Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 51

Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021 ✝ Anna Þor-steinsdóttir fæddist 26. október 1928 í Götu í Ása- hreppi. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Mörk 3. febr- úar 2021. For- eldrar hennar voru hjónin Guðrún Pálsdóttir, f. 1891, d. 1988, og Þor- steinn Tyrfingsson, f. 1891, d. 1973, ábúendur í Götu og Rifshalakoti í 34 ár, síð- ar í Bræðraborg á Hellu. Anna var næstyngst í röð fimmtán systkina, sem tólf komust til fullorðinsára. Systkini Önnu sammæðra voru: Steinn, f. 1916, d. 1961, Bjarnhéðinn, f. 1917, d. 1985, Tyrfingur Ár- mann, f. 1918, d. 2004, Guðrún Sigríður, f. 1920, d. 2014, Sig- urður, f. 1921, d. 2001, Guð- björn Ingi, f. 1923, d. 1924, Þór- dís Inga, f. 1924, d. 2020, drengur, f. 1924, d. 1924, Að- alheiður, f. 1926, d. 2006, Pálína Salvör, f. 1926, d. 1926, og Þóra, f. 1927, d. 2017. Börn Þor- steins og Guðbjargar Bjarna- f. 1968, Atli, f. 1981, barnsmóðir Eva Rós Ólafsdóttir, f. 1984, og Elfa, f. 1992, maki Ólafur Hers- ir Arnaldsson, f. 1990. Barna- börn: Agnes Lára, f. 1995, Daní- el Freyr, f. 1998, Arnar Kári, f. 2008, Sóley Kría, f. 2010, og Vaka Rut, f. 2016. 3) Guðrún Hrönn, f. 1961, maki Hörður Þór Harðarson, f. 1958, d. 2018. Börn þeirra: Andri, f. 1985, Sig- rún Sif, f. 1989, og Ívar, f. 1993. Fyrir átti Smári Rúnar, f. 1947, d. 2012. Börn hans: Marta Sig- urlilja, f. 1969, maki Úlfur Ingi Jónsson, f. 1969, Einar Geir, f. 1973, maki Marzena Burkot, f. 1981, og Eygló, f. 1987. Barna- börn Rúnars: Ragnhildur Marta Lólíta, f. 2010, og Emil, f. 2018. Saman voru Anna og Smári í liðlega sjö áratugi, leigðu á Vallarbraut 10 meðan þau byggðu á Hvolsvegi 12, og voru meðal frumbýlinga á Hvolsvelli. Í lok níunda áratugar síðustu aldar fluttu þau svo í Öldugerði 10 þar sem þau bjuggu þar til þau fluttu árið 2010 á Suður- landsbraut 58 í Reykjavík. Anna vann ýmis störf, m.a. í Hagkjör áður en hún hóf störf á Sauma- stofunni Sunnu árið 1970, en þar starfaði hún lengst af sem verkstjóri í hartnær 20 ár. Útför Önnu fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði 19. febr- úar 2021 að viðstöddum nán- ustu ættingjum. dóttur, f. 1886, d. 1970: Ingibjörg, f. 1925, d. 2007, Þór- hildur, f. 1926, d. 1927, og Þórhildur Svava, f. 1931. Þór- hildur Svava lifir systkini sín. Þann 14. október 1950 giftist Anna Smára Guðlaugs- syni, f. 1925. For- eldrar Smára voru hjónin Láretta Sigríður Sig- urjónsdóttir, f. 1894, d. 1978, og Guðlaugur Bjarnason, f. 1889, d. 1984, bændur á Giljum í yfir fimm áratugi frá árinu 1927. Börn Önnu og Smára eru: 1) Ómar Bjarki, f. 1950, maki Katrina Downs-Rose, f. 1958. Börn þeirra: Anna Veronika, f. 1986, Elvar Karl, f. 1988, maki Natsha Bo Nandabhiwat, f. 1986) og Bríet Dögg, f. 1992, kærasti Sigurgeir Ólafsson, f. 1993. Fyrri kona Guðrún Sig- ríður Haraldsdóttir, f. 1956, d. 2018. 