Morgunblaðið - 06.03.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600
Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin.
Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi.
Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi.
Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn.
NÝ TÆKNI!
NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI
MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM
FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er óður til gamla fólks-ins og ellinnar. Við reynumað æfa fólk í að takast á viðóttann við ellina, því hann
getur skemmt svo mikið fyrir, sér-
staklega heilsufarslega. Ótti getur
brotist út í streitu og öðru sem hefur
slæm áhrif á heilsuna,“ segja þau
Ragnar Ísleifur Bragason og Hrefna
Lind Lárusdóttir, en þau stjórna
saman námskeiði hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands þar sem
þau ætla að hjálpa fólki að sjá hvers-
dagsleikann í nýju ljósi.
„Þetta fjallar um það hvernig
við getum hægt aðeins á hversdeg-
inum. Við erum að vinna með ellina
á þessu námskeiði og ég mun
bregða mér í hlutverk gamals
manns og við leyfum fólki að æfa
sig í því að verða gamalt og gera
allt hægar. Líka að sjá hversdags-
legar athafnir í nýju ljósi, eins og til
dæmis að hella vatni í glas, svara í
símann og annað slíkt,“ segir Ragn-
ar og Hrefna bætir við að þetta sé
að einhverju leyti ný nálgun á nú-
vitund.
„Við yngra fólkið tölum svo
mikið um að við þurfum að hægja á
okkur, en það reynist erfitt. Við
hægjum kannski á í nokkra daga en
svo virðumst við alltaf auka hrað-
ann á okkur aftur. Við finnum þetta
vel einmitt núna, þegar covid-
hömlur losna, þá er hraðinn strax
farinn að aukast. Ef við erum svo
heppin að verða gömul þá verðum
við að gera allt hægar, við getum þá
ekkert labbað hraðar,“ segja þau
Ragnar og Hrefna og bæta við að
þau ætli líka á námskeiðinu að
koma inn á tilhneigingu hjá fólki að
reyna að forðast að eldast.
„Allir vilja vera ungir enda-
laust, en við viljum gefa gamla fólk-
inu gaum og benda á að ef maður
verður gamall og heldur heilsunni,
þá er maður frekar heppinn, því þá
er maður lengur lifandi. Það er ekki
neikvætt.“
Fólk æfi sig í að vera gamalt
Þau segja að ef fólk gleymi sér í
hraða nútímans þá sé hætta á að fólk
gleymi að horfa inn á við og tapi fyr-
ir vikið sínum lífskrafti.
„Við látum fólk gera æfingar á
námskeiðinu til að tengja við sjálft
sig og umhverfið í nýju ljósi. Kraftur
þarf ekkert endilega að vera eitt-
hvað sem er rosalega hratt eða
sterkt. Kraftur getur líka verið að-
eins óáþreifanlegri. Við erum að
reyna að sýna fram á að það getur
líka verið kraftur í því að gera hlut-
ina hægt og setjast aðeins niður og
hugsa. Við erum samt ekki að segja
að allir eigi að setjast niður heima
hjá sér og vera fjóra klukktutíma að
bursta tennurnar eða sjóða pasta.
Það er samt gott að prófa það og æfa
sig í því.“
Grunnhugmyndin í námskeiði
þeirra Ragnars og Hrefnu kviknaði
þegar þau gerðu saman leiksýning-
una Gamli, þar sem Hrefna leik-
stýrði en Ragnar lék gamlan mann.
„Hugmyndin hlóð utan um sig í
þessu covid-ástandi sem heimurinn
hefur verið í undanfarið. Við bjóðum
líka upp á styttri vinnustaðafyrir-
lestra, mætum á staðinn í fyrirtæki
og þeir taka aðeins 45 mínútur.
Þetta er hugsað fyrir starfsmenn til
að tengjast sér og öðrum, og líka til
að hafa gaman. Þá fær starfsfólkið
smá æfingar í því að verða gamalt,
setjast niður sem gamalt og standa
upp sem gamalt, ganga um og fleira.
Ég sýni þeim hvernig ég geri þetta
sem gamli maðurinn í sýningunni
gerir og við leyfum fólki að sjá kosti
ellinnar,“ segir Ragnar og Hrefna
bætir við að rétt eins og á námskeið-
inu þá snúist vinnustaðafyrirlestr-
arnir um að leiðbeina hvernig við
getum hægt á okkur og séð hvað við
erum í raun alltaf að gera frábæra
og fallega hluti hversdags, allar
hreyfingar okkar og fleira, sem fer
framhjá okkur flestum í asa nú-
tímans. Og að hafa gaman saman.
