Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Fyrsta höggið var ansi snarpt og svo var skjálftinn talsvert lengi að fjara út. Eðlilega varð fólk skelkað, sérstaklega útlendingarnir sem vinna hér og vissu í fyrstu ekki hvað var í gangi,“ segir Jón Steinar Sæmundsson, verkstjóri í saltfisk- vinnslu Vísis hf. Þar var hlé gert á störfum meðan óvissa ríkti fyrst eftir skjálftann sem varð laust upp úr klukkan 10. Þegar hrinan var gengin yfir og fólk hafði náð áttum hélt vinnsla áfram. Engar skemmdir urðu í vinnsl- unni í skjálftanum en á vélaverk- stæði fyrirtækisins féllu lausir munir niður á gólf og eitthvað minni háttar fór úr skorðum. „Auðvitað eru ónot í mér – og fleirum – eftir þennan hvell. Lífið heldur samt áfram og vinnslan hér rúllar. Hér fara í gegn 50 tonn af afla í dag og eins og Nóbelsskáldið sagði í Grindavíkursögunni um Sölku Völku, þá er lífið ekkert ann- að en saltfiskur,“ segir Jón Steinar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fiskvinnslan Eðlilega var fólk skelkað, segir Jón Steinar. Lífið heldur áfram og er ekkert annað en saltfiskur „Skipið gekk upp og niður liggjandi við bryggju og valt til og frá. Ég hef aldrei fundið neitt þessu líkt,“ segir Ægir Óskar Gunnarsson, vélstjóri á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. Tog- arinn kom úr eins mánaðar löngum túr inn til Grindavíkur snemma í gærmorgun og var verið að landa aflanum þegar ósköpin dundu yfir. „Mér var verulega brugðið við þetta og þó hef ég nokkrum sinnum áður upplifað svona náttúruhamfarir,“ sagði Ægir um atburðarásina. Viðar Geirsson var frammi í stefni Hrafns þegar allt fór að skjálfa. „Togarinn Tómas Þorvaldsson er hér beint fyrir framan okkur og mér datt fyrst í hug að hann hefði losnað og lent á Gnúpnum. Ég og fleiri hlupum út á þilfar þegar þetta högg kom og brátt spurðist út að þetta hefði verið jarðskjálfti.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vélstjórar Ægir Óskar Gunnarsson, t.v, og Viðar Geirsson á bryggjunni. Skipið gekk upp og niður Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Jarðvísindamenn og fleiri fylgjast nú grannt með framvindu mála eftir jarðskjálfta á Reykjanesskaganum í gærmorgun. Fyrsti skjálftinn reið yfir laust eftir klukkan 10, mældist 5,7 og átti upptök sín nærri Keili. Frek- ari hræringar fylgdu í kjölfarið og fram til klukk- an 13 námu mæl- ar Veðurstofunn- ar alls 11 jarðskjálfta yfir 4,0 að stærð. Þeirra varð vart víða, svo sem á Suðurnesjum, höfuðborg- arsvæðinu, á Ísafirði og í Húnaþingi. Síðasti stóri skjálftinn mældist 4,8 að stærð og kom kl. 12.37. Upptökin á 20 kílómetra löngum kafla Um eftirmiðdaginn í gær lýsti rík- islögreglustjóri yfir hættustigi al- mannavarna vegna skjálftanna sem eiga upptök sín á um 20 kílómetra kafla frá Grindavíkurvegi að Kleif- arvatni. Varað er við grjóthruni á Reykjanesskaga meðan á hrinunni stendur og eins því að fólk sé á gangi undir fjallshlíðum og við aðrar sam- bærilegar aðstæður. Þannig mátti í gær sjá hvar stór grjótfylla hafði grunið úr lágri fjallshlíð eða hraun- kambi nærri Ísólfsskála við Suður- strandarveg, um 5 kílómetra vestan við Grindavík. Engin merki eru um gosóróa á svæðinu. Eignatjón af völdum skjálftans er óverulegt, nema hvað sums staðar féllu lausir munir úr hillum, myndir