Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 28
Diljá Mist Einarsdóttir
leynir á sér í eldhúsinu og
bakar meira en margan
myndi gruna. Henni finnst
samveran við matar-
borðið með sínu besta fólki,
eiginmanninum og tveimur
börnum vera dýrmætustu
stundirnar.
sjofn@frettabladid.is
Diljá hefur gaman af því að baka
og töfra fram góðar kræsingar
með kaffinu fyrir fjölskyldu og
vini. „Ég hef sérstaklega gaman
af því að baka. Ég er mjög virk og
orkumikil og ég róast heilmikið
niður við að baka og elda,“ segir
Diljá og finnst það góð leið fyrir
hugleiðslu að bardúsa í eldhúsinu.
Diljá er líka mikil selskapskona
og finnst ekkert skemmtilegra
en að fá fólkið sitt í mat og kaffi.
„Heimilið okkar er mikil miðstöð
fyrir hittinga hjá vinum og fjöl-
skyldu og við erum ávallt tilbúin
að taka á móti gestum.“
Boðin og matargerðin er
breytileg eftir árstíðum, veðrum
og vindum og hlutverkaskipting
hjónanna eftir því. „Eins og hjá
mörgum breytist matargerðin
og baksturinn á sumrin en þá
grillum við meira og þá færist
ábyrgðin af eldamennskunni líka
frá mér og yfir á eiginmanninn,“
segir Diljá og brosir sínu einlæga
brosi.
Matarboð einu sinni í viku hjá
mömmu og pabba
Stórfjölskylda Diljár heldur í þá
hefð að hittast vikulega og borða
saman sem er ein af uppáhalds
gæðastundum Diljár. „Stórfjöl-
skyldan, ég, eiginmaður minn og
börnin, bræður mínir, afi minn
og einnig ömmusystir hittist
að minnsta kosti vikulega hjá
mömmu og pabba. Þar er oftast
lambakjöt á borðum, læri eða
hryggur með sveppasósu, blóm-
kálsgratíni, rifsberjasultu og Ora-
fjölskyldunni, sem er rauðkál og
baunir. Síðan kringum veiðitíma-
bilið hjá eiginmanninum gerum
við okkur gjarnan dagamun með
villibráðarveislum sem eru hreint
lostæti.“
Diljá segist vera mikill unglingur
í sér þegar kemur að mat og í raun
sé hún fremur matvönd. „Ég er
mikill unglingur þegar kemur að
mat og held mest upp á pítsur og
pasta. En verandi alin upp við villi-
bráð er hún líka í miklu uppáhaldi,
sérstaklega rjúpa, önd og gæs.“
Svo er ég mikið fyrir alvöru kók,
sykrað kók, þannig að ég er líka
mikill unglingur þegar kemur að
drykkjarvali.“
Trúnaðarupplýsingar
úr eldhúsinu
Ertu til í að koma á trúnó og ljóstra
upp leyndarmáli sem þú átt í eld-
húsinu?
„Helstu trúnaðarupplýsingar
Rósavöfflur
ömmu Susie með
baunasalati
„Ég hef sérstaklega gaman af því að baka,“ segir Diljá Mist lögfræðingur, sem starfar í dag sem aðstoðarmaður utan-
ríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rósavöfflur
ömmu Susie
ásamt bauna-
salatinu.
Svona lítur rósettujárnið út sem Diljá notar við baksturinn.
mínar úr eldhúsinu eru þær að
ég get ekki giskað eða slumpað
á neitt, ég verð að vera með allt
uppáskrifað upp á gramm. Síðan
get ég ekki smakkað sjálf til, þarf
alltaf að fá einhvern annan í það.“
Djúpsteiktar vöfflur gerðar
með rósettujárni
Diljá á nokkra uppáhaldsrétti sem
hafa fylgt fjölskyldunni í áranna
rás og minningar tengdar þeim.
Amma hennar, Susie, skipar stóran
sess í hjarta hennar og minningar
frá heimsóknum snúast margar
um gæðastundirnar við kaffi-
borðið þar sem hún bar fram ljúf-
fengar kræsingar. „Það var alltaf
gestkvæmt hjá Susie ömmu minni.
Til þess að vera ávallt viðbúin að
taka á móti gestum átti hún oftast
til það sem hún kallaði rósavöfflur.
Þetta eru einhvers konar djúp-
steiktar vöfflur með þar til gerðu
rósettujárni. Líkjast einna helst
laufabrauði og geymast einstak-
lega vel. Hún bar þær yfirleitt
fram með majónesbaunasalati.
Við höfum haldið í þessa hefð, en
breytum stundum út af venjunni,
berum þær til dæmis fram með
rjóma og ávöxtum, ferskum aspas,
hráskinku og piparrótarsósu og
svo framvegis. Ég fékk matarklúbb-
inn minn í mat á dögunum og bar
þá fram rósavöfflur með ferskum
aspas og hráskinku í forrétt sem
vakti mikla kátínu matargesta.“ n
Rósavöfflur ömmu Susie
U.þ.b. 40 stk.
2 egg
2 msk. sykur
smá salt
1 bolli mjólk
1 bolli hveiti (stundum aðeins
meira).
Byrjið á því að hræra létt saman
egg, sykur og salt. Síðan er mjólk og
hveiti bætt saman við, hrærið þar
til blandan er kekkjalaus. Vöffl-
urnar eru steiktar í olíu með þar til
gerðum rósettujárnum.
Baunasalat ömmu Susie
½ dós Ora gulrætur og grænar
baunir
½ dós majónes (minnsta dósin)
½ dós sýrður rjómi
kryddið til með chili explosion
kryddi og smá pipar eftir smekk.
4 kynningarblað A L LT 5. júní 2021 LAUGARDAGUR