Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
Það er mikil ábyrgð að veraforeldri og ala upp börn.Þótt allir vilji börnum sínum
það besta þarf líka að kunna góðar
uppeldisaðferðir – aðferðir sem
skila árangri og byggjast á vís-
indaþekkingu og jákvæðri nálgun.
En það er ekki sjálfgefið að uppeld-
ið gangi hnökralaust og eðlilegt að
þurfa leiðsögn eða ráðgjöf.
Samvinna og markmið
Barnauppeldi er mjög gefandi
verkefni, en það er líka krefjandi
og tekur tíma og orku. Best er að
foreldrar/uppalendur tali saman
um hvernig þeir vilja hafa uppeldið,
frekar en að láta hlutina ráðast
þangað til það koma upp vandamál.
Foreldrar sem vilja til dæmis að
börnin verði sjálfsörugg, hafi góða
félagsfærni, eigi vini og geti sinnt
áhugamálum þurfa að setja sér
þessi markmið og vinna að þeim
jafnt og þétt.
Foreldrar eru fyrirmyndir
Þótt allir hafi sín sérstöku per-
sónueinkenni hafa foreldrar mikil
áhrif á hvernig manneskjur börn
þeirra verða. Hegðun sem slík er
nefnilega ekki meðfædd heldur
lærð og börn læra mikið af því að
herma eftir. Þar sem foreldrarnir
eru mikilvægasta fyrirmyndin um
hvernig á að haga sér þýðir þetta
að þeir þurfa að vera meðvitaðir
um hvað þeir gera og segja fyrir
framan börnin. Börnin fylgjast
nefnilega stöðugt með og hafa augu
og eyru opin, þótt ekki sé verið að
tala beint við þau.
Kenna hegðun
Það er nauðsynlegt að kenna
börnum hegðun sem foreldrar vilja
að þau kunni og sýni. Við getum
ekki ætlast til að börn læri „góða“
hegðun sjálfkrafa. Við þurfum að
ákveða hvaða hegðun okkur þykir
æskileg og kenna börnunum hana á
markvissan hátt. Með því að sýna
þeim hegðunina, gefa bein fyrir-
mæli og leiðbeiningar og leyfa
börnunum að æfa sig. Svo þarf að
hrósa þegar vel gengur, en líka fyr-
ir að reyna þótt það takist ekki allt
strax.
Jákvæð svörun
Rannsóknir sýna að jákvæð umb-
un virkar mun betur en skammir,
tuð og refsingar. Því er gott ráð
fyrir foreldra að reyna að styrkja
jákvæða hegðun sem mest og
hunsa neikvæða. Vissa hegðun er
þó ekki hægt að hunsa eins og t.d.
þegar börn meiða aðra eða skemma
hluti. Þá getur þurft að beita væg-
um viðurlögum svo sem að fjar-
lægja hlutinn eða færa barnið úr
aðstæðunum. Ef foreldrar telja ein-
hvers konar viðurlög nauðsynleg er
best að skoða málin vel og leita
ráða hjá fagaðilum sem til þekkja.
Grípa börn góð
Foreldrar þurfa að passa að
missa ekki af þegar börnin gera
eitthvað jákvætt og æskilegt. Þetta
kallast „að grípa börnin góð“. En
það er ákveðin tilhneiging til að
hunsa óvart æskilega hegðun og
taka frekar eftir og bregðast við
óæskilegri hegðun. Þetta er skilj-
anlegt því ef barnið er rólegt að
dunda sér er freistandi að láta það
eiga sig og trufla það ekki. En þá
er verið að missa af mikilvægu
tækifæri til að kenna barninu og
ýta undir æskilega hegðun. Auðvit-
að á ekki stöðugt að vera að trufla
börn við leik eða aðra æskilega iðju
– en það þarf að passa að vera til
staðar og veita viðurkenningu með
athygli eða hrósi þegar við á.
Skýr skilaboð og rútína
Börn þurfa skýr skilaboð til að
skilja hvað fullorðna fólkið meinar
og til hvers er ætlast af þeim. For-
eldrar þurfa líka að vera sam-
kvæmir sjálfum sér og banna ekki í
dag það sem má á morgun. Best er
að fyrirmæli til barna séu ekki
spurningar! Til að barnið borði
morgunmatinn sinn er betra að
segja „nú skaltu borða“ en „ætl-
arðu ekki að fara að borða?“ Þegar
barnið á að fara í útiföt segja „nú
skaltu fara í skóna, úlpuna“ og
þess háttar frekar en að segja
„viltu ekki klæða þig?“ Fyrirmæli
þurfa líka að segja börnunum hvað
við viljum að þau geri, frekar en
hvað þau eigi ekki að gera. Ef
barnið fiktar mikið í hlutum er
betra að segja „nú skaltu passa
hendurnar“ frekar en „ekki fikta“.
