Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 47
MINNINGAR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
✝ Agnes SteinaÓskarsdóttir
fæddist í Bolung-
arvík 22. mars
1939. Hún lést á
hjartadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 6. febrúar
2021. Foreldrar
hennar voru Óskar
Halldórsson, sjó-
maður, f. 9. sept-
ember 1916 í Bol-
ungarvík, d. 30. janúar 1941, og
Jóhanna Pétursdóttir húsfreyja,
f. 20. júlí 1917 í Bolungarvík, d.
25. febrúar 1962.
Eftirlifandi eiginmaður
Agnesar Steinu er Stefán Ævar
Ragnarsson járnsmíðameistari,
f. 20. janúar 1936 á Ísafirði. Þau
gengu í hjónaband 6. júní 1959
og eignuðust þrjú börn.
Þau eru: 1) Óskar Ævarsson
vélfræðingur, f. 11. desember
1958 á Ísafirði, maki Andrea
Vikarsdóttir, f. 6. mars 1963 í
Reykjavík. Fyrir átti Óskar fjög-
ur börn, a) Finnbogi, f. 1978,
maki hans Karen Pálsdóttir, f.
1981, þau eiga tvö börn. b)
Agnes Steina, f. 1981, maki
hennar Hilmar Björn Hróðmars-
son, f. 1973, þau eiga þrjú börn.
c) Róbert Örn, f. 1987, og d)
1961 á Ísafirði. Maki hans er
Eva Rowan Ævarsson, f. 1973.
Agnes Steina var fædd og
uppalin í Bolungarvík. Faðir
hennar fórst í sjóslysi með
Baldri ÍS í janúar 1941 og var
Agnes Steina alin upp af móður
sinni. Eftir barnaskóla gekk hún
í Gagnfræðaskóla Ísafjarðar og
útskrifaðist þaðan 1957 með
hæstu einkunn.
Agga Steina kynnist eftirlif-
andi manni sínum Ævari Ragn-
arssyni þegar hún var á seinna
ári gagnfræðaskólans. Þau hófu
fljótlega húsbyggingu í Sjó-
mannablokkinni á Hlíðarvegi á
Ísafirði þar sem þau eignuðust
sín þrjú börn og seinna byggðu
þau sér svo hús á Völusteins-
stræti 9 í Bolungarvík. Agnes
Steina og Ævar fluttu til Hafn-
arfjarðar árið 1974 þar sem hún
bjó til æviloka, lengst af í Álfa-
bergi 30, en það hús byggðu þau
Ævar einnig.
Agga Steina vann hin ýmsu
störf um ævina svo sem versl-
unarstörf, sem talsímakona, við
fiskvinnslu, skrifstofustörf, sem
leikskólakennari og sérkennari.
Hún útskrifaðist úr Fósturskóla
Íslands árið 1980 og síðar sem
leikskólasérkennari árið 1991.
Lengst af starfaði hún á leik-
skólunum Álfabergi, Víðivöll-
um, Arnarbergi og lauk starfs-
ævinni á leikskólanum Hlíðar-
bergi.
Útför Agnesar Steinu fór
fram í kyrrþey 18. febrúar 2021
frá Hafnarfjarðarkirkju.
Brynja Huld, f.
1987. Saman eiga
Óskar og Andrea
tvö börn, e) El-
ísabet Rán, f. 1992,
maki hennar Mark
Doulin, f. 1992, þau
eiga eina dóttur, f)
Natan Ævar, f.
1998. Fyrir átti
Andrea tvo drengi,
Magnús Þór Óm-
arsson, f. 1980,
maki hans Álfhildur Ásgeirs-
dóttir, f. 1983, þau eiga fjögur
börn, og Davíð Þór Ómarsson, f.
1983, maki hans Solmaz Pour-
mohammad, f. 1993, þau eiga
tvo syni.
2) Bryndís Ævarsdóttir leik-
skólakennari, f. 26. nóvember
1959 á Ísafirði, maki hennar er
Þorvaldur Friðþjófsson, f. 31.
janúar 1959 í Hafnarfirði. Sam-
an eiga þau fjögur börn. a) Gyða
Hrund, f. 1982, maki Sonny
Stark, f. 1983, b) Ævar, f. 1986,
d. 1995, c) Sigurður Óli, f. 1988,
sambýliskona hans Ólína Krist-
jana Arnfjörð, f. 1988, saman
eiga þau tvo syni, d) Bergþóra,
f. 1997, sambýlismaður hennar
Hákon Örn Harðarson, f. 1996.
