Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 49

Morgunblaðið - 25.02.2021, Side 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 ✝ Kristín Þ.G.Jónsdóttir, Lalla, fæddist 18. september 1926 á Njálsgötu 1, Reykjavík. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 16. febrúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Jón Haf- liðason, f. 8.3 1891, d. 24.1. 1981, og Ingibjörg Margrét Þorláks- dóttir, f. 3.10. 1887, d. 5.2. 1941. Bræður Kristínar voru: Haf- liði, f. 1.6. 1916, d. 29.10. 1917, Hafliði Þórir, f. 16.7. 1918, d. 15.6. 2014, og Þorlákur Klem- enz, f. 28.7. 1921, 16.12. 1924. Kristín giftist 5. ágúst 1955 Marteini P. Kristinssyni, f. 9.6. 1928, d. 17.7. 2013. Foreldrar hans voru Kristinn Óskar Krist- Kristín (Lalla) fæddist og ólst upp á Njálsgötu 1 og bjó þar alla sína tíð þar til hún fluttist fyrir ári á Hjúkrunarheimilið Sóltún. Ung að árum fékk hún berkla og dvaldi á Vífilsstöðum og á berklahælinu Vejlefjord í Danmörku. Eftir heimkomu vann hún eins og kraftar leyfðu í verslun bróður síns á Njáls- götu 1, vefnaðarvöruverslun, og síðar sem klínikdama í fjög- ur ár á tannlæknastofu Jóns Hafstein. Eftir giftingu gerðist hún heimavinnandi húsmóðir og um 1975 fór hún að vinna hjá versluninni Kerinu sem afgreiðslukona, síðar hjá Gjafa- vöruhúsinu og seinast hjá Þjóð- minjasafni Íslands, inni í sölum og í gjafavörubúð safnsins. Kristín (Lalla) hafði yndi af að dansa og þau hjónin voru lengi í Kátu fólki, einnig starf- aði hún mikið með Félagi eldri kvenskáta í Reykjavík. Í seinni tíð nutu Kristín og Marteinn þess mikið að fara til sólar- stranda. Kristín verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 25. febrúar 2021, klukkan 13. jánsson, f. 7.10. 1899, d. 25.8 1958, og Jónína Guðjóns- dóttir, f. 8.10. 1890, d. 17.1. 1967. Hann var yngstur sex bræðra, þeirra Ólafs, Karls, Svana, Carlos og Dadda, allir fallnir frá. Börn Kristínar og Marteins eru: 1) Ingibjörg Þóra, f. 22.9. 1956, maki Hilmar Teitsson, f. 2.11. 1955, börn þeirra: a) Hildur, f. 3.10. 1980, maki Jóhann Örn Sigurjónsson, börn þeirra eru Alda Marín og Aron Snær. b) Katrín, f. 24.11. 1984, sonur hennar Atli Freyr. 2) Kristinn Óskar, f. 29.7. 1962, maki Þóra Stefánsdóttir, f. 11.2. 1966, son- ur þeirra: Stefán Ottó, f. 8.2. 1997. Til móður minnar Ó mamma mín nú leiðir skilja að sinni og sorgartárin falla mér á kinn. En hlýjan mild af heitri ástúð þinni hún mýkir harm og sefar söknuðinn. Í mínum huga mynd þín skærust ljómar og minningin í sálu fegurst ómar. Þú móðir kær ég aldrei skal ég gleyma. Þinn andi fylgi mér á lífsins strönd. Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma og hald fast í drottins hönd. Með huga klökkum kveð ég góða móður. Ó mamma mín þú lífs míns stærsti sjóður. (Árna Gunnlaugsson) Nú kveðjum við ástkæra móður sem hefur lifað tímana tvenna, alltaf á sama staðnum, þar sem hún fæddist, að Njáls- götu 1, í húsi foreldra sinna, þar sem margir ættliðir bjuggu. Stuttu eftir fermingu dó móðir hennar og tóku þá bróðir henn- ar og mágkona hana undir sinn verndarvæng ásamt ömmu Þóru og var hún þeim ævinlega þakk- lát. Alla ævi bar hún mjög sterkar tilfinningar til staðarins og reyndist það henni erfið ákvörðun að fara þaðan en þeg- ar hún tók skrefið var hún mjög sátt og ánægð enda svo ein- staklega lánsöm að fá að fara á Hjúkrunarheimilið Sóltún, þar sem hún mætti einstöku við- móti, hlýju og umhyggju og verðum við ævinlega þakklát fyrir það. Ung að árum greindist hún með berkla og dvaldi á Vífils- stöðum í rúmlega eitt ár. En því miður tóku þeir sig upp aftur