Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 12
Heil-
brigðisráð-
herra hefur
verið borið
á brýn að
vera heldur
fylgjandi
ríkis-
rekinni
heilbrigðis-
þjónustu
en hinni
einka-
reknu.
Það móðg-
ast enginn
við það að
vera talinn
mannauðs-
stjóri að
ósekju.
Það sama
verður
ekki sagt
um ræsti-
tækna.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
n Mín skoðun
n Gunnar
Sif
Sigmarsdóttir
Um síðustu helgi birtist athyglis-vert viðtal í Fréttablaðinu við Fidu Abu Libdeh. Árið 1995, þegar Fida var sextán ára, f lutti hún til Íslands frá Palestínu
ásamt móður sinni og systkinum. Fida þráði
að ganga menntaveginn en átti erfitt með að
fóta sig. „Kerfið gerði ekki ráð fyrir okkur,“
sagði Fida. Hún gafst þó ekki upp og af harð-
fylgi lærði hún íslensku, útskrifaðist úr orku-
og umhverfistæknifræði frá Háskóla Íslands
og stofnaði eigið fyrirtæki. Fida segist þó
enn ekki vera álitin jöfn þeim sem fæddust
á Íslandi. Þegar hún verslar í stórmörkuðum
er hún gjarnan spurð hvort hún vinni þar.
Nýverið gekk hún inn á kaffistofu fyrirtækis
þar sem vörur eru framleiddar fyrir fyrirtæki
hennar. Hópur karlar stóð á fætur og spurði:
„Ertu komin til að þrífa?“ Fida svarði: „Af
hverju í fokkinu haldið þið það?“
Slíkar staðalhugmyndir eru útbreiddar.
Björk Eiðsdóttir, ritstjóri helgarblaðs Frétta-
blaðsins, sem tók viðtalið við Fidu, sagði sögu
í leiðara í vikunni af því þegar hún ritstýrði
eigin tímariti. Hún sat við tölvuna á skrifstofu
blaðsins í opnu rými sem hún deildi með fleiri
fyrirtækjum þegar þrír karlar gengu inn á leið-
inni á fund. Þeir sneru sér að Björk og spurðu:
„Gætirðu sótt fyrir okkur kaffi?“ Síðan hlógu
þeir dátt að háðsglósunum.
Á yfirborðinu eru þessar tvær frásagnir
dæmi um hve lengi lifir í gömlum glæðum;
fordómar í garð innflytjenda eru þrautseigir;
enn glittir í gömul viðhorf um að konur séu
handlangarar merkilegra manna sem tryggja
að jörðin snúist um möndul sinn. Undir yfir-
borðinu leynist hins vegar önnur saga, saga
hóps sem býr við svo alltumlykjandi fordóma
að við sjáum þá ekki frekar en loftið sem við
öndum að okkur.
Fullkomlega tilgangslaus
Hin sextíu og sjö ára Julie Cousins sagði starfi
sínu lausu á dögunum. Cousins starfaði sem
ræstitæknir hjá breska bankanum HSBC og
hafði þrifið banka í þrjátíu og fimm ár. Upp-
sagnarbréf sem Cousins skrifaði yfirmanni
sínum fór eins og eldur í sinu um internetið.
Þar greindi hún frá ástæðu uppsagnarinnar
sem hún sagði „óvægin og grimm“ orð yfir-
mannsins í hennar garð. Cousins bætti við:
„Þær endurspegla þinn innri mann en ekki
minn.“ Samstarfsfólki sínu í bankanum bar
hún kveðju: „Í veröld þar sem þið getið verið
hvað sem er, verið góð – því þið eruð ekkert
merkilegri en ræstitæknirinn.“
Skoðanakönnun sem var gerð í Bretlandi
árið 2015 sýndi að 37% fólks á vinnumarkaði
taldi starf sitt vera með öllu óþarft. Mann-
fræðingurinn David Graeber skrifaði met-
sölubókina „Bullshit Jobs“ byggða á könnun-
inni, þar sem því er haldið fram að meira en
helmingur starfa í nútímasamfélagi séu full-
komlega tilgangslaus, en flest séu þau á sviði
fjármálastarfsemi, lögfræði, mannauðsstjórn-
unar, almannatengsla og ráðgjafastarfsemi.
Það móðgast enginn við það að vera talinn
mannauðsstjóri að ósekju. Það sama verður
ekki sagt um ræstitækna.
Skömmu fyrir sviplegt andlát David Gra-
eber í september síðastliðnum flutti Breska
ríkisútvarpið hugleiðingar hans um kóróna-
veirufaraldurinn. „Lokun samfélaga í sótt-
varnaskyni hefur sýnt okkur að því fleiri sem
njóta góðs af því sem einstaklingur vinnur
við, því lægri eru laun hans,“ kvað Graeber.
