Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
en eru tilbúnir í samtal við borgina á
útfærslu á íbúðarbyggingu í viðbót
ofan á bílaverkstæðinu. Þannig verði
komið til móts við bæði deiliskipu-
lagið og ósk borgarinnar um þétt-
ingu byggðar.
Í umsögn skipulagsfulltrúa um er-
indið kemur fram að í núgildandi
deiliskipulagi fyrir reitinn, Trygg-
ingastofnunarreit, var lagt upp með
að iðnaðarhúsnæðið við Grettisgötu
yrði rifið og þess í stað byggt íbúðar-
húsnæði í beinu framhaldi af Snorra-
braut nr. 35. Gert er ráð fyrir að ný-
byggingar gildandi deiliskipulags
verði þrjár hæðir. Eigendur Grett-
isgötu 87 benda á í greinargerð til
skipulagsfulltrúa að flókin eignarað-
ild meðlóðarhafa hafi aftrað upp-
byggingu á reitnum.
Skipulagsfulltrúi óskaði eftir um-
sögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur (HER) vegna fyrirspurnarinnar:
HER bendir á að starfsemi bif-
reiðaverkstæða og íbúðarhúsnæði
fari ekki vel saman. Oft sé unnið
lengi fram eftir á bifreiðaverk-
stæðum og einnig um helgar. Frá
starfseminni geti stafað hávaða-
mengun en einnig sjónmengun og
lyktarmengun í einhverjum til-
vikum.
Slysahætta fyrir börnin
Þar sem loftræsitúður íbúðar-
húsnæðis eru á þakinu sé hætta á að
leysiefnamengað loft gæti borist inn
í íbúðir og útblæstri slegið niður og
hann borist inn um glugga. Þá þurfi
bifreiðaverkstæði oft að hafa bifreið-
ar sem bíða viðgerðar á athafna-
svæði sínu í misgóðu ástandi og af
þeim gæti stafað slysahætta fyrir
börn.
Var það niðurstaða skipulagsfull-
trúa að fallast ekki á tillögu um
blöndu bílaverkstæðis og nýrra
íbúða á efri hæðum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
hafnað ósk um að hækka þegar sam-
þykkt húsnæði bílaverkstæðis að
Grettisgötu 87 um tvær til þrjár
hæðir og innrétta þar íbúðir. Starf-
semi bifreiðaverkstæða og íbúðar-
húsnæði fari ekki vel saman.
Forsaga málsins er sú að húsið
brann 7. mars 2016. Það er ónýtt og
verður rifið. Eins og húsið er í dag er
það lýti á hverfinu. Fyrir liggja sam-
þykktar teikningar frá Arkþing
arkitektum hjá byggingarfulltrúa
Reykjavíkur af sams konar húsnæði
og fyrir var, þ.e. bílaverkstæði.
Teikningarnar voru stimplaðar 1.
október 2019.
Í erindi sem eigendur lóðarinnar
sendu skipulagsfulltrúa í desember
sl. kemur fram að þeir geti nú þegar
hafið byggingu á bílaverkstæðinu,
Morgunblaðið/sisi
Staðan í dag Svona hefur byggingin við Grettisgötu 87 staðið undanfarin fimm ár, allt frá því kviknaði í henni í mars árið 2016. Sannarlega lítil prýði fyrir nánasta umhverfi.
Fá ekki að byggja íbúðir ofan á bíla-
verkstæðið á Grettisgötu sem brann
Morgunblaðið/Golli
Bruninn á Grettisgötu Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang enda var
stórbruni og mikil hætta á ferðum. Íbúar í nágrenninu yfirgáfu heimili sín.
„ÍSÍ er mótfallið þjálfunar-
aðferðum sem stríða gegn reglum
og viðmiðum íþróttahreyfing-
arinnar,“ segir m.a. í yfirlýsingu
sem Íþrótta- og ólympíusamband
Íslands, ÍSÍ, sendi frá sér í gær
vegna umræðu í samfélaginu um
heimildarmyndina Hækkum rána.
Eftir sýningu á myndinni hefur
m.a. komið fram gagnrýni á þjálf-
unaraðferðir Brynjars Karls Sig-
urðssonar körfuboltaþjálfara og
þær taldar of harkalegar.
ÍSÍ segir að þátttaka barna og
unglinga í skipulögðu íþróttastarfi
sé mikil og almenn á Íslandi, í al-
þjóðlegum samanburði. Íþrótta-
félögin standi fyrir metnaðarfullu
starfi sem stýrt sé af velmennt-
uðum þjálfurum sem fái greitt fyrir
störf sín. Þar sé pláss fyrir alla,
börn og ungmenni hafi jafnan rétt
til þess að stunda íþróttir og vera
metin að eigin verðleikum.
Minnt er á að stefna ÍSÍ í íþrótt-
um barna og unglinga hafi verið
samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið
1996 og endurskoðuð 2015. Sú
stefna byggist á „viðurkenndri
þekkingu úr fræðasamfélaginu“.
Bendir ÍSÍ á að í stefnunni sé
mikil áhersla lögð á að íþróttir eigi
að vera fyrir alla, þær þurfi að vera
skemmtilegar og leikurinn að skipa
stóran sess. Árangur sé hægt að
mæla á ólíkan hátt, en auk sigra í
keppnum sé aukin þátttaka, ánægja
iðkenda og að halda iðkendum í
starfinu einnig hluti af árangri.
Fyrir tveimur árum voru hegð-
unarviðmið ÍSÍ endurskoðuð en þau
eru siðareglum ÍSÍ til stuðnings. Í
hegðunarviðmiðum fyrir þjálfara
er m.a. lögð áhersla á að bera virð-
ingu fyrir mótherjum, foreldrum/
forsjáraðilum, dómurum, sjálf-
boðaliðum, þjálfurum og öðru
starfsfólki og stuðla að því að iðk-
endur geri slíkt hið sama.
ÍSÍ bregst við mynd-
inni Hækkum rána
Mótfallið aðferðum sem stríða gegn
reglum íþróttahreyfingarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Körfubolti ÍSÍ minnir á stefnu og
viðmið íþróttahreyfingarinnar.