Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.02.2021, Qupperneq 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 ✝ Anna GuðrúnSigurðardóttir fæddist 18. sept- ember 1975 í Reykjavík. Hún lést 16. febrúar 2021 á Landspít- alanum, eftir erf- iða baráttu við krabbamein. Anna Guðrún ólst upp í Grinda- vík og í Keflavík, en bjó í Reykjavík lengst af. Eftirlifandi faðir Önnu Guð- rúnar er Sigurður Þorsteins- son, f. 9. apríl 1941, búsettur í Reykjavík, hann er ættaður frá Skálanesi í Hraunhrepp Mýr. Móðir hennar var Sigríður Anna Sveinbjörnsdóttir, f. 18. febrúar 1943, d. 30. desember 2015. Sigríður Anna var ættuð frá Litlu-Ávík á Ströndum. Anna Guðrún átti þrjú systk- ini en tvö dóu ung. Guðjón (eldri), f. 20. apríl 1962, d. 27. maí 1963, og Anna Guðrún (eldri), f. 8. mars 1966, d. 7. febrúar 1969. Eftirlifandi bróðir Önnu Guð- rúnar er Guðjón, f. 27. október 1964, eiginkona hans er Andrea Margrét Þráinsdóttir, f. 5. desember 1966. Guðjón og Andrea eiga þrjár dætur og átta barnabörn, dætur þeirra eru Þórdís Jóna, f. 1984, sambýlismaður hennar er Helgi Einarsson, f. 1986, synir þeirra eru Bergur Ísak og Hilmir Hrafn, Snædís Ósk, f. 1985, sambýlismaður hennar er Bogi Adolfsson, f. 1976, þeirra börn eru Selma Líf, Guðjón Darri og Margrét Jara, og Árdís Sif, f. 1991, sambýlis- maður hennar er Þórarinn Arnarson, f. 1987, dætur þeirra eru Andrea Margrét, Þórdís Etna og Auður Huld. Útför Önnu Guðrúnar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 25. febrúar 2021, klukkan 13. Í dag kveðjum við elsku systur og mágkonu sem lést eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Orð megna lítils en við viljum þakka af heilum hug fyrir liðinn tíma og þær minningar sem við eigum um þig. Minningarnar lifa áfram í hjörtum okkar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Elsku pabbi/tengdapabbi, við vottum þér og öllum öðrum að- standendum okkar dýpstu sam- úð. Kærleikskveðjur, Guðjón og Andrea. Elsku frænka og vinkona, mér finnst þú alltaf vera systir mín þó að þú sért dóttir bróður míns. Það var margt mjög erfitt í lífi þínu en það ætla ég ekki að skrifa um. Ég man alltaf eftir þér bros- andi alla daga fyrir utan nokkra daga. Mikið á ég eftir að sakna þín og allra ferðalaganna, það er sárt að hugsa til þess að þú átt ekki eftir að keyra með eftir okk- ur inn í Þórsmörk aftur. Það var svo gott að þú kæmir með á eigin bíl „Fatlafólinu“ þínu. Harkan í þér að koma þér sjálf í hjólastóln- um á brennuna og svo þegar við komum til baka spiluðum við 10000 fram undir morgun. Einni skemmtiferð man ég sérstaklega eftir, þú baðst mig að koma með þér á Selfoss til ömmu þinnar (mömmu minnar), þá varst þú nýbúin í kjálkaaðgerð og varst á fljótandi fæði. Það var heitt í veðri og þig langaði í ís svo við fengum okkur bara ís. Þú gast ekki haldið honum uppi í þér, svo ísinn lak út um allt. Við hlógum svo mikið að ég hélt að þú myndir keyra út af. Svona man ég eftir þér, alltaf gaman og gleði í kringum þig. Árið 2010 fórum við í ferð sem var frekar óspenn- andi, það var þegar við skruppum til Stokkhólms þegar þú varst með stíflaða æð í höfðinu. Þegar við lentum í Stokkhólmi fórst þú í sjúkrabíl á gjörgæslu en ég í leigubíl en ég vissi ekki hvar gjörgæslan var. Eftir klukkutíma fann ég þig, þá var búið að tengja þig við alls