Ef barnið ætlar að rjúka í burtu er
betra að segja „nú skaltu ganga og
leiða mig“ frekar en „ekki hlaupa“
og svo framvegis.
Það er hjálplegt ef foreldrar
koma á rútínu og föstum venjum í
hversdagslífinu og hafa hlutina
sem mest í sömu röð og á svipuðum
tíma. Fyrirsjáanleiki veitir börnum
öryggi og sparar þeim óvissu og
foreldrum vesen. Þetta á ekki síst
við um morgna, matmáls- og hátta-
tíma og auðveldast er að byggja
upp rútínu meðan barnið er ungt.
Skjánotkun og uppeldi
Foreldrar þurfa frá upphafi að
vera mjög meðvitaðir um eigin
skjánotkun í návist barna. Best er
að foreldrar reyni að mestu að
sleppa því að nota skjái þegar þeir
eru að sinna börnunum. Ef við er-
um upptekin í símanum eða tölv-
unni finna börnin að við erum ekki
fullkomlega til staðar og hlustum
ekki nógu vel. Þetta getur haft
neikvæð áhrif á mikilvæga
tengslamyndun. Of mikil skjá-
notkun barna er líka að verða
vandamál og mikilvægt að setja
börnunum mörk um þetta. Muna
að foreldrarnir eru mikilvægar
fyrirmyndir í þessum efnum eins
og öðrum.
Í ung- og smábarnavernd
Heilsugæslunnar býðst ráðgjöf og
námskeið þar sem nánar er farið í
þessi og fleiri uppeldisráð.
Hvaða aðferðir virka í uppeldi?
Ljósmynd/Colourbox
Börn Ekki sjálfgefið að uppeldið gangi hnökralaust og eðlilegt að þurfa leiðsögn eða ráðgjöf, segir m.a. í greininni.
Heilsuráð
Gyða Haraldsdóttir
sálfræðingur og forstöðumaður
Þroska- og hegðunarstöðvar
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins
Það þarf að passa
að vera til staðar og
veita viðurkenningu
með athygli eða
hrósi þegar við á.
Ungar athafnakonur, UAK, standa
núna í fyrsta sinn fyrir UAK-vikunni,
sem félagið heldur í aðdraganda ráð-
stefnunnar „Frá aðgerðum til áhrifa –
vertu breytingin“. Markmið vikunnar,
sem og ráðstefnunnar, er að hvetja
ungar konur í íslensku atvinnulífi til
að koma sjálfar á mikilvægum breyt-
ingum á sínum vettvangi með því að
vera sjálfar breytingin, eins og segir í
fréttatilkynningu.
Síðan á mánudag hafa nokkrir
stafrænir viðburðir verið haldnir og
ráðstefnan fer fram nk. laugardag á
netinu. Verður henni streymt á síð-
unni uak.is frá Norðurljósasalnum í
Hörpu og dagskráin hefst kl. 10 með
opnunarávarpi Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra, sem jafnramt er
formaður heimsráðs kvenleiðtoga.
Meðal fyrirlesara verða Hrund Gunn-
steinsdóttir, Sigríður Margrét Odds-
dóttir, Emma Holten, Caritta Seppa,
Salam Al-Nukta og Sigurlína Ingv-
arsdóttir.
Meðal viðburða í vikunni má nefna
að hlaðvörpin „Normið“ og „Þegar ég
verð stór“ hafa sent út sérstaka
þætti með fyrirlestrum og vinnustof-
um.
Vikan tileinkuð ungum konum í atvinnulífinu
Frá aðgerðum til áhrifa
Ljósmynd/UAK
Athafnakonur Stjórn Ungra athafnakvenna stendur núna í stórræðum.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 07/2020, ekinn 5 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, drægni 69 km) 218 hö,
sjálfskiptur (8 gíra). Stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur, Night pack o.fl.
Verð aðeins 5.990.
M.BENZ A 250 E SALOON
Eigumeinnig til steingráan bíl ekinn aðeins 3 þkm!