skekktust á veggjum og fleira slíkt, sem verður að teljast óverulegt. All- ur þykir þó varinn góður; í Grindavík sneri fólk heim frá vinnu á nokkrum stöðum, svo sem í stóru fiskvinnsl- unum. Þá var nokkuð um að foreldr- ar kæmu og sæktu börnin sín í skólana, en starfsemi þeirra hélt þó áfram og verður væntanlega á réttu róli í dag. Hjá Grindavíkurbæ gildir bæði viðbragðs- og rýmingaráætlun vegna náttúruhamfara. Fannar Jónsson segir ráðstafanir vegna jarðskjálftanna verða samkvæmt þeim bókum, sem og ráðstöfunum al- mannavarnanefndar sem starfar fyr- ir Suðurnesin öll. Samfélagið er í viðbúnaðarástandi „Við fundum að fólki var mjög brugðið eftir jarðskjálftana, en þetta var rórra þegar leið á daginn,“ sagði Sigurður Bergmann, aðalvarðstjóri lögreglu í Grindavík, sem var á ferð- inni um bæinn þegar Morgunblaðið tók hann tali. Sigurður segir skjálft- ana kalla á að varðstaða á svæðinu sé efld meðan hættuástand vari eða ástæða þyki til. Staðan verði reglu- lega í endurmati og nú í morguns- árið, fimmtudag, verði stöðufundur þar sem mál verða vegin og metin. „Vegna jarðhræringa hefur sam- félagið hér í Grindavík nánast allt verið í viðbúnaðarástandi síðasta ár- ið. Fólk hefur því vanist þessari óvissu að nokkru leyti, svo langt sem það nær,“ segir Sigurður Bergmann. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hrun Bergfylla féll fram úr fjallshlíð eða hraunkambi nærri Ísólfsskála, sem er spölkorn austan við Grindavík. Upptök skjálftans voru við fjallið Keili. Stöðug óvissa í Grindavík  Snarpur skjálfti með eftirköstum  Varð vart víða um land  Áætlanir virkj- aðar og hættuástandi lýst yfir  Íbúum var brugðið, segir varðstjóri lögreglunnar Ljósmynd/Óskar Sævarsson Krýsuvíkurberg Vestast í Hælsvíkinni mátti sjá hvar mikið stykki sem var sprungið frá berginu hafði fallið í sjó fram í jarðskjálftanum í gærdag. Sigurður Bergmann „Jarðskjálftinn skapaði mjög óþægilega tilfinningu og ég varð hrædd,“ segir María Magnúsa Ben- ónýsdóttir sem starfar í söluskál- anum Aðalbraut í Grindavík. „Ég var að grilla hamborgara þegar fyrsti skjálftinn kom og þeg- ar þetta dundi yfir hljóp ég hér út á stétt. Tengdasonur minn sem á sjoppuna og ég vinn með, Kári Steinsson, var fljótur að grípa spað- ann og ljúka grillmennskunni svo allt fór vel. Engar skemmdir urðu í sjoppunni, né hjá mínu fólki. Ég hringdi bæði í móður mína og börn- in til að athuga með stöðu mála hjá þeim. Þar var allt í þessu fína og líka heima hjá mér. Vonandi verða hlutirnir fljótir aftur að komast í eitthvert jafnvægi. Auðvitað hafa oft áður komið jarðskjálftar hér í Grindavík en ekki svona margir og sterkir. Ég er því verulega skelkuð eftir daginn; tilfinningin er önnur en eftir fyrri skjálfta sem hér hafa komið yfir,“ segir María sem telur sig mega mæla fyrir munn margra þegar hún lýsir ugg sínum. „Jarðskjálftarnir voru satt að segja eina umræðuefni þeirra sem komu í sjoppuna í dag. Fólk spyr margra spurninga sem mikilvægt er að jarðfræðingar geti komið með svör við. Slíkt eyðir óvissunni sem er alltaf erfiðust í svona að- stæðum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðalbraut Ég hljóp út á stétt frá grillinu, segir María Magnúsa. Tilfinningin er óþægileg Skjálftahrina á Reykjanesi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.