Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
✝ Rafn Magn-ússon vélfræð-
ingur fæddist 25.
febr. 1932 á Þránd-
arstöðum í Kjós.
Hann lést 15. febr.
2021 á hjúkr-
unarheimilinu Ísa-
fold í Garðabæ. For-
eldrar Rafns voru
Magnús Eiríksson,
bóndi á Þránd-
arstöðum og
Hvammsvík í Kjós, f. 1899, d.
1987 og Vilborg Runólfsdóttir, f.
1907, d. 1995. 26. desember 1954
giftist Rafn eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Evu Guðmunds-
dóttur, f. 26. sept. 1931, frá
Eystri-Móhúsum á Stokkseyri.
Foreldrar Evu voru Stefanía Sig-
urðardóttir, f. 1889, d. 1974 og
Guðmundur Hannesson, f. 1892,
d. 1974, Eva og Rafn eignuðust
þrjú börn:
1. Vilborg, f. 1952. Vilborg
giftist Jóni Snorrasyni, þau slitu
samvistum. Vilborg og Jón eign-
uðust fjóra drengi: Óskírður
Jónsson, f. 1970, d 1970, Snorri
Júlíus, f. 1972. Snorri giftist Vig-
dísi Sæunni Ingólfsdóttur, f.
1969, þau slitu samvistum. Þau
eignuðust tvö börn, Sævar, f.
1995, og Dagnýju Evu, f. 2003.
Rafn ólst upp í Hvammsvík í
Kjós, voru systkinin sex. Rafn
byrjaði snemma að vinna, fyrst í
vegavinnu. En hugurinn stefndi
til að vinna með vélar og er ekki
ólíklegt að nánd við vélbúnað
setuliðsins í Hvalfirði hafi mótað
þann áhuga. Rafn fór í Iðnskól-
ann í Reykjavík og sem lærlingur
í Vélsmiðjunni Hamri. Hann út-
skrifaðist sem sveinn í vélvirkjun
1952. Hugurinn stefndi til frek-
ara náms og fór hann í Vélskóla
Íslands, lauk vélstjórnarnámi
1954 og rafmagnsdeild 1955.
Rafn hóf störf hjá Hval hf.
1954. Vann hann nánast alla sína
starfsævi hjá Hval hf. Frá 1954 til
1970 var hann vélstjóri á skipum
félagsins og lengst af sem yfirvél-
stjóri. 1970 til 1971 starfaði Rafn
í álverinu í Straumsvík. Rafn hóf
störf sem smíða- og suðukennari
við Vélskóla Íslands 1971 og
starfaði við það þar til hann hætti
störfum árið 2001. Frá 1974 var
Rafn stöðvarstjóri í hvalstöðinni í
Hvalfirði á sumrin. Eftir að hann
hætti sem kennari í Vélskóla Ís-
lands var hann prófdómari í
smíða- og vélfræðigreinum, einn-
ig hafði hann eftirlit með hval-
bátum Hvals hf. þar sem þau lágu
í Reykjavíkurhöfn. Árið 2008
fékk Rafn heiðursmerki sjó-
mannadagsráðs fyrir störf sín.
Útför Rafns fer fram frá Vídal-
ínskirkju í dag, 25. febrúar 2021,
klukkan 13.
Sambýliskona
Snorra er Judith
Orlishausen, f.
1969, eiga þau tvö
börn, Jón, f. 2013 og
Sól, f. 2017.
Rafn Magnús, f.
1981. Sambýliskona
Rafns er Telma
Borgþórsdóttir, f.
1986, eignuðust þau
fjögur börn: Vil-
borg Hekla, f. 2013,
Ingi Rafn andvana fæddur, 2016,
Aron Ingi, f. 2017 og Ingunn
Gréta, f. 2019.
Daníel, f. 1985. Daníel er gift-
ur Aðalheiði Maríu Sigmars-
dóttur, f. 1991, eiga þau tvo
drengi, Sigmar Þór, f. 2014 og
Daníel Berg, f. 2017.
2. Kristinn, fæddur 1954.
Kristinn er giftur Sólborgu
Tryggvadóttur, f. 1955 og eign-
uðust þau þrjú börn, Rafn, f.
1981, d. 1999, og tvíburana Birnu
og Val, f. 1985. Valur er giftur
Katrínu Ósk Eyjólfsdóttur, f.
1985, eiga þau eina dóttur, Eriku
Ósk, f. 2017.
3. Elsa, fædd 1959. Elsa á einn
son, Hlyn Andra, f. 1984. Hlynur
Andri er giftur Huldu Snorra-
dóttur, f. 1988, eiga þau einn son,
Baldur, f. 2017.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Kveðja frá fjölskyldu
Eva Guðmundsdóttir.