3) Jóhann Ævarsson vél-
virkjameistari, f. 4. desember
Elsku mamma mín. Þegar ég
hugsa um lífshlaup þitt þá hugsa
ég um hversu öflug þú varst.
Kornung með þrjú börn á fjór-
um árum, eiginmaðurinn úti á sjó
og báðir foreldrar þínir fallnir
frá.
Þegar þú fórst til London um
margra vikna skeið með bróður
minn til lækninga. Þegar þú
skelltir þér í Flensborg til að
mennta þig meira. „Við erum
tvær, gömlu konurnar,“ sagðir
þú.
Og síðan í Fóstruskólann það-
an sem þú útskrifaðist rúmlega
fertug. Ekki fannst þér nóg kom-
ið þá, þú vildir geta gert eitthvað
meira til að efla þau börn sem
þurftu meira. Svo þú fórst í
framhaldsnám og útskrifaðist
með sérkennslu barna með sér-
þarfir, eins og það hét þá.
Það var sko enginn svikinn af
því að hafa þig sem kennara, þú
sinntir öllu af alúð og metnaði.
Við afkomendur þínir fengum
líka að njóta þessara eiginleika
þinna.
Og þegar barnabörnin fædd-
ust eitt af öðru fengu þau sinn
skerf af fróðleik, kennslu, ást og
umhyggju.
Þar sem farið var að draga af
þér þegar yngstu barnabörnin
fæddust kynntust þau ekki öllu
fjörinu og uppátækjunum sem
þau eldri muna.
Mörg síðustu ár einkenndust
af miklum veikindum sem skertu
lífsgæði þín verulega. Veikindi
og líðan gerðu það að verkum að
þú gast ekki notið þeirra tæki-
færa sem lífið bauð upp á.
Hafðu þökk fyrir allt elsku
mamma mín. Vonandi ertu kom-
in í faðm þeirra sem fóru á undan
og þú saknaðir alltaf sárt.
Þín dóttir,
Bryndís og fjölskylda.
Elsku amma mín, nafna og
vinkona lést eftir slys á hjarta-
deild Landspítalans þann 6. febr-
úar. Síðustu dagana í lífi hennar
vakti ég yfir henni og er ég þakk-
lát fyrir að ég gat hugsað um
ömmu mína eins og hún hugsaði
alltaf um mig.
Þakklát fyrir að ég gat þakkað
henni fyrir allt sem hún var mér.
Taugin á milli okkar ömmu
var mjög sterk og höfðum við
þörf fyrir að heyra í hvor annarri
mjög reglulega. Það verður
skrítið að geta ekki komið við hjá
ömmu eða heyrt í henni í síma
eins og við gerðum svo oft.
Amma var mjög þolinmóð við
okkur afleggjarana og var hún
alltaf klár í föndur og leiki sama
hvaða hlutverk hún fékk; barn,
amma, hestur, hundur.
Amma hafði mikla frásagnar-
hæfileika og man ég að þegar
hún bæði las og sagði sögur af
Dimmalimm, Hlina kóngssyni,
Búkollu o.fl. sat ég hugfangin í
hvert sinn þrátt fyrir að ég
þekkti sögurnar út í gegn því
þær voru alltaf jafn spennandi og
lifandi í frásögn ömmu.
Í sumarbústaðnum kenndi
amma okkur að þekkja blóm,
rækta kartöflur og radísur.
Kvöldgöngur og kvöldkaffi voru
fastir liðir fyrir svefn.
Amma hafði unun af nátt-
úrunni og vildi kenna okkur að
umgangast hana af virðingu.
Hún flokkaði sorp áður en ég
man eftir mér og predikaði hand-
þvott löngu áður en „þríeykið“
kom til sögunnar. Hún hafði
metnað fyrir því að vera amma
og allt sem hún gerði með okkur
snerist um að við vissum meira í
dag en í gær.