konar mæla og rit. Þegar búið var að fóðra æðina fengum við hláturkast í stærra lagi, ég varð svo hrædd þegar ég sá blóðþrýstingsmælinn þjóta upp en daginn eftir fengum við að fara heim. Svo komst þú í flestar systk- inaferðirnar á Vog á Mýrum, Hítardal, Skorradal, Snæfellsnes og marga fleiri staði og alltaf var sungið og spilað fram undir morgun og þú í þínu besta skapi. Svo komstu á þorrablótin hjá Sæ- unni og Óla, þá gistir þú með okkur í bústaðnum á tjaldstæð- inu. Það var svo gott að koma til þín á Sléttuveginn og drukkum við mikið kaffi en svo veiktist þú sem var ömurlegt. Mér finnst þú hafa gengið í gegnum nóg á æv- inni. Hvers vegna þurftir þú að fá krabbamein? Síðast þegar ég heimsótti þig á krabbameinsdeildina á Landspít- alanum varstu mjög hress og kát og fíflaðist með að það væri stutt í næsta kaffiboð hjá þér. Nú er þetta búið, þú þarft ekki að kveljast lengur. Þú ert komin til ömmu og afa á Langó, mömmu og stóru systkina þinna. Takk elsku frænka fyrir allt sem þú hefur kennt mér og það er nú ekki lítið. Elsku Siggi bróðir, Guðjón og fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Björk frænka. Skjótt hefur sól brugðist sumri, kom upp í hug minn þegar ég varð að trúa því að Anna Guð- rún bróðurdóttir mín væri horfin okkur, eftir stranga en ekki langa baráttu við krabbamein, en þótt sólin bregðist stundum sumrinu og okkur öllum, þá læt- ur hún alltaf aftur sjá sig, lýsir upp og yljar tilveru okkar, það var einmitt þannig sem hún elsku frænka mín reyndi alltaf að sjá björtustu hliðarnar og ég veit að það væri hennar ósk að við gæt- um brosað í gegnum tárin á þess- um erfiðu dögum. Ég man hvað ég varð glöð og upp með mér þegar Siggi og Sissa spurðu mig hvort ég myndi vilja halda á nýfæddri dóttur þeirra undir skírn, Anna Guðrún var skírð í höfuðið á föðurömmu sinni. Hún fæddist með klofinn hrygg og þurfti því í aðgerð strax daginn eftir og vorum við því hálfkvíðin fyrir komandi dögum, en sú stutta óx og dafnaði, en oft þurfti hún að fara á Barnaspít- alann að laga hitt og þetta, en hún tók þessu öllu með undra- verðri rósemi. Hún efldist með hverju árinu, fyrst var hún á hækjum en síðar eingöngu í hjólastól. Hún leit alltaf björtum augum á framtíðina enda tók hún alltaf þátt í öllum uppákomum í fjöl- skyldunni, í vinnunni og fé- lagsstarfi fatlaðra og átti marga og góða vini. Það var mikil bylting fyrir hana þegar hún tók bílpróf og fékk sinn sérútbúna bíl, enda hentist hún um land allt, hvar sem okkur frænkum hennar og pabba datt í hug að halda hinar árlegu systkinaferðir, sem voru nú kannski ekki allar þær heppi- legustu fyrir hjólastólafólk, en það var ekkert verið að væla neitt, þótt við reyndum nú oftast að fá staði sem voru þolanlegir fyrir hana. En í anda Önnu Guð- rúnar verðum við að sætta okkur við tilveru okkar án hennar, þótt erfitt verði að fylla skarðið sem verður í öllum okkar samveru- stundum, sem ekki voru svo fáar, þar sem við systkinin reynum að hittast oft og vera með afkom- endum okkar og alltaf var það elsku frænka sem var duglegust að mæta og vera með okkur. Hvað við megum vera þakklát fyrir að hafa hana samferða okk- ur þessi 45 ár, sem mér finnst að hefði mátt vera mun lengri sam- vera. Takk fyrir allt og allt elsku Anna Guðrún mín. Elsku Siggi, Guðjón, Andrea og dætur, hugheilar