Rafn Magnússon, samkennari
okkar og vinur, hefur nú yfirgefið
okkur. Það er mikill sjónarsviptir
að honum og verður hans sárt
saknað í hópi gamalla samkenn-
ara Vélskóla Íslands en hann var
fastur gestur á mánaðarlegum
hittingi okkar fyrir Covid.
Rafn kom til skólans 1971 og
kenndi rafsuðu, logsuðu og aðrar
smíðagreinar, við góðan orðstír
um 30 ára tímabil. Þá var hann
umsjónarkennari nemendahópa
og um árabil deildarstjóri smíða-
greina í skólanum og bar þannig
faglega ábyrgð á þessum grein-
um.
Rafn, eða Rabbi, eins nemendur
og samkennarar kölluðu hann, var
farsæll kennari og áhugasamur.
Hann var alltaf hress á góðlátleg-
an máta og nýttist það honum vel í
kennslunni, enda ætíð vel liðinn af
nemendum. Rabbi gerði kröfur til
nemenda sinna og komust þeir
ekki upp með neitt slugs við æfing-
arnar. Hann var réttlátur og óhlut-
drægur þegar kom að námsmati.
Hann sinnti kennslunni vel, var
mikill fagmaður enda litu allir svo
á að Rabbi „ætti“ suðuaðstöðuna í
skólanum. Þar var hann einráður.
Margir samkennaranna
þræddu stærstan hluta starfsæv-
innar á sömu miðum, voru fyrst
saman á hvalveiðum og síðan sem
samkennarar í Vélskólanum. Eftir
að þátttöku í hvalveiðum lauk
ákváðu vélstjórarnir á bátunum að
halda hópinn áfram og komu sam-
an ásamt eiginkonum í fjölda ára
við ýmis tilefni undir heitinu
„Hvalagrúppan“. Um 40 ára skeið
hefur líka verið árviss samvera á
þorranum og verður skarð fyrir
skildi að hafa Rabba ekki lengur í
hópnum.
Við minnumst Rabba sem bros-
milds og glaðværs félaga sem gott
var að eiga samskipti við. Afskap-
lega gefandi samvera er þökkuð
með söknuð í hjarta. Evu, konu
hans, börnum og öðrum nákomn-
um ættingjum sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Fyrrverandi samkennarar í
Vélskóla Íslands,
Sigurður R. Guðjónsson.
Mín raunverulegu kynni af
Rafni eða Rabba eins og við köll-
uðum hann ævinlega hófust 1956,
en þá var hann 2. vélstjóri á Hval
1 en ég var þar messi 13 ára gam-
all. Þetta var mín frumraun til
sjós. Næst vorum við skipsfélagar
á Hval 2 og Hval 7 samtals í fjórar
hvalvertíðir, ég sem háseti og
Rabbi vélstjóri.
Rabbi sagði mér að aðdragandi
þess að hann réðst til Hval hf. var
að skólabróðir hans í Vélskólan-
um bað hann að leysa sig af í hálf-
an mánuð í byrjun hvalvertíðar
1954 sem 3. vélstjóri á Hval 2.
Úr varð að Rabbi var alla ver-
tíðina og gott betur hjá Hval hf.
Hann var næstu tvær hvalvertíðir
á Hval 1 og síðan á Hval 2 þar til
hann sótti Hval 7 til Noregs um
sumarið 1961 sem 1. vélstjóri. Var
hann 1. vélstjóri á Hval 7 þar til
hann hætti til sjós eftir hvalver-
tíðina 1970.
Rabbi var nú ekki búinn að
segja alveg skilið við okkur hjá
Hval hf. því hann leysti félaga
sína af hluta úr vertíð næstu ár.
Rafn réð sig sem stöðvarstjóra
í hvalstöðinni frá 1974 meðfram
því sem hann hafði eftirlit með
vélbúnaði hvalbátanna og sá um
samskipti við vélstjórana.
Öll umsvif hjá Hval hf. minnk-
uðu auðvitað verulega er hval-
veiðar hættu eftir vertíðina 1989
er hið svonefnda hvalveiðibann
tók gildi. Áfram varð að líta eftir
skipunum og sjá til þess að allt
væri í lagi um borð. Fólst það m.a.
í að snúa aðalvélinni og smyrja
hana reglulega og margt fleira.
Rabbi þekkti manna best
hvern krók og kima í hvalbátun-
um svo hér var ekki kot vísað.
Natni, vandvirkni og snyrti-
mennska var Rabba í blóð borin
er kom að eftirliti og því sem
þurfti að gera svo skipin yrðu klár
í slaginn er kallið kæmi.
