Morgunblaðið - 06.03.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Umhverfisstofnun telur ekki líklegt
að fyrirhuguð framkvæmd Carbfix
ohf. við Nesjavallavirkjun muni hafa
umtalsverð umhverfisáhrif í för með
sér og sé því ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum. Þetta kemur fram í
svari Ust. við erindi Skipulagsstofn-
unar vegna áforma Carbfix og Orku
náttúrunnar um tilraunaföngun og
förgun á koldíox-
íði og brenni-
steinsvetni (CO2
og H2S) frá
Nesjavallavirkj-
un og með nið-
urdælingu í berg.
Carbfix áform-
ar að reisa til-
raunaloft-
hreinsistöð með
niðurdælingu við
Nesjavallavirkjun sem mun fanga
koltvísýring og brennisteinsvetni úr
útblæstri virkjunarinnar og binda í
jarðlög undir virkjanasvæðinu. Til-
raunastöðin verður í einni 40 feta
gámaeiningu á lóð virkjunarinnar
auk þess sem lögð verður 2.200
metra löng lögn fyrir þéttivatn sem
verður að mestu niðurgrafin að bor-
holu og lögn niður á 950 metra dýpi í
borholunni.
Mynda stöðugar steindir
Jarðhitagas verður leitt í gegnum
þvottaturn, þar sem gösin verða
leyst upp í vatni, og þéttivatninu
dælt 950 metra niður borholuna þar
sem uppleystu gösin mynda stöð-
ugar steindir undir þrýstingi. Reikn-
að er með að lofthreinsistöðin muni
binda um 500 tonn af brennisteins-
vetni og 1.000 tonn af koldíoxíði á ári
og að tilraunin muni standa í 1-2 ár.
Verkefnið á Nesjavöllum er sam-
bærilegt við verkefni við Hellisheið-
arvirkjun, en þar hófst förgun á kol-
díoxíði og brennisteinsvetni á
iðnaðarskala árið 2014. Edda Sif
Pind Aradóttir, framkvæmdastýra
Carbfix, segir ráðgert að hefja fram-
kvæmdir við Nesjavallavirkjun síðar
á árinu og hefja niðurdælingu á fyrri
hluta næsta árs. Unnið er að því að
afla allra leyfa sem til þarf sam-
kvæmt lögbundnum ferlum. Kostn-
aður er alls áætlaður 400-500 millj-
ónir en þar af fæst töluverður hluti í
styrk frá Evrópusambandinu þar
sem verkefnið er hluti af stóru sam-
evrópsku nýsköpunarverkefni.
Edda Sif segir að nú séu bundin
35 tonn af koldíoxíði á dag við Hellis-
heiðarvirkjun og um 15 tonn á dag af
brennisteinsvetni. Alls hefur 100
þúsund tonnum verið dælt niður frá
2014 og var þeim áfanga náð í vik-
unni.
Lögbundnum ferlum fylgt
Í umsögn UST segir meðal ann-
ars: „Umhverfisstofnun ítrekar það
sem fram hefur komið í fyrri um-
sögn að það er mat stofnunarinnar
að niðurdæling á koltvísýringi til
steinrenningar falli undir skilgrein-
ingu á geymslu koltvísýrings í jarð-
lögum og sé því óheimil nema í rann-
sóknar-, þróunar- eða prófunarskyni
þar sem ætlunin er að geyma minna
en samtals 100 kílótonn koltvísýr-
ings, skv. 32. gr. a. laga nr. 70/2012
um loftslagsmál. Umhverfisstofnun
telur umfjöllun tilkynningarskýrslu
um nýnæmi og rannsóknargildi til-
raunarinnar fullnægjandi.“
Stofnunin bendir á að ef ætlunin
sé að koma upp varanlegri föngun og
förgun á koldíoxíði og brennisteins-
vetni við Nesjavallavirkjun þurfi að
hefja ferli mats á umhverfisáhrifum
tímanlega þar sem niðurstaða mats-
ins sé lögð til grundvallar við gerð
starfsleyfis.