Það sama virðist gilda um virðingu. Starfs-
titlar þeirra sem sinna gagnlegustu störfum
samfélagsins, störfum á borð við ræstingar og
afgreiðslu í matvöruverslunum, eru taldir hin
mesta smán. Þeir eru notaðir til að móðga og
við tökum þeim hugsunarlaust sem móðgun.
„Hvað er svona merkilegt við það ...?“ sungu
Grýlurnar forðum. Hvað er svona merkilegt
við það að vinna á skrif borðsstól á hjólum?
Hvað er svona merkilegt við það að sitja fundi,
senda tölvupósta og skrifa skýrslur? Julie
Cousins veit svarið: Ekkert. n
Hvað er svona merkilegt við það?
Þótt við stærum okkur af framúrskarandi heilbrigðisþjónustu eru á henni agnúar sem treglega gengur að sníða af. Biðlistar eftir lífs-bætandi heilbrigðisþjónustu eru til vitnis um það. Nefna má liðskiptaaðgerðir sem dæmi í
því samhengi. Í því tilviki þurfa þeir sem búa við skert
lífsgæði að bíða misserum saman eftir liðskiptum, til að
mynda í hné eða mjöðm, á opinberu sjúkrahúsi, þegar
í boði er að minnsta kosti jafngóð lausn í einkarekstri
en þá þarf sá þjáði að standa straum af kostnaðinum
sjálfur og án greiðsluþátttöku hins opinbera.
Umræða um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er ekki
ný af nálinni hér á landi. Um árabil hefur heilbrigðis-
þjónusta verið veitt með blönduðu fyrirkomulagi, sumt
á vegum einkarekstrar og annað á hendi ríkis.
Fyrir stuttu kynnti BSRB könnun sem Félagsvísinda-
stofnun framkvæmdi. Um niðurstöðu könnunarinnar
sagði bandalagið á heimasíðu sinni að þjóðin hafni
einkarekstri í heilbrigðiskerfinu.
Í vikunni birtust hér í blaðinu tvær aðsendar greinar.
Önnur eftir formann BSRB, þar sem fullyrt var að
niðurstaða könnunarinnar sýni að mikill meirihluti
landsmanna vilji heilbrigðiskerfi sem rekið er af hinu
opinbera fyrir skattfé og hafni aukinni einkavæðingu í
heilbrigðiskerfinu.
Hina skrifuðu formaður Læknafélags Reykjavíkur og
stjórnarmaður í félaginu um uppslátt bandalagsins að
sú staðhæfing rími ekki við niðurstöður könnunarinn-
ar. „Gögnin eru afdráttarlaus um að þetta eigi vissulega
við um sjúkrahúsrekstur en ef aðrir þættir heilbrigðis-
kerfisins eru skoðaðir er niðurstaðan þveröfug.“
Í gær spurðist út að læknastofum Domus Medica
verði lokað um næstu áramót. Þar hefur verið hýst fjöl-
breytt heilbrigðisþjónusta frá því 1966 við börn og full-
orðna. Haft var eftir framkvæmdastjóra fyrirtækisins
að um sé að kenna ríkisvæðingarstefnu stjórnvalda.
Heilbrigðisráðherra hefur verið borið á brýn að vera
heldur fylgjandi ríkisrekinni heilbrigðisþjónustu en
hinni einkareknu, enda eru engin merkjanleg teikn
um að ráðherrann styðji í verki hið blandaða kerfi
einkarekinnar og ríkisrekinnar heilbrigðisþjónustu
sem verið hefur hér við lýði í áratugi. Þvert á móti hefur
hún stigið áberandi skref til ríkisvæðingar. Nýlega var
krabbameinsleit í brjóstum og leghálsi kvenna flutt úr
höndum Krabbameinsfélagsins til hins opinbera. Ekki
verður beinlínis sagt að sú framkvæmd hafi gengið
snurðulaust.
Til stendur að innleiða nýtt bókhaldskerfi í opinber-
um heilbrigðisrekstri með það að markmiði að greitt
verði fyrir hvert viðvik líkt og í einkarekna kerfinu. Um
hríð hefur kerfið verið til reynslu innan Landspítalans
og ættu heilbrigðisyfirvöld því að hafa góða hugmynd
um hvað hver aðgerð kostar hjá hinu opinbera annars
vegar og hjá einkaaðilum hins vegar.
Fyrirkomulag þessara mála til framtíðar hlýtur að
verða eitt af stóru kosningamálunum í haust.
Áður en gerðar verða fleiri kannanir, og sérstaklega
áður en þetta mikilvæga mál fer í dóm kjósenda, þarf
að fá þessar upplýsingar fram.
Umræðuna þarf að byggja á staðreyndum en ekki því
sem manni finnst, hvort sem um ráðherra eða formann
hagsmunasamtaka er að ræða. n
Á bið
44%
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
68%
55-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
Sími: 550 5050 – soludeild@frettabladid.is
NÁÐU TIL FJÖLDANS!
SKOÐUN 5. júní 2021 LAUGARDAGUR