Er það svo loks gerðist 2006 er
Hvalur 9 fór í stutta vertíð í lok
sumars og veiddi sjö langreyðar,
þá var skip og vélbúnaður í eins
góðu ástandi og maður gat best á
kosið eftir að hafa legið í Reykja-
víkurhöfn síðan haustið 1989.
Samviskusemi Rabba sýndi sig
hér áþreifanlega.
Eftir að Rabbi hætti hjá Hval
hf. að eigin ósk vegna aldurs í lok
árs 2006, þá 74 ára, hafði hann þó
áfram vökult auga með okkur og
fylgdist vel með því hvað um var
að vera. Kom hann oft í kaffi til að
ræða málin eins og gengur og
gerist.
Eftir að Rabbi hætti til sjós
byrjaði hann fljótlega að kenna
smíðar í Vélskólanum á veturna.
Það var mikið lán fyrir Hval hf.
að hafa fengið mann eins og
Rabba til starfa hjá félaginu,
mann sem kunni sitt fag og var
úrræðagóður ef eitthvað bjátaði
á.
Þegar ég hugsa til baka þá var
ég nú ekki hár í loftinu 13 ára á
Hval 1 en þar um borð var einvala
áhöfn og margir þeirra störfuðu
hjá fyrirtækinu í áratugi eins og
Rabbi, enda leið mér vel þar og
síðar til sjós með þeim.
Það hefur verið mikið lán fyrir
mig persónulega að hafa átt sam-
leið með Rabba í nær 65 ár er
hann kveður okkur nú. Hann
kenndi mér margt um gufuvélar
en þær þekkti hann eins og lófana
sína.
Að leiðarlokum vil ég fyrir
mína hönd og fjölskyldu minnar
senda Evu og fjölskyldu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Kristján Loftsson.
Rafn Magnússon
✝ Lýður ValgeirBenediktsson
fæddist á Kirkjubóli
við Steingrímsfjörð
2. september 1931.
Hann lést á Land-
spítalanum 7. febr-
úar 2021. Foreldrar
hans voru hjónin
Ragnheiður Lýðs-
dóttir frá Skrið-
insenni, f. 22. júní
1895, d. 1. sept-
ember 1983, og Benedikt Gríms-
son, bóndi og hreppstjóri, f. 17.
apríl 1898, d. 21. júlí 1980. Bræð-
ur Lýðs eru Grímur, f. 7. maí
1927, d. 18. maí 2018, Sigurður
Matthías, f. 29. desember 1928,
d. 28. maí 2005. Fóstursystir
Lýðs er Rósa Jónída, f. 16. júní
1936, d. 19. ágúst 2018.
Lýður giftist eftirlifandi konu
sinni, Helgu Guðrúnu Valdi-
marsdóttur, f. 23.4. 1938, hinn
20. september 1959. Foreldrar
síðan einn vetur á Héraðsskól-
ann á Reykjum og lauk þaðan
landsprófi. Eftir það fór hann
suður til Reykjavíkur og gekk
þar í Samvinnuskólann og lauk
þaðan samvinnuskólaprófi. Lýð-
ur vann nokkur ár sem aðalbók-
ari í Kaupfélagi Strandamanna á
Hólmavík og var þá eitt ár
hreppstjóri á Hólmavík. Árið
1960 fluttu Lýður og Helga til
Reykjavíkur og byrjaði hann þá
að vinna í Skipadeild Sambands-
ins sem síðar varð Samskip. Lýð-
ur vann hjá Samskip þar til 2001
en lét þá af störfum eftir 41 ár.
Lýður var lengi í stjórn Átt-
hagafélags Strandamanna og
var í mörg ár gjaldkeri félagsins.
Árið 1991 hóf hann að læra á
harmonikku, þá 60 ára gamall,
og gerðist fljótlega félagi í
Harmonikkufélagi Reykjavíkur.
Hann lék einnig í nokkur ár í
danshljómsveit Ulrichs Falkn-
ers. Eftir að Lýður hætti að
vinna spilaði hann á harmonikku
um 15 ára skeið undir söng hjá
félagsmiðstöð aldraða á Dal-
braut 18 í Reykjavík.
Útför Lýðs fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 25. febrúar
2021, klukkan 15.
hennar eru Valdi-
mar Guðmundsson,
f. 16.8. 1910, d.
28.10. 2001, og Ey-
björg Áskelsdóttir,
f. 10.1. 1910, d. 29.1.