samúðar- kveðjur, sorgin og söknuðurinn er okkar allra. Sæunn. Við kveðjum með söknuði Önnu Guðrúnu sem kvaddi þenn- an heim langt um aldur fram eftir erfið veikindi. Anna Guðrún var bæði góð vinkona og vinnufélagi. Við kynntumst fyrir rúmum aldar- fjórðungi þegar hún flutti í íbúð í Sjálfsbjargarhúsinu, á þeim tíma sem ég vann á skrifstofu Sjálfs- bjargar lsh. Eftir þann tíma störfuðum við saman í atvinnu- lífsnefnd Sjálfsbjargar lsh. í nokkur ár. Þegar því lauk héld- um við áfram að vera í sambandi með hléum. Vegir okkar lágu síðan aftur saman þegar við unnum báðar á skrifstofu Öryrkjabandalagsins en hún kom þangað nokkrum mánuðum á undan mér. Hún vann þar samfellt í 8 ár, á ár- unum 2007 - 2015, við ýmis störf. Eitt af verkefnum hennar var umsjón með skrifstofuvörum og að sjá um pantanir á þeim. Þegar við fluttum í nýtt skrifstofuhús- næði árið 2014 voru vörurnar geymdar í herbergi við hliðina á móttökuborðinu þar sem hún vann. Þegar merkja átti herberg- ið fékk það heitið „Önnubúð“ enda gekk það undir því heiti í daglegu tali. Í hvert sinn þegar við starfsfólkið förum inn í Önnu- búð að sækja það sem okkur van- hagar um hugsum við hlýtt til hennar. Anna Guðrún sinnti fjölbreytt- um verkefnum og hafði góða þekkingu á málefnum fatlaðs fólks. Þegar hún lét af störfum hjá ÖBÍ fór hún til Þekkingar- miðstöðvar Sjálfsbjargar þar sem hennar kunnátta og reynsla kom að góðum notum við ráðgjöf og upplýsingagjöf. Hún hafði mikinn áhuga á fé- lagsstörfum, en hún starfaði meðal annars innan Íþróttasam- bands fatlaðra og var virk í fé- lagsstarfi Sjálfsbjargar lsh. Ásamt þátttöku í atvinnulífs- nefnd Sjálfsbjargar lsh. var hún einnig í ferlinefnd og í fram- kvæmdastjórn landssambands- ins. Þá var hún einnig í stjórn Ný-ungar, ungliðahreyfingar Sjálfsbjargar, og í stjórn DNHFU, bandalagi ungliða- hreyfinga fatlaðs fólks á Norð- urlöndum. Anna Guðrún var félagsvera, glaðlynd, traust og góð vinkona enda átti hún marga vini. Hún var einnig opinská og hreinskipt- in og lá ekki á skoðunum sínum. Hún lagði alla tíð áherslu á mik- ilvægi þess að lifa sjálfstæðu lífi. Hún hafði ánægju af hreyfingu og útivist og ljómaði öll þegar hún var á leið í hina árlegu Þórs- merkurferð með stórfjölskyld- unni þar sem hún átti góða að sem skipti hana miklu máli. Faðir hennar var henni ætíð innan handar, hannaði og smíðaði með- al annars lyftu til að hún kæmist hjálparlaust inn og út úr íbúðinni þar sem þau bjuggu saman um tíma. Þá kom hann upp lyftubún- aði í bílnum hennar til að hún gæti ferðast um landið. Hana dreymdi stundum merkilega drauma og skiptumst við á tímabili á draumum. Ef hana dreymdi sérstakan draum átti hún til að senda mér tölvu- póst eða hringja til að ræða hvað hann gæti þýtt. Við reyndum að lesa í þá í sameiningu því draumar eru oft svo persónulegir að erfitt getur verið að ráða í þá án þess að átta sig á samhengi hlutanna. Minning hennar lifir í hugum okkar. Aðstandendum og vinum vottum við innilegustu samúð. F.h. Öryrkjabandalags Ís- lands Lilja Þorgeirsdóttir Elsku vinkona. Mikið ofsalega er sárt að geta ekki hitt þig aftur. Ég var farin að trúa að jákvæðni þín, baráttuviljinn og æðruleysið myndu láta hið ómögulega ger- ast. Ef einhverjum hefði tekist það þá hefði það verið þú. Ég gleðst yfir þeirri hugsun að þér líði vel núna og í huga