa
aftur á dagatalið á næsta ári en búið
er að ákveða að sýningin verði haldin
19.–27. febrúar 2022.
Sýningin verður sú 91. í röðinni og
vel þarf að takast til svo að hún skili
aurum í kassann. Mikið tap var vegna
áætlaðrar sýningar í ár sem þurfti
að aflýsa en tapið á þessu ári nam
um 1,6 milljörðum króna. Reyndu
aðstandendur sýningarinnar að fá
lán hjá svissnesku ríkisstjórninni
sem þeir og fengu, en vegna óhag-
stæðra lánakjara var því hafnað.
Meðal skilyrða sem svissneska ríkis-
stjórnin setti var að sýningin yrði
haldin í haust, en bílaframleiðendur
töldu það of stuttan tíma til að jafna
sig á áhrifum heimsfaraldursins og
töldu sýningu á næsta ári betri kost.
Sýningin er stærsti viðburðurinn á
hverju ári í Sviss, en áætlaðar tekjur
vegna hennar á landsgrundvelli eru
um 30 milljarðar ár hvert. n
Genf-bílasýningin verður haldin 2022
Sýningin er haldin í Palexpo-höllinni sem nú á réttinn að henni að fullu.
Sýningin mun snúa
aftur á dagatalið á
næsta ári en búið er að
ákveða að hún verði
haldin dagana 19.–27.
febrúar 2022.
Straumlínu-
lagað yfirborð
bílsins skilar sér
í loftmótstöðu
sem er aðeins
0,24Cd.
Bogadregið mælaborð er búið tveimur skjáum og er
upplýsingaskjárinn 14,9 tommur að stærð.
Farangursrými er 470 lítrar og hægt að stækka enn meira
með því að leggja niður aftursæti.
BMW i4 frumsýndur með 590 km drægi
LAUGARDAGUR 5. júní 2021 BÍLAR