1992. Dætur þeirra
eru: 1) Ragnheiður
sjúkraþjálfari, f. 18.
maí 1959. Hún er
gift Sigurði Jóns-
syni, f. 30.12. 1957,
og eiga þau tvo
syni, Atla, f. 20.12. 1994, og Dav-
íð, f. 27.10. 2000. Fyrir átti Sig-
urður Ásdísi Írenu, f. 4.5. 1980,
og Telmu Rut, f. 20.10. 1992. 2)
Linda Bára sálfræðingur, f. 5.
maí 1967. Hún er gift Hafsteini
Bragasyni, f. 14.7. 1967, og eiga
þau tvo syni, Lýð, f. 3.8. 1999, og
Hlyn, f. 17.4. 2004.
Lýður var fæddur og uppalinn
á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð.
Átján ára fór hann einn vetur á
Héraðsskólann á Laugarvatni og
Í dag kveðjum við elskulega
tengdapabba, Lýð Benedikts-
son. Lýður fæddist á Ströndum
árið 1931, að Kirkjubóli við
Steingrímsfjörð. Þar ólst hann
upp við gott yfirlæti hjá for-
eldrum sínum og bræðrum.
Eins og ungra manna siður af
framsóknarættum var á þess-
um tíma fór Lýður um tvítugt í
Samvinnuskólann sem þá var
starfræktur í Reykjavík. Að
loknu samvinnuskólaprófi vann
hann í Kaupfélagi Stranda-
manna á Hólmavík. Þar kynnt-
ist hann æviástinni sinni og
vini, Helgu Valdimarsdóttur.
Um þrítugt fluttu þau alfarið
suður er Lýður hóf störf í
skipadeild Sambandsins sem
síðar varð Samskip. Þar starf-
aði hann alla sína starfsævi.
Lýður var einstaklega vel lið-
inn samstarfsmaður, traustur,
hlýr og úrræðagóður.
Tengdapabbi var einstakur
öðlingur sem vildi öllum gott
gera. Hann var mikill þátttak-
andi í okkar lífi og nátengdur
barnabörnum sínum. Hann var
alltaf boðinn og búinn að að-
stoða eða létta undir með okk-
ur þegar á þurfti að halda. Það
voru ófá skiptin sem hann
skutlaðist með drengina okkar
Lindu á æfingar, í skátana eða
í kringum skólastarfið. Lýður
og Helga voru gjarnan heima
hjá okkur þegar strákarnir
komu úr skólanum sem var
okkur ómetanlegt. Það er því
engin tilviljun að strákarnir
okkar voru mjög hændir að afa
sínum og syrgja hann sárt.
Lýður var hjálpsamur og það
var gott að leita til hans. Ekk-
Lýður Valgeir
Benediktsson
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
BJÖRN KRISTINSSON,
rafmagnsverkfræðingur,
prófessor emeritus,
lést á Droplaugarstöðum mánudaginn
22. febrúar. Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Hallgrímsdóttir
Elskuleg systir okkar,
ÞÓRDÍS LÁRUSDÓTTIR,
Dísa,
Grundartúni 12,
Hvammstanga,
lést laugardaginn 20. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Magnús Lárusson Svanhildur Hall
Grímur Lárusson
Finnur Lárusson Merrily Lárusson
Hafliði Lárusson Catherine Alaguiry
Pétur Þröstur Baldursson Anna Birna Þorsteinsdóttir
Kristín Heiða Baldursdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÖRN JOHNSON,
Fellsási 9, Mosfellsbæ,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
sunnudaginn 21. febrúar.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Örn Johnson Jóhanna Laufdal Aðalsteinsd.
Björn Hrannar Johnson Pétur Sigurjónsson
Friðrik Johnson
Haukur Johnson Lars Wallström
Óttar Örn Johnson Tereza Kociánová
Ásgeir Thor Johnson Dagný Vala Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÝRLEIF ANDRÉSDÓTTIR,
Leirhöfn,
andaðist á Hvammi, heimili aldraðra á
Húsavík, fimmtudaginn 18. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Snartarstaðakirkju laugardaginn
27. febrúar klukkan 14 að viðstöddum nánustu ættingjum og
vinum. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlega láti Hvamm,
heimili aldraðra á Húsavík, njóta þess, kt. 511298-2969,
reikningsnr. 1110-15-201156. Hjartans þakkir til starfsfólks
Hvamms fyrir góða og hlýja umönnun í gegnum árin.
Athöfninni verður streymt á facebook-viðburðinum Jarðarför
Dýrleifar Andrésdóttur, Leirhöfn
Andrea Jóhannsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir Steinar Matthíasson
Arnfríður Jóhannsdóttir
Hildur Jóhannsdóttir Jón Þór Guðmundsson
barnabörn og langömmubörn