og þá fór hún til Vejlefjord í Dan- mörku sér til heilsubótar og var svo einstaklega lánsöm að ná bata þar. Fljótlega eftir að heilsu var náð við heimkomu fór hún að vinna bæði hjá bróður sínum og síðar sem klinikdama á tann- læknastofu Jóns Hafstein. Síðar kynntist hún ástinni sinni, Mar- teini P. Kristinssyni, og gengu þau í hjónaband 5. ágúst 1955 og gengu út ævina saman, í samvinnu og ást. Eignuðust okkur systkinin og mikið var alltaf gott hjá okkur, ólumst upp saman, fjölskyldurnar í húsinu, mamma og pabbi með okkur á efri hæðinni og Heiða og Hafliði á neðri hæðinni með dæturnar þrjár. Margt var brallað og leikið sér, ævintýrin í bústaðnum í Þrastaskógi minn- isstæð, bústað þeirra Heiðu og Hafliða. Þangað var farið á hverju sumri og dvalið löngum stundum og í minningunni var alltaf gott veður. Mamma og pabbi elskuðu að dansa og voru lengi í Kátu fólki og hún var virkur félagi í Félagi eldri kvenskáta og oft var horft á eftir dásamlegum súkku- laðikökum sem fóru á basara. En auðvitað var mikið bakað og nutum við þess til fullnustu. Eitt var það sem fylgdi henni alla tíð og það var kúluspilið fræga, sem keypt var í brúð- kaupsferðinni, í Svíþjóð, og er enn til og verður lengi spilað áfram. Minnumst við börnin margra stunda þeirra vinkvenna, mömmu og Dídíar, sitjandi í sóf- anum að spila kúluspil. Á seinni árum höfðu þau mikla unun af því að fara til sólarlanda, með góðum vinum og áttu góðar minningar úr þeim ferðum. Ávallt mætti okkur mikil gleði og ástúð er við komum, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn og er okkur þakklæti efst í huga. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Minning þín lifir Þín börn, Ingibjörg Þóra, Hilmar, Kristinn (Kiddi), Þóra, börn og barnabörn. Amma Lalla var sannkölluð miðbæjarfrú, fædd og uppalin á Njálsgötu 1 þar sem ómurinn frá Hallgrímskirkju sló í takt við upptrekktu klukkur heim- ilisins og hún sannarlega vissi engan stað betri. Í heimsóknum hjá ömmu Löllu voru upptökur af Tomma og Jenna og Cirkus Arena með kremkexi og brjóst- sykri úr kristalsskál fastir liðir. Ekki var bara margt spennandi að skoða á Njálsgötunni, krist- alsstyttur og dularfullt háaloft, heldur líka margar framandi sögur að heyra. Eftir því sem við urðum eldri áttuðum við okkur á hversu margslungið líf ömmu Löllu hafði alla tíð verið. Ung stúlka sem missir móður sína, dvöl á berklahæli í Dan- mörku, dansleikir, skátastarf og kóngsins Kaupmannahöfn. Amma og afi höfðu mikla unun af sólarlandaferðum og munum við vel eftir þeim sólbrúnum og sælum í útlandafötunum sínum, alltaf með eitthvað fallegt handa okkur í farteskinu. Amma Lalla vann við ýmislegt en við munum best eftir henni á Þjóðminja- safninu. Hún talaði alltaf af hlýju um safnið og það var ávallt gaman að koma í heim- sókn til hennar í búðina og fá að skoða þetta glæsihús. Amma Lalla var alltaf himinlifandi að fá heimsóknir og passaði upp á að eiga nóg af kremkexi og gosi upp á skör, hvort sem var handa okkur eða langömmu- börnunum. Við hugsum með hlýju til elsku ömmu Löllu og minnumst hennar í hvert sinn sem við för- um fram hjá Njálsgötunni. Eftir aðskilnað sem virtist aldrei venjast er gott að vita til þess að amma og afi eru sameinuð á ný, að njóta í sólinni. Hvíl í friði, þínar Hildur og Katrín. Kristín Þ. G. Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og vinur, MARGRÉT SIGRÚN MARINÓSDÓTTIR, lést á heimili sínu föstudaginn 12. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 26. febrúar klukkan 15.