Mér þótti alltaf notalegt að
koma til ömmu og ég naut þess
svo sannarlega að vera nálægt
henni, það færðist alltaf yfir mig
notaleg værð í návist hennar. Við
amma gátum talað um hjartans
mál sem og mál líðandi stundar
og gátum við týnt klukkutímum í
spjalli.
Amma var svo sannarlega með
fallega sál og viðkvæma og hefði
þurft meiri kærleik og hlýju í líf-
inu en hún fékk, einnig frá sjálfri
sér.
Ég hef alltaf verið stolt af því
að bera nafn hennar því hún
amma mín var ótrúleg kona og
lét sér virkilega annt um alla þá
sem skiptu hana máli. Hún var
meiri stoð í mínu lífi en hún gerði
sér nokkurn tímann grein fyrir,
þrátt fyrir að ég segði henni það
oft.
Þú varst okkur amma svo undur
góðÞú varst okkur amma svo undur
góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Elsku amma mín, söknuðurinn
er yfirþyrmandi en minningin lif-
ir í brjóstum okkar um aldur og
ævi. Minning um fallega, ljúfa sál
og góða ömmu.
Ömmu verður sárt saknað.
Hvíldu lúin bein, elsku amma
mín.
Þín
Agnes Steina og fjölskylda.
Agnes Steina
Óskarsdóttir
ert viðvik var of mikið. Þegar
við stóðum í framkvæmdum þá
mætti hann á hverjum degi og
hélt iðnaðarmönnunum við efn-
ið með sinni góðu nærveru.
Eins og einn iðnaðarmaðurinn
sagði, það væri ekki annað
hægt en að láta verkin tala
undir hlýrri útgeislun tengda-
pabba.
Lýður var listrænn og mikill
hagleiksmaður. Hann lærði
snemma á hljóðfæri og spilaði
vel á orgel. Á seinni árum sneri
hans sér að harmóníkunni og
spilaði á hana þar til hann hafði
ekki lengur líkamlega burði til
þess.
Hann skar út í tré og við eig-
um marga fallega muni sem
munu halda minningu hans á
lofti um ókomna tíð. Svo teikn-
aði Lýður og byggði sumarbú-
stað í Grafningi sem varð þeim
Helgu vin á efri árum. Það eru
ófáar minningar sem tengjast
samverustundum okkar í sum-
arbústaðnum með tengdó. Lýð-
ur var góður sögumaður og það
var alltaf skemmtilegt að heyra
sögur frá því þegar hann var að
alast upp á Ströndum, var í til-
hugalífinu með tengdamömmu
eða frá störfum hans hjá Sam-
bandinu svo dæmi séu tekin.
Alltaf skemmtilegar og fallegar
sögur enda talaði Lýður aldrei
neikvætt um nokkurn mann eða
atburði. Hann var þannig mað-
ur.
Elsku tengdapabbi, mikið er
ég þakklátur fyrir allar sam-
verustundirnar, hlýjuna og að
vera til staðar fyrir okkur fjöl-
skylduna. Ég hefði ekki getað
verið heppnari með tengda-
pabba og þín verður sárt sakn-
að. Eftir sitja hlýjar minningar
um einstaklega vel gerðan
mann.
Hafsteinn Bragason.
Elsku afi er farinn. Hann var
alltaf til staðar og það er svo
margt að muna. Við munum
eftir harmóníkuleiknum þínum
í stofunni, eftir sögunum sem
þú sagðir okkur, eftir sundferð-
unum og pylsunum sem við
fengum okkar saman eftir
sundið, eftir skutlinu í leikfimi,
crossfit, fótbolta, karate og
parkour, eftir samræðum í bíln-
um með þér og ömmu, eftir
sumarbústaðarferðunum til afa
og ömmu, eftir ferðunum upp í
kartöflugarð að tína kartöflur
og jarðarber, eftir kótilettunum
sem þú bjóst til og smjörinu
með smá brauði. Við söknum
símtalanna frá þér þegar þú
hringdir í okkur á ferðalögum
og skátamótum. Við vorum
heppnir að fá að hafa þig í lífi
okkar og kynnast þér vel elsku
afi og erum þakklátir fyrir allar
góðu minningarnar sem þú hef-
ur gefið okkur öll þessi ár.
