Morgunblaðið - 25.02.2021, Síða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2021
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Rey
kja
vík
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m
»Draumar og brot-
hætt hjörtu var yfir-
skrift tónleika í Tíbrár-
röð Salarins í fyrra-
kvöld. Þar komu fram
söngkonurnar kunnu
Þóra Einarsdóttir sópr-
an og Hanna Dóra
Sturludóttir mezzósópr-
an ásamt píanóleik-
aranum Peter Máté.
Fluttir voru bæði ein-
söngvar og dúettar.
Draumar og brothætt hjörtu í Salnum
Morgunblaðið/Eggert
Listamennirnir Þóra Einarsdóttir og Hanna Dóra Sturludóttir syngja dúett í Salnum. Peter Mate við flygilinn.
Á spjalli Georg Magnússon upptökustjóri hjá Ríkisútvarpinu og bassa-
söngvarinn Bjarni Thor Kristinsson ræddu málin fyrir tónleikana.
Viðstaddar Listakonurnar Soffía Sæmundsdóttir og
Auður Gunnarsdóttir voru mættar á tónleikana.
Með grímur Særún Ármannsdóttir og Unnur
Hermannsdóttir voru meðal tónleikagesta.
Bandaríska ljóðskáldið, listmálarinn
og bóksalinn Lawrence Ferlinghetti
er látinn, 101 árs að aldri. Hann var
sá síðasti á lífi af beat-skáldunum
svokölluðu sem höfðu mikil áhrif á
bandarískan skáldskap á síðustu öld.
Auk þess að sinna eigin listsköpun
gaf Ferlinghetti út bækur og rak í
nær 70 ár City Lights-bókabúðina í
San Francisco en hún var ein þekkt-
asta bókaverslun Bandaríkjanna,
umtöluð miðstöð skáldskapar beat-
skáldanna. Yfirvöld í San Francisco
friðlýstu verslunina fyrir tveimur
áratugum.
Eftir að hafa þjónað í bandaríska
hernum í heimsstyrjöldinni síðari
við kafbátaleit á Norður-Atlantshafi
sneri Ferlinghetti sér að skáldskap.
Hann kynntist skáldunum sem síðar
voru kennd við „beat“ og gaf út bæk-
ur þeirra margra, til að mynda verk
Allens Ginsberg, Gregorys Corso og
Michaels McClure. Árið 1956 gaf
hann út frægasta ljóð Ginsbergs,
„Howl“, og var í kjölfarið handtek-
inn og kærður fyrir að gefa út dóna-
leg skrif. Hann var sýknaður, með
tilvísun í málfrelsið sem er tryggt
samkvæmt fyrsta viðauka banda-
rísku stjórnarskárinnar.
Auk þess að gefa út bækur beat-
skáldanna sendi Ferlinghetti frá sér
fjölmörg ljóðasöfn. Það vinsælasta,
„A Coney Island of the Mind“, er
meðal söluhæstu ljóðabóka þar í
landi. Síðasta ljóðabók hans kom út
á aldarafmælinu. Ferlinghetti var
eldri en skáldin sem hann gaf út og
hefðbundnari í nálgun; hann kvaðst
til að mynda varla vera beat-skáld
sjálfur heldur nær T.S. Eliot í anda.
Auk yrkinganna málaði Ferling-
hetti myndir í eina sex áratugi og
hafa verk hans verið sýnd víða.
AFP
City Lights Ferlinghetti stofnaði bókabúðina frægu í San Francisco ásamt
félaga sínum árið 1953 og var hún eins konar miðstöð beat-skáldanna.
Ferlinghetti, síðasta
bítskáldið, látinn
Skáldið Á löngum ferli hafði Ferl-
inghetti mikil og margvísleg áhrif.
Orti, málaði og
rak City Lights-
búðina frægu
Félag íslenskra bókaútgefenda
(Fíbút) opnar Bókamarkað sinn á
Laugardalsvelli í dag í 8. sinn.
Markaðurinn er að vanda haldinn í
í stúkubyggingunni við fótbolta-
völlinn. Bókamarkaðurinn á sér
áratuga sögu, en hann var fyrst
haldinn í Listamannaskálanum árið
1952. „Þetta er því líklega í 70. sinn
sem markaðurinn er haldinn. Á síð-
asta ári kom Covid upp hér á landi í
miðjum markaði og dró þá mikið úr
sölu. Það er von aðstandenda mark-
aðarins að betur gangi nú, bæði
með almennum smitvörnum og
rýmri fjöldatakmörkunum en verið
hafa,“ segir í tilkynningu frá Fíbút.
Á Bókamarkaðinum þetta árið er
að finna um 6.300 titla. Starfsfólk
bókasafna fékk forskot á sæluna í
gær, enda finnst aðstandendum
markaðarins mikilvægt að söfnin
geti endurnýjað og bætt bókakost
sinn jafnt og þétt. Dyrnar verða síð-
an opnaðar almenningi í dag kl. 10.
Bókamarkaðurinn stendur til
sunnudagsins 14. mars og er opinn
alla daga milli klukkan 10 og 21.
Bókamarkaðurinn verður opnaður í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lestrarhestar Bókamarkaðurinn er
haldinn á Laugardalsvelli í 8. sinn.