2) Edda Sjöfn, f. 1955, maki Erlendur Árni Hjálm- arsson, f. 1955. Börn þeirra: Björk, f. 1974, maki Karl Hólm, Farskólinn í Vetleifsholts- og Bjóluhverfi í Ásahreppi hefur verið einstök menntastofnun ef horft er til lífshlaups systkinanna frá Götu. Minnist þess þegar mamma og nágrannakonurnar voru að taka upp snið úr Burda- blöðum, sem voru ótrúlega flókin og illa læsileg ungum dreng. En úr þessum sniðum urðu til fínustu flíkur. Það einstaka innsæi sem mamma hafði fyrir handverki leiddi til þess að eftir ýmis störf, m.a. í versluninni Hagkjöri, bauðst henni vinna á Saumastof- unni Sunnu, 1969-1990, lengst af sem verkstjóri. Matargerð og kökubakstur fórust mömmu einstaklega vel úr hendi og hún dekraði við okkur með fjölbreytilegu mataræði, þótt ég nyti þess sjaldnar eftir 13 ára aldur verandi á heimavistarskóla að Skógum og Laugarvatni. Þegar um fór að hægjast og eftir að hún hafði ekki lengur þrek til stærri verka tók hún sig til og prjónaði ullarsokka á af- komendur sína og maka þeirra. Það vakti furðu að þótt viðtakand- inn byggi í fjarlægu landi hinum megin á hnettinum, þá smellpöss- uðu sokkarnir. Þvílíkt var innsæi hennar. Ferðaglaðir voru foreldrar mínir alla tíð og þá kom það í hlut mömmu að nesta okkur upp fyrir ferðalagið, sama hvort um var að ræða dagsferðir um nágranna- sveitirnar eða lengri ferðir þar sem yfirleitt var gist í tjaldi. Allt- af var útbúið veglegt nesti fyrir daginn og séð til þess að allir gengju mettir til náða. Reyndar nestaði hún óvart upp heilt fót- boltalið í ferð sem ég ætlaði að taka þátt í sumarið 1970, en fékk svo þegar til kom ekki frí úr vinnu. Nestið mitt kom þá að góð- um notum fyrir liðsfélagana. Þegar tjaldferðum fækkaði tóku sumarbústaðarferðirnar við, en foreldrar mínir höfðu greiðan aðgang að orlofshúsum víða um land í gegnum verkalýðsfélög. Það var engum í kot vísað sem tók þátt í þeim ferðum eða heimsóttu þau í bústað eða íbúðina á Akur- eyri. Þess naut ég vel í síðustu ferðinni sem þau fóru saman í bú- stað austur á Hérað, sumarið 2007. Þá var m.a. skroppið í Mjóa- fjörð og að Dalatanga. Og þótt dagleiðin austur væri löng var hún farin í einum áfanga, báðar leiðir. Af öðrum ferðum er ein- staklega minnisstæð ferð sem farin var um Kjöl og norður í Ófeigsfjörð sumarið 1980. Eftir nokkra daga á Ströndum var ferðinni heitið austur að Mývatni. Tjaldað var í Öxnadal undir morgun 10. júlí. Þegar skriðið var út úr tjaldinu undir hádegið sást hvar undarlegt ský steig upp á austurhimninum og fljótt varð ljóst að þar var farið að gjósa. Þangað var haldið og tjaldað norðan við Gæsafjöll næstu tvær nætur og fylgst með gosi í Gjá- stykki. Að því loknu var haldið heim yfir Sprengisand og komið á Hvolsvöll undir morgun. Pabbi sá um aksturinn en við mamma sát- um í aftursætinu og sáum um söng og önnur skemmtiatriði til að tryggja að ökumaðurinn héld- ist vakandi. Eftir að foreldrar mínir fluttu til höfuðborgarinnar lögðust sum- arbústaðarferðirnar að mestu af, enda heilsan ekki sú sama og áð- ur. Ég minnist móður minnar með þakklæti fyrir allt það sem hún gaf mér og þá óeigingjörnu um- hyggju sem hún sýndi okkur systkinum, börnunum okkar, mökum og barnabörnum, alla tíð. Ómar Bjarki Smárason. Elsku Anna tengdamamma, nú verður ekki meira bakkelsi, svo sem Ameríkanar hjá þér. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar ég sest niður og minnist þín. Það var alla tíð einhver þráður milli okkar sem gæti verið erfitt að útskýra en þegar þú átt í hlut þá er málið mjög eðlilegt og skýr- ingarnar eðlilegar, þú varst svo elskuleg í alla staði. Fyrsta sinn sem ég sá þig hafði ég hitt flotta stúlku, hana Eddu mína, á balli í Hvolnum sumarið 1973. Edda bauð mér heim á Hvolsveginn „í kaffi“ og þegar við komum inn þá segir þú við mig má ekki bjóða þér eitthvað? Að sjálfsögðu þáði ég það og var þetta upphaf að margra ára vin- áttu okkar. Ég átti eftir að eiga margar góðar stundir á Hvolsvelli og ég man vel eftir því hvað ég slappaði vel af þegar ég kom til þín og Smára, ég átti það til að leggja mig á sófann og þá sagðir þú við Eddu leyfðu honum að sofa hann er svo þreyttur, þetta var þér líkt. Það eru margar góðar sögur sem hægt er að segja um þig. Þegar við Edda og Björk bjuggum í Horsens í Danmörku fyrir mörgum árum síðan komuð þið Smári í heimsókn færandi hendi. Flogið var að sjálfsögðu til Köben og þaðan til Jótlands. Toll- verðirnir stoppa ykkur í Köben og byrja að skoða í töskurnar ykkar, þeir taka filmur upp og opna þær en þegar þeir ætla síðan að opna stóra Gunnars Majónes dós þá var þér misboðið og sagðir á þinn röggsama hátt á íslensku „þetta er bara rabarbarasultutau og láttu það vera“. Að sjálfsögðu hlýddi tollarinn og sultan komst í réttar hendur til okkar. Annað atrið sem var lýsandi fyrir þig, það var í sömu ferð og við erum niðri í bæ að versla, þá segir þú við mig: „Elli, viltu koma með mér í nærfatadeildina því ég kann ekki dönsku.“ Að sjálfsögðu gerði ég það fyrir þig elsku tengdamamma. Þrátt fyrir lélega fætur sagðir þú oft við mig á ég ekki að bera pokana Elli minn því þú er svo slæmur í bakinu? Fyrst að hugsa um aðra en ekki þig sjálfa. Margar góðar stundir áttum við Edda mín og fjölskylda með þér og Smára í sumarbústöðum eða íbúðum víða á landinu. Þá vorum við saman í eldhúsinu ég og þú, það voru góðar stundir. Það var í einni slíkri ferð þegar við vorum í bæjarferð og þú hras- aðir og að sjálfsögðu dastu á rétt- an hátt eins og þú sagðir sjálf, maður þarf að kunna að detta svo maður brotni ekki. En eftir þetta óhapp þá fékk ég að sjálfsögðu að leiða þig og enginn annar í þeirri ferð. Ekki má gleyma öllu því sem þú saumaðir eða prjónaðir á okk- ur fjölskylduna. Ógleymanlegir eru mokkajakkar, húfur og vett- lingar sem við fengum þegar við bjuggum í Danmörku. Þú varst svo góð, fyndin og elskuleg manneskja, góð við börnin og barnabörnin okkar. Það er mikið meira sem ég gæti talið upp elsku Anna en eftir stendur hvað við áttum margar góðar stundir saman, því gleymi ég ekki. Ég veit að þú varst hvíldinni fegin en söknuðurinn er samt sem áður fyrir hendi ekki síst hjá Smára þínum og fjölskyldu. Kveðja, Erlendur Árni Hjálmarsson, tengdasonur og vinur. Anna Þorsteinsdóttir Með þessum orð- um viljum við kveðja kæran sam- starfsfélaga til margra ára. Sigmundur hóf störf á sjúkrahúsinu í október 1984. Hann var ráðinn yfirlæknir nýrr- ar geðdeildar, en hún var þó ekki formlega opnuð fyrir en einu og hálfu ári síðar eða í mars 1986. Sigmundur vann samfellt á sjúkrahúsinu til loka maímánað- ar 2016 þegar hann hætti störfum sökum aldurs. Sigmundur lagði Sigmundur Sigfússon ✝ SigmundurSigfússon fæddist 26. júlí 1945. Hann lést 29. janúar 2021. Sigmundur var jarðsunginn 22. febrúar 2021. mikið af mörkum við að móta þjónustu í geðlækningum á Norður- og Austur- landi, enda var starfstíminn langur, og hann sinnti hlut- verki sínu af lífi og sál og leiddi fagið og mótaði á sinn hóg- væra hátt. Hann hafði sérstakt næmi fyrir að sjá og skilja hið félagslega samhengi sem fag- ið á sér að hluta til rætur í. Hann bar mikla umhyggju fyrir skjól- stæðingum sínum og sinnti