Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 34
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Búið er að selja 39 af 57 íbúðum í nýju
fjölbýlishúsi í Álalind 18-20. Byggingin
er í íbúðahverfinu Glaðheimum í Kópa-
vogi, en rétt um mánuður er frá því að
íbúðirnar fóru fyrst í sölu. Jón Ágúst
Garðarsson, framkvæmdastjóri Bestlu
sem sér um byggingu hússins, segir að
afar vel hafi gengið að selja íbúðirnar.
Um er að ræða íbúðir á mjög breiðu
bili, bæði hvað stærð og verð varðar.
Hægt er að fá íbúðir sem kosta allt frá
41 milljón króna upp í 115 milljónir
króna.
„Frá síðasta laugardegi er liðinn
einn mánuður frá því að fyrsta opna
húsið var haldið. Strax þá fóru 20 íbúð-
ir og svo hefur þetta í raun verið alveg
stanslaust. Það er íbúð að seljast á
tveggja daga fresti,“ segir Jón Ágúst
og bætir við að allar þriggja herbergja
íbúðir séu seldar. Mest af því sem enn
er óselt eru litlar íbúðir, eða í kringum
50 fermetrar. „Við bjuggumst einmitt
við því að þessar minni íbúðir yrðu
fyrstar til að fara og stærri íbúðirnar
gætu tekið einhvern tíma. Hins vegar
er það svo að allar þriggja herbergja
íbúðirnar eru seldar og mest er eftir af
þessum minni. Við erum með margar
tegundir af íbúðum enda húsið alls ekki
einsleitt með bara litlum eða stórum
eignum.“
Fátt ungt fólk meðal kaupenda
Tvö ár eru frá því að framkvæmdir
hófust en Jón Ágúst kveðst ráðgera
að afhenda íbúðirnar í maímánuði.
Verið er að klára vinnu við lóðina utan
við húsið auk þess að innrétta síðustu
íbúðirnar. Aðspurður segir hann að
kaupendur íbúðanna séu á öllum
aldri. Fátt ungt fólk hafi þó fest kaup
á eign í húsinu. „Meirihluti þeirra sem
eru að kaupa íbúðir á þessu svæði er
fólk sem er komið yfir fertugt. Ég
held að unga fólkið sé ekki að kaupa
sér nýjar íbúðir heldur fer það frekar
í notaðar. Við vorum heldur ekki með
neitt inni í hlutdeildarlánunum,“ segir
Jón Ágúst, en flestar minni íbúðanna
hafa farið til einstæðinga fremur en til
ungs fólks. „Við erum að hugsa þetta
hvort heldur sem er fyrir einstaklinga
eða ungt fólk. Við höfum byggt aðrar
blokkir á þessu svæði og þá hafa þess-
ar minni íbúðir verið að fara til fólks
sem býr eitt.“
Lóðin sem Álalind 18-20 stendur á
er afar glæsileg. Mikið hefur verið lagt
upp úr bæjarhönnun hverfisins með
áherslu á fallegan gróður, líflegt efn-
isval í gangstéttum og göngugötum
ásamt vandaðri umhverfislýsingu.
Vesturendi byggingarinnar snýr út að
fallegu torgi þar sem staðsett eru leik-
tæki og bekkir. Staðsetningin er sömu-
leiðis mjög góð, en stutt er í stofn-
brautir og helstu þjónustu. Að sögn
Jóns Ágústs eru íbúðirnar í húsinu í
dýrari kantinum. „Við erum með dýra
lóð, en við þurftum að kaupa hús og
rífa niður. Þetta er langdýrasta lóðin í
þessu hverfi auk þess sem gert er ráð
fyrir bílakjallara. Það þurfti því að
borga meira en gengur og gerist.“
Hafa selt meirihluta íbúða
í nýrri byggingu í Álalind
Morgunblaðið/Baldur
Nýbygging Framkvæmdir ganga vel en að sögn Jóns Ágústs, framkvæmdastjóra Bestlu, lýkur þeim í maímánuði.
Framkvæmdir
» Framkvæmdir við nýbygg-
inguna í Álalind 18-20 hafa tek-
ið um tvö ár.
