Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 46
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að metnaðarfullum, talnaglöggum og skilvirkum einstaklingi í starf fjármálastjóra félagsins. Í boði er fjölbreytt,
áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir m.a. á fagmennsku, samskiptahæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
Fjármálastjóri
• Sjóðsstýring og ávöxtun fjármuna félagsins
• Gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana fyrir félagið og sjóði þess
• Líkana-, áætlana- og skýrslugerð og upplýsingagjöf
• Dagleg umsjón með fjármálum félagsins
• Umsjón og eftirlit með innheimtu félagsgjalda og annarra greiðslna
í sjóði félagsins
• Samstarf við endurskoðendur um ársuppgjör félagsins, sjóða þess
og minningarsjóða
• Ýmis störf fyrir sjóði og nefndir félagsins í málum er varða
fjárhag þeirra
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Háskólamenntun í viðskiptafræði, rekstrarhagfræði eða sambærileg
menntun er skilyrði
• Starfsreynsla á sviði fjármála, bókhalds, launauppgjörs og áætlana-
gerðar er nauðsynleg
• Góð tölvufærni og -kunnátta er skilyrði (Excel, Pivot, DK-bókhaldskerfi)
• Hæfni í miðlun tölfræðilegra upplýsinga er nauðsynleg
• 3-5 ára reynsla af sambærilegu starfi
• Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
• Jákvætt viðmót, góð samskiptafærni og þjónustulund
• Áhugi á og færni í teymisvinnu
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Menntun, reynsla og hæfni
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þjónar rúmlega 4.500 félagsmönnum um allt land. Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk m.a. að gæta hagsmuna
og standa vörð um sjálfstæði, réttindi, skyldur og kjör hjúkrunarfræðinga. Gildi félagsins eru ábyrgð, áræðni og árangur og tekur ráðning mið af þeim.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðu þess www.hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til með 14. júní 2021. Umsóknum skal skila rafrænt á formadur@hjukrun.is, ásamt ferilskrá og ítarlegu kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi.
Um er að ræða 80 - 100% starf sem fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gegnum netfangið gudbjorg@hjukrun.is
Menntunar og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Tæknileg þekking/reynsla á sviði véltækni eða skipaiðnaði
• Reynsla af þjónustutengdri stjórnun er kostur
• Leiðtogafærni, drifkraftur og frumkvæði
• Lausnamiðuð hugsun
• Góð rekstrar- og kostnaðarvitund
• Liðsmaður fram í fingurgóma
• Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
Sviðsstjóri ber meðal annars ábyrgð á:
• Skipulag og dagleg stjórnun á þjónustusviði
• Stefnumótandi uppbygging á öflugu tekjusviði
• Að afla verkefna fyrir fyrirtækið
• Að kostnaðarútreikningar vegna tilboða séu raunhæfir og rétt metnir
• Að raunkostnaður verka sé innan marka áætlunar
• Að verk gangi samkvæmt áætlunum
• Að samskipti við viðskiptavini séu með góðum og eðlilegum hætti
• Að full fjárhagsleg yfirsýn sé með öllum verkum
• Að uppgjör séu gerð strax við lok verka
• Að umhverfis-, heilbrigðis-, öryggis- og gæðamál séu tryggð í ferlum þjónustu
• Að gera og framfylgja fjárhagsáætlunum fyrir sviðið
• Verkefnastjórn einstakra verka
Eingöngu er tekið við umsóknum á www.slipp.is
Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2021.
Upplýsingar um starfið veitir Kristján Heiðar Kristjánsson í netfangi khk@slipp.is
Við leitum að metnaðarfullum, öflugum einstakling til að leiða þjónustu- og skipaviðgerðasvið Slippsins Akureyri ehf.
Sviðsstjóri er mikilvægur hlekkur í samskiptum fyrirtækisins við viðskiptavini sína og tryggir að þeim sé veitt sú vara og þjónusta sem þeir vænta af félaginu. Sviðsstjóri vinnur að því
markmiði að verk séu unnin í samræmi við verksamninga og áætlanir og að ætíð séu valdar hagkvæmustu leiðir við vinnslu verka, jafnframt því að gæðakröfum sé fullnægt í hvívetna.
Sviðsstjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra og er hluti af framkvæmdastjórn félagsins.
SVIÐSSTJÓRI SLIPPSINS
10 ATVINNUBLAÐIÐ 5. júní 2021 LAUGARDAGUR