mörg- um þeirra árum saman. Hann var vel liðinn af samstarfsfólki sínu, sem hann sýndi umhyggju, þol- inmæði og virðingu. Sigmundur var góð fyrirmynd annarra með rólyndi sínu og stefnufestu. Hann var góður hlustandi sem hafði í för með sér að oftar en ekki hlaut hann einstaka yfirsýn. Sigmund- ur var mjög fróður maður og búa margir, bæði fyrrum samstarfs- menn og skjólstæðingar, að ýmsu sem hann kenndi þeim. Við fyrrum samstarfsfólk hans af göngu- og legudeild geðdeildar SAk þökkum fyrir góð kynni í gegnum árin og sendum aðstand- endum Sigmundar innilegar sam- úðarkveðjur. Orð milli vina gerir daginn góðan. Það gleymist ei en býr í hjarta þér sem lítið fræ. Það lifir og verður að blómi. Og löngu seinna góðan ávöxt ber. (Gunnar Dal) Samstarfsfólk á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, Guðrún Jóhannesdóttir. Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinsemd vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR HELGA VALGARÐSSONAR vélstjóra. Valgarður Sigurðsson Fanney Sigurðardóttir Birgir Einarsson Kjartan Pétur Sigurðsson Heng Shi Dröfn Sigurðardóttir Guðmundur Þorsteinsson Kolbrún Sigurðardóttir Jón Þór Guðmundsson barnabörn og fjölskyldur Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar kærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AAGE STEINSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og félagsþjónustu Kópavogs. Torfi Steinsson Tina Weber Árni Steinsson Kristrún Gísladóttir Bryndís Steinsson Örn Eyjólfsson Eva Steinsson Kristján Guðjónsson Sjöfn Heiða Steinsson Halldór Þorgeirsson Steinn Ágúst Steinsson Susi Haugaard barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför eiginkonu, móður, tengdamóður, dóttur, systur, mágkonu og barnabarns, SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR viðskiptafræðings, Siggu okkar, Lækjarvaði 11, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11E á Landspítala og líknardeildar í Kópavogi fyrir einstaklega hlýlegt viðmót og hjálpsemi. Þeim sem vilja minnast Sigríðar er bent á Minningarsjóð Siggu, reikningur 0331-13-905355 kt. 160166-5419 v/gjöf til styrktar Landspítala Íslands. Einnig viljum við þakka þeim innilega sem þegar hafa styrkt sjóðinn. Bjarni Einarsson Guðmundur Bjarnason Esther Friðriksdóttir Dagur Bjarnason Birta Bjarnadóttir Guðmundur Egilsson Hulda Pétursdóttir Helga Guðmundsdóttir Jón Gunnlaugur Sævarsson Fanney Guðmundsdóttir Svavar Már Gunnarsson Jóhanna Einarsdóttir Hilmar Sæmundsson Sumarliði Gísli Einarsson Sveinbjörn Einarsson Sigríður Skarphéðinsdóttir Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR, Suðurlandsbraut 58, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk miðviku- daginn 3. febrúar. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið Mörk njóta þess. Smári Guðlaugsson Ómar Bjarki Smárason Katrina Downs-Rose Edda Sjöfn Smáradóttir Erlendur Árni Hjálmarsson Guðrún Hrönn Smáradóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVAVA ÞURÍÐUR ÁRNADÓTTIR frá Bala, Þykkvabæ, lést á dvalarheimilinu Lundi miðvikudaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju laugardaginn 27. febrúar klukkan 11. Þar sem takmarka þarf fjölda kirkjugesta verður útförinni streymt á facebook-viðburðinum: Jarðarför Svövu Þuríðar Árnadóttur frá Bala. Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.