» Íbúðirnar eru dýrar og skýr-
ist það af staðsetningunni og
niðurrifi á húsi sem var á reitn-
um.
» Íbúðirnar eru mjög ólíkar, en
hægt er að fá eignir á mjög
breiðu bili í blokkinni.
Góð sala íbúða í Álalind 18-20 Tuttugu íbúðir seldust á fyrsta opna húsinu
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
25. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.79
Sterlingspund 179.8
Kanadadalur 101.31
Dönsk króna 20.87
Norsk króna 15.044
Sænsk króna 15.406
Svissn. franki 141.76
Japanskt jen 1.2128
SDR 184.46
Evra 155.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.7196
Hrávöruverð
Gull 1809.5 ($/únsa)
Ál 2136.5 ($/tonn) LME
Hráolía 65.51 ($/fatið) Brent
● Upplýsingafulltrúi Landsbankans
segir það á misskilningi byggt sem kom
fram í ViðskiptaMogganum í gær að
fulltrúar bankans hefðu farið til London
meðal annars til að kynna sér húsgögn.
Hið rétta sé að fulltrúar bankans hafi
farið til London „til að kynna sér verk-
efnamiðaða vinnuaðstöðu, ekki meðal
annars til að kynna sér húsgögn“. Því er
hér með komið á framfæri en ekki
fylgdi með nánari útskýring á því af
hálfu bankans hvað verkefnamiðuð
vinnuaðstaða felur í sér.
Þegar Morgunblaðið tók stöðuna í
lok janúar var um 75% af uppsteypu á
nýjum höfuðstöðvum Landsbankans
við Hörpu lokið. Stefnt var að því að
ljúka henni í júlí.
Bankinn áformar að taka húsið í
notkun á næsta ári. baldura@mbl.is
Kynntu sér verkefna-
miðaða vinnuaðstöðu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Austurhöfn Nýjar höfuðstöðvar Lands-
bankans eru að rísa við höfnina.
STUTT
Sala Icelandic Seafood dróst saman
um 15% árið 2020 samanborið við
árið þar á undan. Var þar um að
kenna takmörkunum sem í gildi
voru vegna kórónuveirunnar m.a. í
S-Evrópu. Þetta kemur fram í upp-
gjöri félagsins fyrir árið 2020 sem
birt var í gær.
Hagnaður Icelandic Seafood fyrir
skatta nam 5,1 milljón evra en til
samanburðar var hagnaðurinn um
11,4 milljónir evra árið 2019. Vonir
eru bundnar við að starfsemin nái
sér aftur á strik á þessu ári, en að
því er segir í til-
kynningu hefur
árið 2021 byrjað
vel. Áætlanir
gera ráð fyrir um
12 til 17 milljóna
evra hagnaði fyr-
ir skatta.
Bjarni Ár-
mannsson, for-
stjóri félagsins,
kvaðst í tilkynn-
ingu bjartsýnn á rekstur Icelandic
Seafood á komandi ári.
Hagnaður Icelandic
Seafood dróst saman
Bjarni
Ármannsson
Smásölufyrirtækið Festi hagnaðist
um 526 m.kr. á lokafjórðungi ársins
2020 samkvæmt tilkynningu. Á sama
tíma árið á undan nam hagnaðurinn
715 m.kr. og minnkar því um 26%
milli ára. Hagnaður ársins í heild hjá
Festi var 2,3 milljarðar króna og
dróst hann saman um tæp 19% milli
ára, en hann var 2,8 ma. 2019. Eignir
félagsins námu í lok tímabilsins rúm-
um 83 milljörðum króna. Eigið fé
Festi var í lok ársins tæpir 30 millj-
arðar króna og eiginfjárhlutfall er
35,7% samanborið við 35,3% í lok árs
2019. „Rekstur
Festi samstæð-
unnar á árinu
2020 gekk vel
þrátt fyrir mjög
krefjandi aðstæð-
ur þar sem sam-
komubönn og
sóttvarnarráð-
stafanir höfðu
mikil áhrif á öll
dótturfélögin,“
segir Eggert Þór Kristófersson for-
stjóri félagsins í tilkynningunni.
Hagnaður Festi 526
m.kr. á lokafjórðungi
Eggert Þór
Kristófersson