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Hringinn eða Krabbameinsfélagið. Athöfninni verður streymt, hægt er að nálgast hlekk fyrir streymið á: www.streyma.is. John Yeoman Klara Sigurbjörnsdóttir Kristín Yeoman Emil Björnsson Erik Yeoman Sigrún Guðmundsdóttir Elsa Yeoman Hrannar Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Tryggvi Hákonarson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓSEF ÓLAFSSON læknir, áður til heimilis í Kvíholti 8, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi í Kópavogi mánudaginn 15. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 5. mars klukkan 15. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hlekk á streymi verður hægt að nálgast á mbl.is/andlat Sólveig Birna Jósefsdóttir Sigurður Einarsson Ólafur Mar Jósefsson Ásta Margrét Karlsson Snorri Jósefsson Halla Jónsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi, EYÞÓR HANNESSON frá Sæbóli, Borgarfirði eystra, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 20. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Alda Ósk Jónsdóttir Eva Björk Eyþórsdóttir Erna Rósa Eyþórsdóttir Hannes Ívar Eyþórsson og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESAR HELGASONAR, útvarpsvirkjameistara og kennara. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar Landspítala og K2 Landakoti fyrir einstaka aðhlynningu og alúð í hans garð. Fríða S. Traustadóttir Sigríður Jóhannesdóttir Björg Jóhannesdóttir Hringur Sigurðsson Olgeir Jóhannesson Margareth Hartvedt Una Jóhannesdóttir Óskar S. Magnússon Trausti Jóhannesson Steinunn L. Þorvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, RANNVEIG ÞORVALDSDÓTTIR kennari, Sogavegi 130A, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 20. febrúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík mánudaginn 1. mars kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á https://utfor-rannveig.is Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kraft, stuðningsfélag, Krabbameinsfélagið eða Ljósið. Sverrir Scheving Thorsteinsson Áslaug, Ingibjörg og Þóra Þorvaldur Karl Helgason Þóra Kristinsdóttir Ingibjörg Þorvaldsdóttir Vilhjálmur Kvaran Helga Þorvaldsdóttir Kristinn Þorvaldsson Fríður Skeggjadóttir Þormar Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, bróður, afa og langafa, SIGURÐAR TH. INGVARSSONAR frá Ísafirði, Sléttuvegi 29, Reykjavík, sem jarðsunginn var 12. febrúar. Umhyggja ykkar og hlýhugur hefur verið okkur ómetanlegur stuðningur. Arndís Ólafsdóttir Sigríður B. Sigurðardóttir Hilmar Guðmundsson Ólafur Sigurðsson Svala Guðmundsdóttir Anna Ólafía Sigurðardóttir Stefán Hrafnkelsson Björk Sigurðardóttir Sigrún Stella Ingvarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR, Víðilundi 21, Akureyri, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 1. mars klukkan 13.30. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. Athöfninni verður streymt á facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Hilmar Henry Gíslason Þorvaldur Kr. Hilmarsson Alda Ómarsdóttir Ólafur Gísli Hilmarsson Eva Sif Heimisdóttir Kristín Hilmarsdóttir Jóhannes Gunnar Bjarnason barnabörn og barnabarnabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ELÍAS GUNNLAUGSSON frá Gjábakka í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, lést föstudaginn 5. febrúar. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 26. febrúar klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á landakirkja.is. Hjördís Elíasdóttir Hannes G. Thorarensen Björk Elíasdóttir Stefán Örn Jónsson Viðar Elíasson Guðmunda Áslaug Bjarnad. barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.