Edda Sif segir um síðastnefnda
atriðið að öllum lögbundnum skipu-
lags- og leyfisferlum verði að sjálf-
sögðu fylgt þegar komi að því að
fara í varanlega föngun og förgun á
CO2 og H2S. Mat á umhverfisáhrif-
um falli þar undir.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bólstrar Séð frá Þingvöllum yfir að Nesjavöllum þar sem áformað er að niðurdæling í berg hefjist við virkjunina á næsta ári. Hengillinn gnæfir yfir.
Föngun og förgun við Nesjavelli
Carbfix áformar að reisa tilraunalofthreinsistöð með niðurdælingu Ekki umtalsverð umhverfis-
áhrif Alls hefur 100 þúsund tonnum af brennisteinsvetni verið dælt niður við Hellisheiðarvirkjun
Edda Sif Pind
Aradóttir
Mikilvægt er að létta á ýmsum
hindrunum í starfsumhverfi ís-
lensks atvinnulífs, svo því sé mögu-
legt að komast fljótt aftur af stað
þegar kórónuveiran hefur verið
lögð að velli. Til þess að skapa góð
efnahagsleg lífsgæði þarf að auka
landsframleiðsl-
una um 545
milljarða króna á
næstu fjórum ár-
um. Auka þarf
gjaldeyristekjur
um 300 milljarða
króna yfir tíma-
bilið og fjölga
störfum um 29
þúsund til að ná
atvinnuleysinu
niður og mæta
fólksfjölgun. Þetta kemur fram í
ályktun Iðnþings sem haldið var í
vikunni.
„Hindranir og fjötrar hafa því
miður allt of lengi tilheyrt starfs-
umhverfi íslensks atvinnulífs. Okk-
ur hefur gengið illa að komast úr
slíku hugarfari við setningu laga
og reglugerða eða álagningu óhóf-
legra skatta og gjalda, þrátt fyrir
að engin augljós nauðsyn kalli á
hindranir eða fjötra. Nú þegar
margir eru án atvinnu og verð-
mætasköpun í lágmarki er mikið í
húfi. Allt eru þetta mannanna verk
sem hægt er að breyta, einkum nú
þegar aðstæður krefjast þess,“
segir Árni Sigurjónsson, formaður
Samtaka iðnaðarins, í samtali við
Morgunblaðið.
„Við þekkjum að afgreiðsla er-
inda í bygginga- og skipulagsmál-
um tekur oft langan tíma og hið
opinbera á oft á tíðum erfitt með
að vinna saman þvert á stofnanir
og ráðuneyti. Flækjustig í reglu-
verki eru mörg og stafræn af-
greiðsla á ýmsum sviðum er ekki
komin í gagnið sem vera skyldi,
þótt boltinn sé farinn að rúlla ann-
ars staðar.“
Orkutengd tækifæri
Árni leggur áherslu á umhverfis-
vænar lausnir eins og fram kemur í
ályktun Iðnþings. „Við höfum mörg
orkutengd tækifæri, meðal annars
á grundvelli nýrrar orkustefnu
stjórnvalda til 2050, að því gefnu
að við getum tryggt samkeppn-
ishæft starfsumhverfi hér á landi.
Atvinnulífið er best til þess fallið
að stuðla að breytingum á fram-
leiðsluferlum, starfsemi sinni eða
öðrum þáttum til að halda áhrifum
á umhverfið í lágmarki. Þessi
aukna áhersla hefur, og mun áfram
leiða til þróunar í grænni tækni,
umhverfisvænni framleiðsluferlum,
rafrænum lausnum og orkuskipt-
um í samgöngum,“ segir formaður
SI. sbs@mbl.is
Engin nauðsyn að
krefjast hindrana
Árni
Sigurjónsson
Skapa verður 29 þúsund störf
Skipholti 29b • S. 551 4422
TILBOÐSDAGAR
TRAUST
Í 80 ÁR
Skoðið laxdal.is
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ
SKÓ-
SENDING
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 10.900
Str. M-XXXL
Vatteruð
vesti
Allt um sjávarútveg