mér ertu í himnaríki með flottum bíl- um, fjallaferðum og fiskveiðum. Samt sem áður syrgi ég að öll ævintýrin sem biðu okkar verða ekki að veruleika. Í huga mér hljómar hlátur þinn og ég minn- ist væntumþykju þinnar, stað- festu og kærleiks. Ég veit að þú munt passa upp á alla þá sem þér þótti svo ofur vænt um. Elsku Sigurður og fjölskylda, megi guð styrkja ykkur í sorg- inni. Guðný Bachmann. Það er þyngra en tárum taki að manneskja i blóma lífsins, með ný tækifæri í sjónmáli og full af eldmóði fyrir brýnum baráttu- málum, sé hrifin burt eftir bar- áttu við skæðan sjúkdóm. Anna Guðrún okkar var baráttujaxl, alltaf stutt í brosið og engin upp- gjöf. Hún var vön baráttu, lífið var barátta eins og þeir þekkja sem búa við hreyfihömlun í daglegu lífi. IF hafði þá reglu að velja á norrænt barna- og unglingamót nokkra einstaklinga sem ekki voru virkir í íþróttastarfi. Anna Guðrún var í þeim hópi þegar hún var valin á slíkt mót 1991. Síðar sagði hún sögu sína í kynn- ingarstarfi ÍF og þar tók hún alltaf fram „að lífið hefði byrjað 1991“. Þetta mót varð hennar stóri stökkpallur út í lífið, sjálfs- traustið efldist og hún blómstraði í ferðinni. Við sem fylgdumst með áttum ekki orð. Feimna, þögla stelpan kom úr ferðinni full af eldmóði og eftir nokkra mánuði hafði hún ásamt góðu fólki stofnað íþrótta- félagið Nes og varð þar fyrsti for- maður. Hún var ráðin til ÍF 1996 og þar skilaði sér vel sú reynsla sem hún bjó að, ekki síst þegar ræða þurfti við áhyggjufulla að- standendur sem voru að senda börn í fyrsta keppnisferðalagið. Eftir um 10 ára störf hjá ÍF hélt hún áfram að starfa að hags- munamálum fatlaðra, hjá Sjálfs- björg og ÖBÍ, en hún þekkti vel þann heim sem takmarkar að- gengi að jöfnum tækifærum og vildi vinna að úrbótum, ekki síst fyrir fólk með hreyfihömlun. Hún rak sig á marga veggi og vildi brjóta þá niður, ekki bara sín vegna heldur allra hinna. Hugur hennar stóð til framhaldsnáms en slæmt aðgengi hafði áhrif á að það varð styttra en til stóð. Að bjarga sér sjálf, vera sjálfstæð og eiga skemmtilegar samveru- stundir með fjölskyldu og vinum, það var það sem skipti máli í lífi hennar. Nýlega höfðu opnast nýjar dyr og NPC-aðstoðin henn- ar var sannarlega rétt mann- eskja á réttum stað. Það var yndislegt að upplifa einstakt samband hennar við ömmu sína sem nú er fallin frá, hún elskaði fjölskylduna og litlu frændsystkinin en stóri klettur- inn var pabbi hennar. Hann græjaði allt, ekkert var of flókið og nú síðast var það sérhannaður húsbíll. Ferðalögin voru ævin- týraheimur, veiðiskapur og úti- vist en útivist getur verið tak- mörkuð þegar farartækið er hjólastóll. Árið 2017 eftir endur- hæfingu á Reykjalundi var talið mjög mikilvægt heilsunnar vegna að hún héldi áfram eigin endurhæfingu og í samráði við fagfólk var sótt um styrk til kaupa á handhjóli. Þannig gæti hún nýtt eigin hjólastól til útivistar og endur- hæfingar. Hún var tilbúin að taka ábyrgð á eigin heilsu. Beiðni um styrk var hafnað, málið var kært og var enn í ferli þegar kveðju- stund rann upp. Það var henni mjög mikilvægt að málið hefði jákvæð áhrif til framtíðar fyrir aðra í sömu spor- um og þeirri ósk verður fylgt eft- ir, hún vissi það. Elsku Anna Guðrún, þitt hlut- verk var mikilvægt fyrir svo marga. Við söknum þín sárt hjá ÍF og þökkum allar góðu sam- verustundirnar. Guð geymi þig. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar allrar. F.h. Íþróttasambands fatl- aðra, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir. Elsku frænka. Það er sárt að kveðja svona snemma. Þú í blóma lífsins og allt orðið eins og þú vildir hafa það. Þú varst baráttujaxl og hörku- tól. Þú elskaðir okkur systur og börnin okkar og við þig og þér fannst svo gaman að fylgjast með þeim og heyra af þeim sögur. Alltaf hlupu þau til þín í knús og þér leiddist það sko ekki. Þín er sárt saknað og við geymum minningarnar í hjörtum okkar. Takk fyrir allt og allt. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Ástar- og saknaðarkveðjur, Snædís Ósk, Bogi og börn. Anna Guðrún er fallin frá langt fyrir aldur fram aðeins 45 ára gömul. Anna lét mótlæti ekki slá sig út af laginu og reyndi allt sem hún gat til að láta drauma sína rætast. Hennar hreyfihöml- un stóð þar hvergi í vegi. Hún var útivistarmanneskja fram í fing- urgóma og naut sín inn til dala og upp til heiða á sínum fjallabíl. En Anna var líka félagsmálamann- eskja. Þekkingarmiðstöð Sjálfs- bjargar naut starfskrafta hennar um tíma auk þess sem hún sat í framkvæmdastjórn Sjálfsbjarg- ar landssambands sem ritari í 6 ár frá 2004-2010 en að auki í þó nokkrum nefndum á vegum landssambandsins. Lengi vel þar á eftir var hægt að leita til Önnu sem fundarritara á landsfundum Sjálfsbjargar. En Anna var líka baráttumanneskja og vakti hún m.a. athygli á reglum Sjúkra- trygginga, sem ekki borga nein hjálpartæki er flokka má sem æf- ingatæki. Draumur hennar um að fá æfingahjól með hjálparmót- or framan á hjólastólinn rættist því miður ekki, þar sagði tölvan nei. Nú sjá ættingjar hennar og vinir á eftir þessari góðu konu sem var vinur vina sinna og vildi öllum vel. Ég vil senda föður hennar, bróður svo og öllu henn- ar venslafólki mínar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Sjálfsbjargar, landssam- bands hreyfihamlaðra, Bergur Þorri Benjamínsson formaður. F.H Sjálfsbjargar landssam- bands hreyfihamlaðra, Bergur Þorri Benjamínsson formaður. Anna Guðrún Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Prestshólum) Elsku Anna Guðrún mín, það er sárt að kveðja, engin orð geta tjáð hve sárt ég sakna þín. Kveðja, pabbi. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁRNI MAGNÚS EMILSSON, fyrrverandi útibússtjóri, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 1. mars klukkan 13. Vegna takmarkana á fjölda kirkjugesta verður útförinni streymt á slóðinni https://www.sonik.is/arni. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja góð málefni að eigin vali. Þórunn B. Sigurðardóttir Orri Árnason Anna Rún Ingvarsdóttir Arna Árnadóttir Ágústa Rós Árnadóttir Svavar Jósefsson Úlfur, Victoria, Salka og Hrafn Styrkár Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, HALLFRÍÐUR GEORGSDÓTTIR, Urðarholti 1, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðju- daginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 1. mars klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag og minningarsjóð Sóltúns. Georg Magnússon Steinunn Júlía Steinarsdóttir Kristín Magnúsdóttir Guðbjörg Magnúsdóttir Sigurður Óskar Lárusson Hallsteinn Magnússon Sigríður Jónsdóttir Hrafnhildur Georgsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.