Fagna því að verða gömul
Hvað kveikti á hugmynd ykkar
að leikritinu um Gamla á sínum
tíma?
„Við vildum vinna með að hafa
gamla fólkið meira sýnilegt í sam-
félaginu. Við vildum vinna gegn
þeirri hugmynd að við séum öll að
berjast við að verða ekki gömul á
einhvern hátt, það varð kveikjan að
sýningunni. Við viljum fara inn í
hugmyndina að verða gömul og
fagna henni. Við erum ekki að segja
að allt gamalt fólk sé lokað inni á
stofnunum, en við vildum draga það
fram, því það er staðreynd að gamalt
fólk er ótrúlega ósýnilegt og það
passar ekki inn í samfélag okkar
hinna sem höfum lítinn tíma eða
pláss fyrir gamalt fólk. Maður
stendur sjálfan sig að óþolinmæði
þegar maður er til dæmis í langri
röð í verslun og einhver gömul
manneskja er fyrir framan mann og
hann eða hún er lengi að ná í debet-
kortið sitt og raðar hægt í pokana.
Við þurfum að muna að gamalt fólk
er partur af samfélaginu og við verð-
um vonandi líka gömul og viljum þá
vafalítið láta taka tillit til okkar. Það
væri næs ef fólk mundi hlakka til að
verða gamalt og gæti æft sig í því.
Við höfum farið í nokkur fyrirtæki
með fyrirlesturinn okkar og fólki
finnst þetta svolítið sniðugt, og það
er gaman að æfa sig í að hreyfa sig
hægt. Það er alveg fjör á þessum
fyrirlestri og námskeiðið er í raun
lengri útgáfa og dýpri, þar förum við
meira í hugleiðslupartinn.“
Að lokum er ekki úr vegi að
spyrja þau Ragnar og Hrefnu hvort
þau hlakki til að eldast en þau eru
fædd 1977 og 1985.
„Já, hiklaust. Við ætlum að
njóta þess og vonumst eftir góðri
heilsu. Við höfum lært af gömlu fólki
í kringum okkur að ef maður heldur
heilsunni þá er bara algjört æði að
eldast,“ segja þau Ragnar og Hrefna
sem bæði eru sviðslistafólk en
Hrefna er líka jógakennari.
Óður til gamla fólksins og ellinnar
Þau vilja varpa ljósi á kosti ellinnar, kosti þess að hægja á sér í daglegu amstri. Ragnar og Hrefna eru sviðslistamenn sem leiða námskeið
hjá Endurmenntun Háskóla Íslands undir því langa heiti: Hversdagsleikinn í nýju ljósi – lifandi námskeið um hvernig ellin virkjar lífs-
kraftinn. Þau bjóða fyrirtækjum einnig að fá styttri útgáfu af námskeiðinu fyrir starfsfólk sitt.
Morgunblaðið/Eggert
Sviðslistamenn Hrefna Lind og Ragnar Ísleifur hlakka bæði til þess að eldast og vonast eftir góðri heilsu.
Námskeiðið verður 26. mars og
hægt er að spyrjast fyrir um
vinnustaðafyrirlesturinn hjá hug-
rung@hi.is. Nánar á: www.endur-
menntun.is.
Hvernig hægt er að dvelja í sjálfum
sér.
Að dýpka skynjun á sköpunar-
flæðinu sem býr í hversdeginum.
Hvernig líkami og hugur vinna
saman.
Hvernig allt í kringum okkur getur
verið skapandi og innihaldsríkt ef við
bara leyfum okkur að staldra við og
skoða það örlítið öðruvísi en við er-
um vön.
Kosti þess að eldast og skoplegar
hliðar þess.
Ávinningur:
Þú lærir aðferðir við að draga úr
streitu með því að tileinka þér æfing-
ar sem kenna þér að hægja á hvers-
dagslegum athöfnum þínum.
Þú kynnist því að vera með sjálf-
um/sjálfri þér og skynja umhverfið á
nýstárlegan hátt.
Þú kynnist leiðum við að takast á
við óþolinmæði og eirðarleysi.
Þú kynnist kostum þess að gera
minna og upplifa meira.
Þú öðlast innsýn í hvernig má
virkja sköpunarkraftinn, þróa hug-
myndir og miðla þeim á listrænan
hátt.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja
öðlast nýtt sjónarhorn á hversdaginn
til sköpunar og tileinka sér aðferðir
til að staldra við.
Námskeiðið: Hversdagsleikinn í nýju ljósi
Hvað er fjallað um á námskeið-
inu hjá Ragnari og Hrefnu?