Lýður og Hlynur.
Elsku afi minn, ég get ekki
annað en talið mig heppinn að
hafa fengið að eiga þig sem afa
og vin í 26 ár. Þú sem gerðir
svo mikið fyrir mig og baðst
um svo lítið í staðinn.
Við eyddum mörgum stund-
um saman og brölluðum margt.
Góðar eru minningarnar sem
ég á með þér og ömmu í Stóra-
gerðinu.
Þar sem við sátum í eldhús-
króknum og borðuðum kóte-
lettur í raspi og saltað hrossa-
kjöt. Þar sem við settum saman
flugvélamódelin sem svo
prýddu efstu hillurnar í stof-
unni. Þar sem við sátum í hæg-
indastólunum, borðuðum
súkkulaði, gláptum á Spaug-
stofuna og sáum hvort þið hefð-
uð unnið milljónirnar í lottóinu.
Þar sem ég fékk að gista á
svefnsófanum sem ég var búinn
að eigna mér.
Við fórum í langar bílferðir
til Hólmavíkur að skoða æsku-
slóðirnar með hamborgara-
stoppum í Brúarskála. Við
fleyttum kerlingar á Þingvalla-
vatni á leiðinni upp í sumarbú-
stað þar sem þú leyfðir mér að
fikta í eldinum í kamínunni þótt
mamma væri búin að banna
mér það. Við fórum í óteljandi
sundferðir, þar sem oftar en
ekki þurfti ég að bíða þolinmóð-
ur á meðan þú talaðir við allt
fólkið sem þú þekktir. Þú verð-
launaðir biðina þó alltaf með
pylsu eftir sundið.
Það er skrítið að setjast ekki
lengur upp í bílinn hjá þér og
ferðast um bæinn. Bílinn sem
ég fékk ungur að stýra á meðan
þú sast undir mér uppi í sum-
arbústað. Bílinn sem skutlaði
mér á fótboltaæfingarnar og í
fiðlutímana. Bílinn sem var allt-
af með harmonikkutónlist í
kassettutækinu og beiskan
brjóstsykur í hanskahólfinu.
Þegar ég fékk það verkefni
að taka viðtal í sagnfræðinám-
inu kom ekki til greina að tala
við neinn nema þig enda varstu
stútfullur af skemmtilegum
sögum af langri og viðburða-
ríkri ævi. Og þótt ég sé búinn
að heyra þær allar mörgum
sinnum, þá hefði ég ekkert á
móti því að heyra þær allar
einu sinni enn.
Takk fyrir allt afi minn, við
sjáumst.
Atli Sigurðarson.
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Okkar ástkæri,
FRIÐRIK BJÖRNSSON,
Ársölum 3,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 16. febrúar.
Útför hans fer fram frá Lindakirkju
mánudaginn 1. mars klukkan 13.
Aðstandendur og vinir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir en
einnig verður streymt frá athöfninni á lindakirkja.is/utfarir
Gunngeir Friðriksson Edda Björg Sigmarsdóttir
Sigurrós Friðriksdóttir Steinar Óli Jónsson
Ásgeir Herdísarson
Kristín Hinriksdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Hjartkæri eiginmaður minn, vinur og félagi,
faðir barnanna okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN GUÐLAUGSSON
skipstjóri,
Birkihólum 10, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
föstudaginn 19. febrúar.
Fyrir hönd barnanna okkar,
Alda Særós Þórðardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HENNÝ SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
lést mánudaginn 22. febrúar í faðmi sinna
nánustu. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 3. mars klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/jlTZw6tUL6M
Guðmundur H. Gústafsson Þorbjörg Steins Gestsdóttir
Ásmundur Gústafsson Stefanía Sigfúsdóttir
Gústaf J. Gústafsson
Sigurður Gústafsson
Emil Gústafsson Elfa B. Hreinsdóttir
Henný S. Gústafsdóttir Erna J. Erlendsdóttir
Árni Þ. Gústafsson Sonja Bent
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar,
GUÐRÚN LOVÍSA MAGNÚSDÓTTIR,
Lyngholti Vogum,
er látin.
Systkinin Lyngholti